AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Page 69
átt betur við þann heildarsvip sem menn vilja hafa á
girðingunni.
LAUFSKÁLAR (PERGOLA) OG KLIFURGRINDUR
Laufskálar í görðum hafa verið notaðir ( gegnum aldirnar
og þá fyrst og fremst sem stuðningsgrindur fyrir
vínberjaplöntur og til að auðvelda berjatínslu. Auk þess
voru þessar grindur vinsælar sem skuggagjafar til varnar
gegn brennandi geislum sólar. I nútímagörðum hafa slíkar
grindur fengið nýjan tilgang. Þær eru fyrst og fremst
notaðar sem tengiliður milli ólíkra viðverustaða í garðinum.
Auk þess eru þær tilvaldar til að skapa útsýni, gefa skugga
á dvalarstað, sem rýmismyndandi þáttur eða vera klifur-
grind fyrir klifurplöntur s.s. rósir. Klifurgrindur eru tilvaldar
til að mynda skjólveggi með klifurplöntum og byrgja innsýn.
Þéttleiki og gerð klifurplantnanna stjórnar því hversu þéttur
klifurveggurinn kemur til með að verða. Þegar klifurgrindur
eru festar við veggi mynda þær stuðning fyrir klifurplöntur
og eru um leið skraut og prýði veggjarins.
STOÐVEGGIR ÚR TRÉPLÖNKUM
Það er orðið töluvert algengt að stoðveggir, kantar og ker
séu hlaðin úr tréplönkum (4x4“). Veggirnir eru festir við
galvaniseruð rör sem steypt eru niður í jörðina. Jarðvegs-
dúkur er gjarnan settur að veggnum að aftanverðu til að
hindra snertingu viðarins við jarðveginn það minnkar fúa.
Slíkir veggir eru venjulegast ekki hafðir hærri en 50-70 sm.
Hægt er einnig að búa til stoðveggi, kanta og ker úr tré-
plönkum sem víraðir eru saman. Best er að festa bitana í
steypupúða sem komið er fyrir neðanjarðar eða (hæla sem
reknir eru niður. Auðvelt er að mynda rúnnaðar beygjur
með slíkum bitum. ■
GLÆSILEGT
ÚÍV/AL
\f HELLUM
00 jTEIí ium.
Ei lUALAUSm
MÖOULEIKAR.
Hyrjarhöfði 8
sími: 577 1700
Habila
Hljóöeinangrun,
hönnun og gæöi
í brennidepli
Leitiö uppl.hjá
Færanlegir
veggir
Felliveggir
Glerveggir
Glereiningar
Rennihuröir
Sérsmíöaöar
huröir
Ide\
Sundaborg 7-9
104 Reykjavik
Tel: 91-68 81 04
Fax: 91-68 86 72
67