AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Page 28
HULDA ÓLAFSDÓTTIR SJÚKRAÞJÁLFARI
VINNUVERND í VERKI
EITT
TÖLVUBORÐ
TAKK!
Dæmi um gott fyrirkomulag á vinnuborði. BorSplöturnar fyrir skjá,
hnappaborð og mús eru stillanlegar.
Fyrir nokkrum árum hélt undirrituð fyrirlestur
um vinnuaðstæður við tölvu fyrirstarfs-
menn í stórri opinberri stofnun. Fyrirlest -
urinn var haldinn tvisvar til að tryggja að
allir starfsmenn gætu tekið þátt ífræðslunni. Þar benti
ég starfsmönnum meðal annars á að tölvuaðstaða
væri víða ófullnægjandi innan stofnunarinnar. Áhersla
var lögð á að við framtíðarinnkaup á tölvuborðum
yrði vandað til innkaupa. Einnig var hvatt til endurs-
koðunar á skipulagningu vinnuaðstæðna við tölvur.
Þegar ég að loknum seinni fyrirlestrinum er að kveðja
skipuleggjendur stoppar sendiferðabíll fyrir framan
dyrnar og menn fara að bera inn tölvuborð. Mér
verður starsýnt á borðin og sé að þetta eru borð sem
ég get ekki mælt með, m.a. vegna takmarkaðra stilli-
möguleika. Áður hafði ekki komið fram að búið væri
að panta ný tölvuborð. Ég spyr strax viðmælendur
mína hvernig standi á því að þessi borð séu keypt
þar sem þau voru ekki ódýrari en borð sem vel var
hægt að mæla með. Það var kallað í innkaupastjór-
ann sem sagðist lengi hafa keypt þessi borð og að
seljandinn mælti með þeim. Innkaupastjórinn varð
að sjálfsögðu svekktur yfir því að fá ekki betri upplýs-
ingar frá seljanda.
ÁBYRGÐ OG SKYLDUR
í framhaldi af þessari reynslu hef ég velt fyrir mér
hver sé ábyrgð seljenda og hönnuða. Eru hönnuðir
vakandi fyrir þeirri ábyrgð sem þeir hafa við hönnun
búnaðar að hann hæfi settum reglum og leiðbein-
ingum hverju sinni? Fylgjast seljendur nægilega vel
með þannig að þeir selji ekki vinnustöðum búnað
sem Vinnueftirlitið gerir síðan athugasemdir við sem
ófullnægjandi?
REGLUR
Reglur um skjávinnu voru samþykktar af félagsmála-
ráðherra í september 1994. Þar er fjallað um hvaða
lágmarkskröfur eru gerðar til vinnustaða þar sem
unnið er við tölvur að staðaldri. í viðauka reglnanna
kemur fram hvaða kröfur eru gerðar til búnaðar, um-
hverfis og aðlögunar starfsmanns og búnaðar. í
bæklingi Vinnueftirlits ríkisins: Vinna viðtölvu, frá1995
er fjallað um ýmis atriði sem hafa áhrif á starfsum-
hverfið þar sem unnið er við tölvur og bent álausnir
til úrbóta. Þessi bæklingur var sendur til kynningar
til innanhúss- og húsgagnaarkitekta, framleiðenda
og seljenda tölvubúnaðar og húsbúnaðar tengda
tölvuvinnu. Einnig var hann sendur ýmsum faghópum
og fleirum.
Samkvæmt reglum um skjávinnu þarf borðrými að
vera nægjanlega stórt fyrir hnappaborð, mús, skjala-
haldara og til að hvíla hendur á ef þörf þykir. Flæð
skjásins þarf að laga að starfsmanninum þannig að
hann lúti höfði sem minnst við að horfa á skjáinn.Best-
ar eru vinnuaðstæðurnar þar sem hægt er að hæða-
stilla hverja borðplötu fyrir sig, þ.e. plötu fyrir hnappa-
borð, skjá og mús.
Það er nauðsynlegt að sitja á góðum vinnustól þar
sem hægt er að stilla hæð og halla setu og baks.
Vinnustól á að stilla oft á dag eftir verkefnum sem
26