AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1997, Page 89
handa um aö innleiða vöruþróunarsamninga, sem eru
bindandi, samningsbundin samvinna opinbers aöila og
fyrirtækis um þróun nýrrar vöru, lausnar eöa þjónustu
sem opinber aöili þarf á aö halda og ekki er til á markaði.
Slíkir samningar eru kostnaöarlítill stuöningur viö at-
vinnusköpun og eru þekktir í nágrannalöndum.
2. KOMA Á FÓT HÖNNUNARSTÖÐ
Aö koma á fót öflugri hönnunarstöö sem heföi þaö meg-
inmarkmið aö örva og styöja viö framgang hönnunar í ís-
lensku atvinnulífi. Slík stöö gæti verið upplýsinga- og
fræðslumiðstöð fyrir hönnuöi, fyrirtæki, fjölmiðla og neyt-
endur og í sýningarsölum hennar gætu menn skoðaö úr-
val íslenskra hágæöavara. Vísir aö slíkri stöö hefur ver-
iö starfandi sem tilraunaverkefni undanfarin ár á vegum
Samtaka iönaöarins og iðnaðarráðuneytisins en þeirri
tilraun er nú lokið. íslenskir hönnuðir hafa mikinn áhuga
á þvi, aö sem fyrst verði komið á fót varanlegri og öflugri
íslenskri hönnunarstöö í hentugu húsnæöi og meö eigin
starfsmenn til aö sinna þeim ótal verkefnum sem bíöa
úrlausnar.
3. STOFNA NÚTÍMA HÖNNUNARSAFN
Jafnframt er löngu oröiö tímabært aö íslendingar komi
sér upp nútíma listiðnar- og hönnunarsafni meö því
áhugaveröasta í íslenskri hönnun frá þessari öld. Hætt
er viö aö margir góöir hlutir fari forgöröum, ef ekkert
veröur aö gert. Slíkt safn gæti m.a. verið mjög áhuga-
vert fyrir alla þá sem vilja kynnast íslenskri hönnun og
handverki á þessari öld og ómetanlegt fyrir námsmenn.
Aö frumkvæöi Form ísland hefur nefnd á vegum
menntamálaráöuneytisins lagt til aö slíku safni veröi
komiö á laggirnar hiö fyrsta og er nú beðið ákvöröunar
ráöherra.
4. KOMA Á FRÆÐSLU UM ARKITEKTÚR OG HÖNN-
UN Á ÖLLUM SKÓLASTIGUM
Staöa hönnunar í íslenska menntakerfinu er afar veik og
eiginlegt hönnunarnám er nánast ekki til í landinu. Stór-
efla þarf fræöslu um hönnun á öllum skólastigum í skól-
um landsins. Vísir að arkitektanámi er kominn meö
stofnun ísark eöa íslenska arkitektúrskólans. Efla þarf
listiðnaðar- og hönnunarnám viö væntanlegan Listahá-
skóla íslands sem heföi sterk tengsl viö íslenskt atvinnu-
líf svo og viö erlenda hönnunarskóla. Jafnframt þyrfti
bæta iön- og verkmenntun í landinu, sem hefur fariö
hrakandi undanfarna áratugi.
Vonandi tekst íslenskum stjórnvöldum aö marka stefnu
í atvinnu-og menningarmálum sem nýtir sér arkitektúr
og hönnun, þessa óþrjótandi auðlind og uppsprettu
nýrra hugmynda og framleiösluvara, nú þegar áriö 2000
er á næsta leiti og siglt er inn í nýja öld. ■
Hönnun: Spaksmannsspjarir.
Hönnun: Sigrún Ó. Einars-
dóttir og Soren S. Larsen.
Hönnun: Þorsteinn Geirharösson.
87