AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1996, Síða 71
Höfundur fyrstuverðlaunatillögunnar var Pálmar Krismundsson og samstarfsmaSur hans var Gunnar B. Stefánsson, teikn-
ingin vinstra megin er af fyrstu hæð, sú til hægri er af fjórðu hæð.
bárust felst í þvl að þær undirstrika ýmist heildina
og samvinnuna eða að þær undirstrika sjálfstæði
hverrar byggingar hvers sendiráðs fyrir sig.
Sú tillaga sem dómnefndin valdi í fyrsta sæti túlkar
heildina út á við, en gefur frelsi til sérkenna inn á við.
Fyrstu verðlaun, að upphæð kr. 350.000 sænskar,
hlutu Alfred Berger og Tina Parkkinen, arkitektar frá
Vínarborg. Önnur verðlaun, kr. 275.000 sænskar
komu í hlut Almvigs og Partners frá Árósum. Þriðju
verðlaun, kr. 174.000 sænskar hlaut Christine Edmair
frá Berlín. Síðan voru tvö innkaup, annars vegar fékk
Albert Speer og Partners frá Frankfurt am Main
100.000 sænskar krónur og hins vegar Erik Nobel
frá Kaupmannahöfn. Fyrstu verðlaunatillagan.byggir
á hugmynd um stóra kopargirðingu eða band sem
heldur utan um allan reitinn og myndar ákaflega
sterka heild út á við, eins konar sameiningartákn.
Innan girðingarinnar eru götur og garðar eins og
skorin í massa. Göturnar eru þannig formaðar að frá
aðalinngangi mjókka þær inn í enda og minna á
ákveðinn máta á leikmynd Palladios f Teatro Olimpico
í Vicenza.
Undirbúningur að seinni hluta samkeppninnar á
íslandi hófst í febrúar 1996 og þá hafði verið ákveðið
að íslenska samkeppnin yrði opin. Dómnefndin
studdist við óskir og kröfur notenda svo og ákvæði
samnorrænu ráðgjafanefndarinnar og höfundaskipu-
lagstillögunnar sem fékk fyrstu verðlaun í fyrri hlut-
anum. Á skiladegi 30. apríl bárust 23 tillögur.
Þau atriði sem dómnefnd lagði aðaláherslu á við gerð
keppnislýsingarinnar voru að keppendur skyldu laga
bygginguna að fyrirliggjandi skipulagi svæðisins
sérstaklega og að innri tengsl þessa skipulags yrðu
fullkomin hvað varðar notkun og ekki síst að kepp-
endur sýndu fram á séríslensk einkenni byggingar-
innar. Hvað innri tengsl og skipulag byggingar varóar
telur dómnefnd að þær tillögur sem skiptu sendi-
ráðinu f fjórar hæðir séu betri en þriggja hæða tillögur
þar sem rými sem tengjast falla betur að starfsemi á
fjórum hæðum. Hvað ytra yfirbragð varðar var það
skoðun dómnefndar að tillögur með einföldu yfir-
bragði aðlöguðust betur umhverfi sendiráðsins held-
ur en þær sem flóknari voru og endurspeglast það í
tveimur bestu tillögunum. Tillögurnar vinna margar
69