AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Qupperneq 33
vægu tengsl menntunar og atvinnulífs. Markviss
uppbygging atvinnulífsins veröur aldrei án þess að
unnt sé aö byggja á traustum grunni menntunar.
Því leggur Framsóknarflokkurinn áherslu á beina
þátttöku aöila vinnumarkaöarins í mótun mennta-
stefnu og aö þátttaka atvinnulífsins í rannsóknar-
og þróunarstarfsemi veröi efld. Meö þessu móti
nýtast menntakerfið og stofnanir þess betur til aö
auka framleiöni í íslensku atvinnulífi. Við siglum nú
í gegnum skeið breytinga í atvinnulífinu, breytinga
sem fela í sér flóknara og tæknivæddara at-
vinnustig en tíðkaðist meðan vinnsla og verö-
mætasköpun voru í lágmarki. í þessum breyting-
um gegnir menntun sem fjárfesting lykilhlutverki.
Með þessum aðgerðum leggur Framsóknarflokk-
urinn grunn aö eðlilegri framþróun íslensks at-
vinnulífs sem er forsenda fyrir eflingu atvinnuþró-
unar og aukinni sókn í mannvirkjagerð.
Skortur á áhættufé hefur staðið eðlilegri atvinnu-
þróun fyrir þrifum um langt árabil. Aukið áhættufé
er fyrirtækjunum nauðsyn til nýsköpunar og þeirrar
útrásar sem framleiðsluaukning þeirra mun í
stöðugt ríkari mæli byggja á á komandi árum.
Framsóknarflokkurinn mun því beita sér fyrir breyt-
ingum á þessu.
AUKIÐ ÁHÆTTUFJÁRMAGN FÆST MEÐ:
Bættu skattaumhverfi, afskriftum tapaðs hlutafjár,
aukinni þátttöku lífeyrissjóða, breytingum á stofn-
anakerfi ríkisins, breyttu hlutverki iðnþróunarsjóðs,
öðrum aðgerðum.
Framsóknarflokkurinn mun beita sér fyrir breyting-
um á skattalöggjöfinni til að örva áhuga fyrirtækja
og almennings á að fjárfesta í íslensku atvinnulífi.
í þessum tilgangi vill Framsóknarflokkurinn að fyr-
irtækjum og einstaklingum verði leyft að draga tap-
að hlutafé frá tekjum áður en kemur að skattlagn-
ingu. Almenningur verði hvattur með skattaívilnun-
um til að leggja hlutafé í lítil og meðalstór fyrirtæki.
Jafnframt verði leitað samkomulags við lífeyrirs-
sjóðina um að sett verði löggjöf um að þeir verji
hluta af árlegu ráðstöfunarfé sínu til hlutafjárkaupa
í fyrirtækjum.
í þeim tilgangi að styrkja atvinnustarfsemina og
efla nýsköpun leggur Framsóknarflokkurinn til að
gerð verði sú meginbreyting að starfsemi Byggða-
stofnunar, atvinnuleysistryggingarsjóðs og at-
vinnuráðgjafa verði sameinuð í Byggða- og at-
vinnuþróunarstofnun, sem væri alhliða atvinnuþró-
unarstofnun. Byggðastofnun verði lögð niður í nú-
verandi mynd og eigið fé hennar notað til að koma
á fót atvinnuþróunarstofnun er lúti sfjórn manna
með víðtæka reynslu og þekkingu úr atvinnulífinu.
Meðal hlutverka þessarar nýju stofnunar verði að
stuðla að eflingu nýsköpunar í atvinnulífinu með
áhættufjármagni og með veitingu ábyrgða á lánum
til fyrirtækja. Einnig að eiga frumkvæði að sam-
starfi fyrirtækja í sömu grein um samvinnu um
vöruþróun, gæðamál, markaðsöflun og útflutning.
BREYTT HLUTVERK IÐNÞRÓUNARSJÓÐS
Framsóknarflokkurinn vill breyta starfsemi Iðnþró-
unarsjóðs. Iðnþróunarsjóður varð fyrr á þessu ári
að fullu eign íslendinga. Framsóknarflokkurinn
hefur í tilefni þess lagt á það ríka áherslu að Iðn-
þróunarsjóður hverfi að mestu frá hefðbundnum
lánveitingum sem byggja á fasteignaveðum, en
verji í þess stað fé sínu til fjárfestingar í íslensku at-
vinnulífi. Iðnþróunarsjóður verði áhættufjármagns-
sjóður sem fjárfesti í innlendum fyrirtækjum, bæði
starfandi og nýjum fyrirtækjum. Framsóknarflokk-
urinn vill efla aðgengi íslenskra fyrirtækja að
áhættufjármagni enn frekar. Til greina kemur að
Iðnþróunarsjóður, Iðnlánasjóður og Fiskveiðasjóð-
ur verði allir gerðir að hlutafélagi sem veitti arði af
stofnfé sínu til eins áhættufjármögnunarsjóðs,
eins konar fjárfestingarbanka. Sennilega yrði enn
„Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á
hin mikilvœgu tengsl menntunar og atvinnu-
lífs. Markviss uppbygging atvinnulífsins
verður aldrei án þess að unnt sé að byggja á
traustum grunni menntunar. “
betra ef Stofnlánadeild landbúnaðarins gæti fylgt
með í þessari þróun svo allir atvinnuvegir landsins
gætu setið við sama borð við öflun rekstrar- og
áhættufjár fyrir starfsemi sína. Hvort sem af því
getur orðið eða ekki leggur Framsóknarflokkurinn
ríka áherslu á að skapa íslensku atvinnulífi bætt
aðgengi að auknu áhættufjármagni á hóflegum
kjörum til langs tíma. Framsóknarflokkurinn telur
að aðeins þannig verði vaxandi og arðvænlegum
fyrirtækjum á viðunandi hátt gert kleift að takast á
við ný verkefni og hefja nýja sókn.
AÐRAR AÐGERÐIR
Auk þeirra úrræða sem rætt hefur verið um hér að
framan hefur Framsóknarflokkurinn bent á fjölda-
mörg önnur atriði er grípa þarf til í þeim tilgangi að
efla atvinnulíf landsins. Við höfum mörg hver horft
31