AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Side 54
SÍGRÚN GÍSLAD9TTIR FORM. SKIPULAGSNEFNDAR í GARÐABÆ
SAMKEPPNI UM deiliskipulag
á HRAUNSHOLTI, Garðabæ
Með samþykkt bæjarstjórnar Garða-
bæjar í apríl 1996 var bæjarverk-
fræöingi Garöabæjar í samráði viö
Arkitektafélag íslands faliö aö undir-
búa samkeppni um deiliskipulag á Hraunsholti.
Þetta svæöi er um 48 ha aö stærð. Þaö afmarkast
af Hafnarfjarðarvegi til suðausturs, Álftanesvegi og
hraunbrún Garðahrauns til suövesturs og fyrirhug-
aöri framlegngingu Vífilsstaðavegar til noröurs og
norðvesturs.
Skipulagsnefnd Garöabæjar fjallaöi síðan um
samkeppnina og samþykkti skilmála fyrir skipulag
svæöisins og afgreiddi drög aö keppnislýsingu í
maí 1996. í dómnefnd voru skipaðir: tilnefndir af
Garöabæ, Árni Ólafur Lárusson, viöskiptafr., form.
Fyrstu verölaun. Höf: Áslaug Katrín Aöalsteinsdóttir
landslagsarkitekt, Gestur Ólafsson, arkitekt og skipu-
lagsfr., Haukur Viktorsson, arkitekt.
dómnefndar, Jón Guömundsson, fasteignasali og
Sigurður Björgvinsson skólastjóri, en tilnefndir af
Arkitektafélagi íslands þeir Pálmar Kristmundsson,
arkitekt og Vilhjálmur Hjálmarson, arkitekt. Ritari
dómnefndar var Agnar Ástráösson, byggingarfull-
trúi og trúnaðarmaður Eiríkur Bjarnason, bæjar-
verkfræöingur.
Skilafrestur tillagna var ákveöinn 1. desember
1996 og áætlaöi dómnefnd aö Ijúka störfum í janú-
ar 1997. Viö lok skilafrests höföu þrettán tillögur
borist. Töldust þær allar uppfylla skilyröi keppninn-
ar. Dómnefnd lauk störfum 27. janúar 1997 og var
niöurstaöa hennar eftirfarandi:
1. verölaun hlaut tillaga þeirra Áslaugar Kartínar
Aöalsteinsdóttur, landslagsarkitekts, Gests Ólafs-
sonar, arkitekts og skipulagsfræðings og Hauks
Viktorssonar, arkitekts. Tæknilega ráögjöf veitti
Þorsteinn Þorsteinsson, verkfræöingur.
í umsögn dómnefndar um þessa tillögu segir: „Þétt
byggö, þar sem byggingar og götur falla vel að
landinu. Tengibraut í jaöri hraunsins er felld burt
þar, en færö ofar og nær miöju skipulagssvæöis-
ins. Gatnakerfi er gott og tillögur aö frágangi gatna-
móta eru athyglisverðar. Útfærsla tillögu aö gatna-
mótum Hafnafjaröarvegar og Álftanesvegar er álit-
leg. Nýting lands er góð, en í efri mörkum. Fjöl-
breytni í fjöleignahúsum skortir. Staöarval dvalar-
heimilis og leikskóla innan svæöisins er gott. Hug-
mynd aö heilsuræktarmiðstöð er athyglisverð.
Einnig hugmynd að samskiptamiöstöö, verslun 0.
fl. innan svæöisins.
Megin einkenni tillögunnar er vel útfært byggða-
skipulag meö litlum sérbýlum, miölægri þjónustu
og skýru gatnakerfi. Áfangaskipting í uppbyggingu
svæöisins með hliðsjón af tengingum er auðveld.
Framsetning tillögunnar er góö og greinargerð vel
unnin, en um margt yfirdrifin."
2. verðlaun hlutu Ögmundur Skarphéöinsson,
arkitekt og Ragnhildur Skarphéöinsdóttir, lands-
lagsarkitekt. Samstarfsmaöur Alistair Macintyre.
52
3. verðlaun hlutu Valdís Bjarnadóttir, arkitekt.
Samstarfsmenn: Alena Anderlova, arkitekt, Guö-
rún Guðmundsdóttir, arkitekt, Gunnar Ingi Ragn-
arsson, verkfr., Sigurður H. Kiernan, verkfr.
Ákveðið var aö ganga til samninga viö höfunda 1.
verðlauna um útfærslu skipulagsins og var samn-
ingur viö þá undirritaður í apríl 1997. Með samn-
ingnum var ákveöiö aö höfundar skyldu Ijúka
skipulagsvinnunni fyrir 1. ágúst 1997 og skyldi þá
liggja fyrir samþykkt deiliskipulag og skipulagsskil-
málar tilbúnir til auglýsingar í samræmi viö skipu-
lagsreglugerð.
Ágætt samstarf tókst meö skipulagsnefnd Garöa-
bæjar, höfundum skipulagsins og bæjarverkfræð-
ingi og má þakka því hversu fljótt og vel tókst aö
Ijúka þessari skipulagsvinnu. Skipulagsnefnd gaf
sér samt góðan tíma til þess aö fjalla um skipulag-
iö á reglubundnum fundum. Auk þess var farin
skoöunarferð meö ráögjöfum um höfuðborgar-
svæöiö, helstu nýbyggingarsvæöi skoöuö og reynt
aö draga lærdóm af því hvernig tekist haföi til með
deiliskipulag og skipulagsákvæöi hjá nærliggjandi
sveitarfélögum.
Meöan á verkinu stóð var óskaö eftir talsverðum
breytingum á skipulaginu, þótt megin hugmynd
höfunda, um þétta, lágreista byggö meö miölægri
þjónustu, hafi verið haldiö í öllum aðal atriöum.
Hiö nýja deiliskipulag á Hraunsholti gerir ráð fyrir
samtals 410 íbúðum. Af þeim eru 131 íbúö í ein-
býlishúsum, 34 í parhúsum, 117 í raðhúsum/keðju-
húsum og 128 í fjölbýli.
Á Hraunsholti eru talsvert stór göngu- og útivistar-
svæöi innan byggöarinnar og mjög athyglisverö
klapparsvæði, sem ákveðiö hefur verið aö vernda.
Einnig er fyrirhugaö að nota þaö grjót sem nú ein-
kennir svæöiö viö mótun landslags og gerö hljóö-
mana. Helsta klapparsvæöiö veröur hluti af aðal
göngustíg sem liggur um svæöiö frá norðri til suö-
urs og tengist ráögerðri félagsmiðstöð í miðhverfi.
Garöabær vill leggja áherslu á aö mótun og út-
færsla þessara svæöa veröi sem vönduðust og
hefur verið ákveöiö aö fela höfundum skipulagsins
frekari útfærslu opnu svæöanna.
Fyrsti áfangi þessa nýbyggingarsvæðis á Hrauns-
53
holti kemur til úthlutunar seinna á þessu ári, en
svæöiö verður aö teljast meðal eftirsóknarverö-
ustu nýbyggingarsvæöa á höfuðborgarsvæðinu.
Þarna er um einstaklega gott byggingarland aö
ræöa. Staðsetning, lega landsins og gerö skipu-
lagsins býöur upp á fjölbreytilegt útsýni.
Aðliggjandi svæöinu er strandlengjan og Gálga-
hrauniö sem ásamt góöu göngustígakerfi gefa
mikla möguleika til útivistar.
Leitast var eftir aö hafa íbúðabyggðina sem fjöl-
breyttasta til þess aö koma til móts viö þarfir sem
flestra. Fjölbýlishúsin veröa aöeins tveggja hæöa.
Rúmlega þriöjungur íbúðanna veröur í par- og rað-
húsum, en þaö er sú gerö húsnæöis sem bæöi
eldra og yngra fólk sækist eftir. Þarna er flest þjón-
usta til staðar, vegatengingar góöar og stutt aö
sækja atvinnu í nærliggjandi sveitarfélög. ■
Hndanlegt skipulag.