AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Side 34

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Side 34
upp á góöar hugmyndir og áhugaverða vöru sem frumkvöðlar landsins hafa komið fram með, en síð- an endað niðri í skúffu án þess að verða nokkru sinni að arðvænlegri söluvöru. Framsóknarflokkur- inn hefur því lagt áherslu á stuðning við frumkvöðla í atvinnulífinu og vöruþróun á öllum stigum. Slíkur stuðningur þarf að vera markviss og samfelldur þar sem ekki hvað síst er stefnt að því að skapa betri aðstæður til stofnunar nýrra fyrirtækja. Mikil- vægasti þátturinn er þó sala vörunnar og vill Fram- sóknarflokkurinn leggja sérstaka áherslu á mikil- vægi þess þáttar nýsköpunarinnar. Framsóknar- flokkurinn hefur m.a. varpað fram þeirri hugmynd að komið verði á samstarfi atvinnulífs og ríkisvalds við sérstakt átak í markaðs- og sölustörfum erlend- is. Hér að framan hef ég drepið á nokkur atriði úr stefnu Framsóknarflokksins er tengjast ofan- greindu umræðuefni. í umfjöllun minni hef ég fyrst og fremst lagt áherslu á tengsl atvinnuþróunar og mannvirkjagerðar við hin ytri efnahagsskilyrði og ríkisfjármálin almennt. Þótt segja megi að sam- band þessara þátta sé nokkuð ráðandi um fram- gang mannvirkjagerðar væri það of mikil einföldun að álíta sem svo að áhrifaþættir mannvirkjagerðar væru ekki fleiri og flóknari. Reyndar væri það til- Aukin sókn í mannvirkjagerð byggist fyrst og fremst á traustum og stööugum efnahagslegum aðstæðum í þjóð- félaginu öllu, sem eru forsenda bættra almennra starfs- skilyrða og eölilegs framboðs á áhættufé. Afleiðing þessa er að fjárfestingar í atvinnustarfsemi aukast, en á þeim byggist öflugt og framsækið atvinnulíf. Afleiðing þessa alls er að til veröa þarfir sem krefjast lausna sem margar hverjar felast í auklnni mannvirkjagerð. gangslaust að fjalla um pótitíska stefnumótun í mannvirkjagerð eina og sér án þess að gæta sam- hengis við áhrifaþætti hennar. Slíkt væri mark- leysa vegna þess að mannvirkjagerð er ekki til- gangur í sjálfu sér. Mannvirkjagerð er afleiðing eða hluti af lausn til að ná tilteknu markmiði. Þannig tengist mannvirkjagerð pólitískri stefnumótun allra flokka á nánast öllum sviðum. Nærtækasta dæmið um þetta er stefna um nýtingu auðlinda landsins, bæði vatnsorku og jarðvarma. Sama gildir um landbúnaðar-. og fiskveiðistefnu. Einnig byggðastefnu sem hefur áhrif á ákvarðanir um t.d. vegagerð og hafnargerð, sem eru ekki ómerkilegri mannvirki en hvað annað. Jafnvel mennta- og menningarstefna stjórnmálaflokkanna hefur áhrif á mannvirkjagerð, ekki einungis ákvörð- un um byggingu skólahúsnæðis, heldur einnig það mat sem lagt er á hin uppeldislegu áhrif sem list- rænar áherslur í mannvirkjagerð hafa á nemendur og almenning. Mörg mannvirki eru daglega fyrir augum fólks. Hús eru hús, en leggjum við nægi- lega rækt við hið listræna gildi húsagerðar og menntun þeirra er skapa mannvirkið? Einnig má benda á aðgerðir félagsmálaráðherra varðandi sveigjanlegra fyrirkomulag húsbréfa og lækkun viðmiðunarmarka um lánshæfi vegna við- halds eldra húsnæðis. í aðgerðum þessum felst pólitísk stefna um mannvirkjagerð. Þannig mætti lengi telja, en það verður látið bíða betri tíma. Framsóknarflokkurinn hefur í stjórnmálaályktunum sínum lagt grunn að fastmótaðri atvinnumála- stefnu. Sú stefna byggist fyrst og fremst á stöðug- leika í efnahagsmálum þjóðarinnar. Okurvextir og óðaverðbólga skulu gerð útlæg úr íslensku efna- hagslífi og ytra umhverfi atvinnulífsins bætt til efl- ingar nýrri sókn. í þessum orðum hef ég einmitt reynt að leggja áherslu á þennan grunn sem hin pólitíska stefnumótun í atvinnumálum og mann- virkjagerð hvílir á. Að lokum langar mig til að birta litla mynd sem ég rissði upp til skýringar. Tilgangur þess er að draga saman á örstuttan hátt stefnu Framsóknarflokks- ins í mannvirkjagerð. ■ (Byggt á erindi, sem flutt var á Mannvirkjaþingi 1995 - leturbreyt. AVS).

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.