AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Qupperneq 18
reyndist það sveitarstjórnarmönnum vel að hafa
ekki bundið hendur sínar með því að skrifa upp á
eitthvert svæðisskipulag, hversu útþynnt sem það
nú hafði verið. Málið hefur aldrei verið útkljáð með
samkomulagi um annað en að vera áfram ósam-
mála.
Niðurstaða af starfi skipulagsstofu höfuðborgar-
svæðisins, þegar hún var lögð niður árið 1987, var
sú að ekkert svæðisskipulag var samþykkt eða
staðfest. Eiginlega nákvæmlega sama útkoman
og fimmtán árum áður, þegar samvinnunefndin
sáluga lagði fram sínar tillögur að svæðisskipulagi
fyrir höfuðborgarsvæðið. Ekki verður þó haldið
fram að öllum þeim fjármunum, sem fóru í rekstur
skipulagsstofunnar hafi verið kastað á glæ. Marg-
ar góðar tillögur og hugmyndir eiga til hennar að
telja og allmikill gagnagrunnur varð til vegna vinn-
unnar við gerð skipulagstillögunnar. Fræðslu-
gildið, sem skipulagsstofan hafði á sínum tíma,
var umtalsvert og enn eru greinar og sérrit frá stof-
unni lesin. En hvort sveitarstjórnarmenn hafa lært
eitthvað um pólitískt raunsæi er vandara um að
segja.
Undanfarinn áratug hefur allt það, sem fellur
undir svæðisskipulag á höfuðborgarsvæðinu,
verið unnið undir hatti SSH. Hafa þar komið
saman embættismenn og sérfræðingar sveitar-
félaganna og fjallað um sérsvið sín og einnig hefur
verið starfandi sérstök stýrinefnd. Þó ekki hafi
verið stefnt að staðfestu skipulagi með samvinn-
unni þá hefur samt sem áður náðst árangur á
ýmsum sviðum. Dæmi um samtök, sem hafa
gengið, eru staðfesting á vatnsvernd á svæðinu,
stofnun Almenningsvagna, rekstur vörslugirðingar
og akstur fatlaðra.
AÐ LOKUM
Hér að framan hefur verið greint í stórum drátt-
um frá sögu svæðisskipulags á höfuðborgarsvæð-
inu. Helstu upplýsinga um sögu þessa hefur verið
aflað í greinargerðum með tillögum samvinnu-
nefndarinnar svo og tillögum skipulagsstofunnar.
Annað er að verulegu leyti byggt á minni höfundar.
Aðrir en höfundur þessara lína myndu hafa ritað
um málið á annan veg og verður ekki við því gert.
En hver er nú annars niðurstaðan af þessari
samantekt? Hún er, og ber höfundur einn ábyrgð
á þessu áliti: Hversu lágur samnefnari, sem
fundinn verður um skipulag á höfuðborgar-
svæðinu, þá er hann samt ekki nógu lágur til að
sveitarstjórnarmenn geti skrifað undir af ótta við
að binda hendur sínar og gefa sveitarstjórnarmön-
num annarra sveitarfélaga neitunarvald um ein-
hver meint innri mál. Ef eingöngu er litið til skipu-
lagsmála rifjast upp það sem frægur maður sagði
þegar hann var spurður um hvað honum fyndist
um Sameinuðu þjóðirnar: ,,Mér finnst þær ekki
vera mjög sameinaðar". ■
SÍMI
553 4236
FAX
588 8336
GLOFAXIHF.
ÁRMÚLA42 108 REYKJAVÍK, ICELAND
ELDVARNARHURÐIR,
BÍLSKÚRS, IÐNAÐAR-
OG ÖRYGGISHURÐIR
• MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
• HRINGDU OG FÁÐU UPPLÝSINGAR
ELDVARNARHURÐIR
I WW I Híl
16