AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 63

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Síða 63
stefnumörkun, sem er hinn nauðsynlegi undanfari skipulagsvinnu, er hann með því að lýsa því að vinnan sé ekki komin það langt að hægt sé að samþykkja hana sem skipulag. Stefán Thors vitnar í lok greinar sinnar í stefnumót- un ríkisstjórnarinnar frá í febrúar 1997. Þar segir m.a. um vinnu á sviði svæðisskipulags: „Unnið verði í samræmi við vinnu sem Alþingi og ríkis- stjórn marka um landsskipulag". Hér kemur glöggt fram að stjórnvöld ætlast til að vinna á svæðis- skipulagsstigi fari að stefnumörkun réttkjörinna stjórnvalda. Á ráðstefnunni í september um um- rætt svæðisskipulag spurði Jakob Björnsson f.v. orkumálastjóri hvort Samvinnunefndinni hefði ekki dottið í hug að leita til réttkjörinna stjórnvalda og stofnana þeirra um stefnumótun íslenskra stjórn- valda, t.d. í orkumálum, verndunarmálum og ferðamálum. Fulltrúi nefndarinnar á ráðstefnunni, Stefán Skaptason, úrSuður-Þingeyjarsýslu, las þá úr starfsreglum sem umhverfisráðherra setti nefndinni að fara eftir. Þar segir með skýrum orð- um að nefndin skuli sjálf ákveða forsendur skipu- lagsvinnunnar og er ekkert tekið fram að hún skuli taka upp og fara eftir stefnumótun íslenskra stjórn- valda, t.d. í orku- og ferðamálum. ERU LANDSLAGSHEILDIR MIKILVÆGARI EN ORKUVINNSLUSVÆÐI? Hin umrædda skipulagstillaga var unnin af þremur landslagsarkitektum eins og fyrr var sagt. Þeirra aðferðafræði er að flokka land niður eftir landslagi eða landslagsheildum. Þetta segir Stefán Thors, að hafi gefið „mjög góða raun og auðveldaði nefndinni að átta sig á samanburði milli svæða ....". Þegar litið er til annarra þátta en landslags- heilda á þessi skipting á landi alls ekki við, saman- ber eftirfarandi athugasemd dr. Valgarðs Stefáns- sonar, deildarstjóra á Orkustofnun: „Gallinn við þessa skiptingu í deilisvæði er sá helstur að mis- munandi málaflokkum er gert mishátt undir höfði við skiptinguna. Sú skipting sem notuð er gengur fyrst og fremst út frá verndarsjónarmiðum en lítið sem ekki tekið tillit til nýtingarmöguleika auðlinda. Árangur þessa vinnulags er í mörgum tilvikum sá að skerpa á hagsmunaárekstrum milli nýtingar auðlinda og verndarsjónarmiða. Auðlindanýting tekur aðeins til mjög lítils hluta hvers deilisvæðis, og með því að taka mið af auðlindanýtingu við skiptingu í deilisvæði mætti í mörgum tilvikum losna við þá hagsmunaárekstra sem liggja fyrir í núverandi skipulagstillögu. Þetta er svo veiga- mikill galli á núverandi skipulagstillögu að hann er talinn nægilegur til þess að hafna skipulagstillögunni í heild og láta gera aðra skipulagstillögu þar sem tillit er tekið til auð- lindanýtingar við skiptingu lands í deilisvæði". í þessu samhengi verður að hafa í huga að það að láta verndunarsjónarmið vera ráðandi er afgerandi landnýtingarstefna. Þessa gætir mjög í hálendis- skipulaginu, t.d. með tveimur flokkum verndunar- svæða sem ná yfir 90% hálendisins. Og það að staðfesta svæðisskipulag þar sem 90% lands er skilgreint sem verndarsvæði er afdrifarík ákvörðun um landnýtingu sem trauðla verður breytt síðar meir, og útilokar því nýtingu auðlinda á viðkomandi svæðum um nánast alla framtíð. Þetta sýnir að verðmætamat náttúruverndarmanna réð mestu í grunnnálgun skipulagsvinnunnar, en ekki sjónar- mið þeirra sem nýta vilja orkuauðlindirnar. Þetta staðfestist einnig sem viðhorf skipulagsstjóra þar sem hann segir með vandlætingartóni í grein sinni: „í fyrsta lagi er þess að gæta að tillögur og hug- myndirTrausta miðast allar við það að byrjað verði á því að tryggja orkunýtingu nægjanlega rúm svæði .... Með því hafa hápólitískar ákvarðanir verið teknar af tæknilegum ráðgjöfum". Um þetta er það að segja að það er hlutverk sérfræðinganna að benda á og skilgreina möguleika. Með þessu er ekki sagt að það eigi alfarið að fara eftir þessum skilgreiningum. Þær geta vikið fyrir öðrum sjónar- miðum þegar stjórnvöld telja að það sé rétt. Að halda því fram að tæknilegir ráðgjafar taki þessar ákvarðanir er rangt. FRAMSETNING VALKOSTA í FRAMTÍÐAR- SKIPULAGI Almenna reglan í gerð skipulagsáætlana er að framtíðin er sýnd sem einn möguleiki næstu 20 ár, en þá landnýtingu, sem kemur eftir 20 ára tímabil- ið, á að sýna með köflóttri merkingu og vegi með brotnum línum. í umfjöllun sinni um þetta mál tek- ur Stefán Thors upp atriði sem nefnt var sem sögu- leg þróun skipulagsmála, þ.e. að áður fyrr hafi „skipulagselíta" ráðið mjög miklu í gerð skipulags á íslandi. í umfjöllun Stefáns gætir þess misskilnings að hér sé átt við núverandi ástand. Þess vegna hljómar útlegging hans á þessu allankannalega þegar hann segir: „Að halda því fram að einhver óskilgreind „skipulagselíta, leggi fram skipulagstil- lögu sem einu mögulegu tillöguna fyrir hlutaðeig- andi sveitarfélag eða svæði án samráðs við nokkurn, lýsir aðeins mikilli vanþekkingu á skipu- 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.