AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Blaðsíða 47
» « f
ORFAIR hagsmunaaðilar stjórni
ekki MIÐHÁLENDINU
Margt gott má segja um þær tillögur
sem er aö finna í svæðisskipulaginu
aö Miðhálendi íslands sem nú liggur
frammi til athugasemda. Einn stór
galli er þó þar á gjöf Njarðar. Samvinnunefndin
leggur til að stjórnsýslan yfir miðhálendinu verði í
höndum sveitarfélaganna sem að því liggja. Með
þessu er ráðendum rúmlega 40 sveitarfélaga af
165 fengið allt framkvæmdavald yfir svæðinu sem
er nær hálft ísland. Þetta er slæm tillaga af eftir-
töldum ástæðum:
í fyrsta lagi felst mikið óréttlæti í því að fá 3-4%
landsmanna vald yfir nær helmingi landsins. Það
þýðir að aðrir landsmenn mega þar hvergi koma
nærri. Samt eru það ekki síst íbúar þéttbýlissvæð-
anna hér og í öðrum kaupstöðum, sem mest nota
hálendið.
í öðru lagi er Ijóst að víðáttumikil svæði Miðhálend-
isins eru utan alls eignar- og þá stjórnsýsluréttar í
dag, sbr. allmarga hæstaréttardóma. Skipulagsyf-
irvöld hafa mjög vafasaman rétt til þess að fá örfá-
um mönnum vald yfir þessum eigendalausu svæð-
um. Það er raunar fráleitt og verður ekki gert nema
með nýrri og sérstakri lagaheimild.
í þriðja lagi er það mjög hæpin stefna, svo ekki sé
meira sagt, að fá hagsmunaaðilum vald til að nýta
Miðhálendið. Þeir ættu einmitt manna sístir að fara
með það vald vegna m.a. ofbeitarhættu sem er þar
um að ræða og sem mun vart minnka við óskoruð
völd þeirra þar.
í fjórða lagi er það mjög vafasamt að sveitarfélög-
in 40, sem ætlað er stjórnsýsluvaldið, hafi innan
sinna vébanda þá fagþekkingu sem krefjast verð-
ur til skilvirkrar stjórnsýslu þar. Er hér átt við sér-
fræðikunnáttu á sviði heilbrigðismála, byggingar-
mála og skipulagsmála sem sveitarfélög þessi
verða að annast, fái þau stjórnsýsluvaldið.
VAFASÖM LAGABREYTING
Skorturinn á lagaheimild er í dag sá tálmi sem
kemur í veg fyrir að unnt sé að fara að tillögu Sam-
vinnunefndarinnar og fá hinum fámennu hálendis-
Viö Markarfljót. „Skipulagsyfirvöld hafa mjög vafasaman rétt til þess aö fá örfáum mönnum vald yfir þessum eigenda-
lausu svæðum. Þaö er raunar fráleitt og veröur ekki gert nema meö nýrri og sérstakri lagaheimild.“ (Ijósm. AVS)
45
GUNNAR G. SCHRAM PRÓFFESOR