AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Síða 34

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Síða 34
skuli ekki hafa verið staðsettar uppi á annarri hvorri hæðinni eins og oft var venja á þessum tíma (þar sem útsýni var til allra átta og snjóþyngsli í lágmarki) og haldist hefur allt fram til þessa dags, eins og fjöldi bóndabæja og kirkna víða í sveitum landsins ber vott um. Það er öðru fremur staðsetningin í landinu og hlutföll bygginganna innbyrðis og við hæðardrögin sem skipa þeim sess sem einu af okkar allra bestu dæm- um um samspil mannvirkja og náttúru þar sem bæði njóta góðs af sambýlinu. Það er umfram annað þetta atriði sem skapar „anda" staðarins. Þrátt fyrir þetta eru byggingarnar í andstæðu við umhverfi sitt, hvítar og glansandi með svört þök, en liggja þannig í landinu að þær eru ekki sérlega áberandi úr fjarlægð. ( Viðey má einnig finna mannvirki af öðrum og and- stæðum toga. Áfangar hins þekkta umhverfislista- manns Richards Serra. Reist árið 1990. Listamaður- inn Serra grípur eyjuna alit öðrum tökum en þeir sem reistu Viðeyjarstofu nær tveimur og hálfri öld áður. Fram að því var Serra einkum þekktur fyrir stór um- hverfislistaverk úr stáli. Flestir bjuggust því við að tillögur hans myndu ganga út á stálvirki sem risi úr jörðu og helgaði sér land á eyjunni. Áður en Serra hafði lagt fram tillögur sínar kom hann til landsins í vettvangskönnun og ferðaðist um landið um tíma. Upplifun hans af landinu gerbreytti viðhorfum hans til verkefnisins í Viðey. Þegar tillögurnar litu dagsins Ijós kom á daginn að stál var hvergi að finna, heldur var um að ræða óvenjulega notkun á stuðlabergs- súlum, sem staðsetja átti vítt um eyjuna eftir ná- kvæmri tilsögn listamannsins. Efnisval listamannsins er afgerandi fyrir listaverkið og umfang þess. Áttkantaðar stuðlabergssúlurnar falla inn í umhverfið og listaverkið sést aldrei allt í heild sinni. Þess er krafist af skoðandanum að hann velji sér einhvern óskilgreindan stað á eyjunni og leyfi súlunum að ramma inn víðáttuna, skiigreina hluta af sjóndeildarhringnum eða borginni hinum megin vió sundið. Vegna efnisvals og forms listaverksins og rýmismótandi eiginleika þess sést verkið ekki úr fjarlægð og týnist því í landslaginu nema vel sé að gáð og hefur ekki áhrif á umhverfið nema áhorfand- inn kjósi að virkja áhrifamátt þess í upplifun sinni á eyjunni. Flér er á ferðinni mannvirki sem nýtir sér „samruna” - aðferðina til fulls. í miðjum eyjaklasa Miðjarðarhafsins rís eyjan Santor- íni. Samanburður við Viðey varpar enn frekara Ijósi á hugtakið „andi staðarins", að virkja sérstöðu stað- háttanna þegar mannvirki eru mótuð og þeim valin staður og stefna í landi. Á Santoríni er um að ræða heilt þorp. Staðarval mannvirkjanna ákvarðast öðru fremur af aðstæðum og lífsviðurværi byggendanna. Santoríni á sér merka jarðfræðilega sögu. Hún er mynduð af eldgosi úr hafi, lítil hringlaga eyja sem hækkar jafnt og þétt að miðju sinni, gígnum sjálfum. Á einhverjum tímapunkti hófst gos að nýju. Tregða kom í gosgíginn með þeim afleiðingum að eyjan hreinlega sprakk. Hartnær helmingur landsins hvarf í hafið og eftir stóð hluti af gígnum eins og skeifa í laginu og landið aflíðandi frá þverhníptum gígbarm- inum til sjávar. Aðkoma að eyjunni með skipum er eingöngu mögu- Santoríni séð innan úr „gígnum ij 'n',** 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.