AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Side 20
Meö þessu er átt viö aö auðvelt sé aö komast aö
byggingahlutum til viðhalds en jafnframt aö þaö
komi ekki niður á notkunar- og feguröargildi. Hús-
eigendur hafa þaö viöhorf til viðhalds eigna sinna
aö því sé sinnt jafnt og þétt allan líftíma eignarinn-
ar. Viðhald mannvirkja er markvisst og fyrirbyggj-
andi frá upphafi.
Byggingariönaöurinn notar umhverfisvæn efni, aö-
feröir og tækni sem skilar góöum mannvirkjum á
eölilegum tíma.
ÍSLENSKUR BYGGINGAR- OG VERKTAKA-
IÐNAÐUR Á ALÞJÓÐLEGUM MARKAÐI
Útflutningur á íslensku hugviti, handbragöi, hráefn-
um og fullunnum byggingahlutum hefur aukist
verulega. Þekking annarra landa hefur aukist á ís-
lenskum byggingarvörum og handbragði sem hef-
ur leitt til aukins útflutnings íslenskra verktaka um
allan heim. Þetta hefur m.a. orðið til þess aö ís-
lendingar eru nú ráögjafar og framkvæmdaaðilar
um allan heim viö vega- og virkjanaframkvæmdir,
hafnagerö, byggingu iönaöarhúsnæöis, frárennsl-
is- og umhverfismál sveitarfélaga, hitaveituverk-
efni og aðrar framkvæmdir í löndum þar sem svip-
ar til íslands. Þá hefur þessi aukna þekking ann-
arra landa á íslandi leitt til þess aö komist hefur á
aukiö samstarf viö erlend fyrirtæki sem hefur skil-
að sér í því aö íslenskir bygginga- og jarövinnu-
verktakar eru nú starfandi sem aöal- og undirverk-
takar víöa um heim.
STÖRF í BYGGINGARIÐNAÐI ERU EFTIR-
SÓKNARVERÐ VEGNA GÓÐRA LAUNA OG
AÐBÚNAÐAR
í kjölfar aukinnar framleiðni í fyrirtækjum hafa
launakjör í bygginga- og mannvirkjagreinum batn-
aö þannig að störf í slíkum fyrirtækjum þykja eftir-
sóknarverö. Sveigjanleiki í launakerfum og vinnu-
tilhögun hefur skapaö vinnufriö og komið hefur
veriö á ábataskiptakerfum sem hvatt hafa til aukins
árangurs á öllum sviöum. Samkomulag um þessi
atriði er gert í vinnustaðasamningum sem geta
veriö breytilegir eftir eðli og aöstæöum. Menntun
og kjör ófaglæröra hafa verið stórbætt. Þaö hefur
leitt til þess aö vinnuafl er stööugra og fyrirtækin
geta tekist á viö erfiðari verkefni en áöur. í kjölfar
aukinna upplýsinga og fræöslu um aðbúnað og ör-
yggi á vinnustöðum hefur slysum fækkaö mjög.
Verkkaupar, byggingafyrirtæki og byggingariðnað-
armenn vinna saman aö gerö áætlana um aöbún-
aö og öryggi í samræmi viö nýjar reglur Vinnueftir-
lits ríkisins og samþykktir EES. Skylda er aö hver
og einn einstaklingur sé í lífeyrissjóöi en frelsi ríkir
um þaö aö velja í hvaöa viöurkenndum sjóöi viö-
komandi vill vera eöa annað viöurkennt sparnaö-
arform.
HVAÐ ÞARF TIL?
GÓÐ STARFSSKILYRÐI
Sem samkeppnisgrein nýtur byggingariönaöurinn
sömu starfsskilyröa og þjónustu og aðrar greinar.
Málefnum byggingariönaöarins er stjórnaö af einu
ráöuneyti, byggingaráöuneyti, sem einnig hefur
með höndum sveiflujöfnun verkefna hjá opinber-
um aöilum. Opinberar þjónustustofnanir sem
þjóna byggingariönaöinum eru tæknivæddar og
beita nýjustu tækni viö stjórnun. Viðhorf stjórn-
valda og almennings gagnvart byggingariðnaöi
eru jákvæö og hann nýtur skilnings sem ein af und-
irstööuatvinnugreinum þjóðarinnar.
GOTT FJÁRHAGSLEGT REKSTRAR-
UMHVERFI FYRIR BYGGINGAFYRIRTÆKI
Vextir í byggingariönaöi eru sambærilegir og í ná-
grannalöndunum. Þaö hefur oröið til aö styrkja
rekstrarstöðu fyrirtækja og koma rekstrinum í betra
horf sem aftur hefur leitt til þess aö byggingafyrir-
tæki eru áhugaverður fjárfestingarmöguleiki á
hlutabréfamarkaöi. Fyrirtækjum í byggingariðnaði
veröur gert auöveldara fyrir aö fjármagna nýbygg-
ingar, bæöi íbúðar- og atvinnuhúsnæöi. Lánstími
miðast viö líftíma bygginganna og getur numiö allt
aö 100% af byggingarkostnaði.
ENDURSKOÐUN SKATTLAGNINGAR Á BYGG-
INGARIÐNAÐ
Fasteignaskattar eru engir á íbúðarhúsnæöi né
heldur vörugjald af byggingarefni og tækjum. Virö-
isaukaskattur hefur lækkaö í 10-14% og opinberir
aöilar misnota ekki lengur aöstöðu sína og greiöa
vsk. af vinnu starfsmanna sinna. Reglur um álagn-
ingu viröisaukaskatts eru breyttar þannig aö bygg-
ingafyrirtæki greiöa vsk. af raunkostnaöi vinnu í
stað tilbúinnar álagningar skattstjóra. Tekiö hefur
veriö á skattsvikum í byggingariönaði með þeim
hætti aö þau þekkjast nánast ekki. Viöhaldskostn-
aöur fasteigna er frádráttarbær frá sköttum og
refsingar viö skattsvikum eru mjög þungar.
RÍKI OG OPINBERAR STOFNANIR STUNDA
EKKI LENGUR STARFSEMI Á SAMKEPPNIS-
MARKAÐI