AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Síða 61
ÍBÚÐIR FRAMTÍÐARINNAR
hugmyndasamkeppni HúsnæSisstofnunar
- FYRSTU VERÐLAUN -
rátt fyrir stórstíga þróun í gerð húsnæðis
á þessari öld má með nokkrum sanni
halda því fram að í byggingaflóru dags-
ins í dag sé ríkjandi töluverð fábreytni
hvað varðar ný burðarform og efnisnotkun. í þessu
samhengi er umræðan um rými í arkitektúr einnig
aðkallandi. Ef til vill erum við komin að vatnaskilum
hvað varðar þróun arkitektúrs og byggingargerðar,
því félagslegir, tæknilegir, fjárhagslegir og jafnvel
landfræðilegir þættir og náttúrufar kalla á aðlögun
að sífellt flóknara umhverfi.
í þessari tillögu er litið til framtíðar. Hugmyndir sem
hér eru settar fram eiga í stuttu máli sagt að gera
ólíkum einstaklingum hærra undir höfði, samtímis því
sem heildin þarf að hafa til að bera breytanleika og
aðlögun, með áherslu á aðstæður í íslensku þjóðfél-
agi og náttúru. Gert er ráð fyrir að í framtíðinni verði
ólík sambýlisform sífellt meira áberandi. Þetta kallar
á þörf fyrir hlutfallslega meiri áherslu á minnstu sam-
félagseininguna, þ.e. einstaklinginn og rýmisþarfir
hans. Því var ákveðið að teikna 20 mismunandi íbúðir
af umbeðnum stærðum til að sýna vott af þeirri fjöl-
breytni sem þessi framtíðarhugmynd kallar á.
Hvað tæknilega þróun varðar er erfitt að spá um hvað
verður. Því var valið var að leggja upp með kerfi sem
getur tekið við og hefur upp á að bjóða nánast ótak-
markaða möguleika á inn- og úttaki lagna. í samfélagi
sem byggist á fáum undirstöðuatvinnugreinum í
harðbýlu náttúrlegu umhverfi má reikna með
sveiflukenndum efnahag og óstöðugleika - byggðar-
lög stækka og minnka eftir því hvort og hvar atvinnu
er að fá. Eins og staðan er í dag leggja sveitarfélög
oft í miklar fjárfestingar sem óvíst er hvort nýtast allan
sinn fýsíska líftíma. Á sama tíma getur þörf fyrir hús-
næði skotið upp kollinum annars staðar og heildar-
fjárfesting í landinu eykst, engum til gagns.
Hvað einstaklingana sjálfa varðar, þurfa þeir því í
mörgum tilvikum að kasta fé sínu í húseignir sem
hvorki er hægt að flytja, selja né endurvinna. Mark-
miðið í þessu verkefni er að gera tillögu að íbúðum
59
HEBA, HÓLMFRÍÐUR ,HREFNA, ARKITEKTAR