AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Page 28

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Page 28
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR, PINGKONA KVENNALISTANS HUGSA ÞARF DÆMIÐ TIL ENDA Mannvirkjagerö á íslandi er efni, sem skoöa má frá mörgum hliðum. Á þaö má líta meö um- hverfissjónarmið í huga, bæöi fagurfræðileg og meö tilliti til náttúruverndar, og einnig má hafa í huga byggðasjónarmið, félagsleg sjónarmiö eða hagræn. Þá má skoöa þaö frá sjónarhóli skatt- greiðandans eöa meö hagsmuni atvinnulífs og viö- komandi atvinnugreina í huga. Almennt séð má segja, aö afskipti stjórnvalda af atvinnurekstri eigi fyrst og fremst aö vera fólgin í því aö stuðla aö markvissum rannsóknum og þró- unarstarfi, þau eigi aö skapa skilyrði meö upplýs- ingaöflun og ráögjöf, styöja markaðsleit og veita aðstoð viö fjármögnun. Þau eiga ekki aö mismuna atvinnugreinum - sem þau reyndar gera mjög mik- ið sbr. mismunandi tryggingagjald og skattþrep, niöurgreiöslur og stuöning af ýmsu tagi - og þau eiga aö leitast við aö haga skattlagningu þannig, aö atvinnugreinarnar búi ekki viö lakari skilyrði en í samkeppnislöndunum. Hins vegar eiga þau svo að gæta hagsmuna skattgreiöenda, gæta sparn- aðar og hagkvæmni í framkvæmdum hins opin- bera og framkvæma í samræmi viö raunverulegar þarfir. FRAMKVÆMDASAGAN LYGASÖGU LÍKUST Þaö er vonum seinna, aö kallaö er eftir pólitískri stefnu í mannvirkjagerö, því þessi þjóö hefur veriö svo önnum kafin aö framkvæma og fjárfesta síö- ustu áratugina, aö hún hefur ekki mátt vera að því aö hafa stefnu í þeim efnum. Kröfurnar hafa verið endalausar, og þarfir og markmið hafa meira og minna verið skilgreind jafnóöum og raunar veriö sí- breytileg. Þaö er lygasögu líkast, þegar litiö er yfir sögu framkvæmda á þessu landi síöustu áratugi: Virkjanir, hafnir, vegir og brýr, flugvellir, opinberar stofnanir, íbúöarhúsnæöi og atvinnuhúsnæöi, allt hefur þetta veriö unniö meira og minna eftir hend- inni án ítarlegra skipulagsáætlana og án þess aö langtíma sjónarmiö væru lögö til grundvallar. Markmiö í framkvæmdum hins opinbera viröist hafa verið aö freista þess aö gera alla ánægöa, mæta kröfum allra aö einhverju leyti, um vegar- spotta hér, hafnargarö þar, skóla, íþróttahús og heilsugæslustöö á hverjum staö. Niöurstaöan hef- ur orðið sú, aö alltof margar framkvæmdir hafa ver- iö í gangi í einu, þær hafa tekið of langan tíma og þar meö orðið dýrari en þær þurftu aö vera og jafn- vel verið orðnar úreltar áöur en þær komust í gagn- iö. STEFNUBREYTING í MIÐJUM KLÍÐUM Frægt dæmi um slíkt fyrirhyggjuleysi er mannvirk- iö mikla í Krýsuvík, þar sem menn hófu fyrir all- mörgum árum byggingu skóla fyrir börn, sem af einhverjum ástæöum höföu misst fótanna í lífinu og hrakist úr venjulegum skóla. Byggingin tók svo langan tíma, aö menn skiptu um skoðun í miðjum klíöum, og þarfir og markmið lentu á hrakhólum. Þannig stóö byggingin hálfkláruö árum saman, þangað til samtök áhugamanna sáu leið til aö nýta kumbaldann, sem enn er reyndar ekki fullgerður, enda var hann farinn aö skemmast af notkunar- leysi. Á nokkurra ára bili byggðu menn heimavist- arskóla um allt land, einn skóla fyrir hvern þing- mann var stundum sagt, en um leið var veriö aö bæta vegakerfið, og heimavistarskólarnir voru vart komnir í gagniö, þegar stefnan varö sú aö keyra J 26

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.