AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Síða 22
SIGFÚS SIGURÐSSON
sveitarstjórnunum á svæðinu. Áður en vinnunni
við svæðisskipulagið er lokið verða sveitarstjórn-
irnar að sammælast um nýtt fyrirkomulag á sam-
starfi sínu sem felur í sér einhverja skuldbindingu
gagnvart skipulaginu. Þær verða að gefa sam-
starfi sínu pólitíska vigt og völd en láta það ekki
ráðast af pólitískum veðrabrigðum hvort skipulag-
ið og skynsamleg vinnubrögð ná fram að ganga
eða ekki. Ég er bjartsýn á að það takist að finna
samstarfinu farveg og að þorri sveitarstjórnar-
manna á svæðinu skilji að þannig náum við árang-
ri. Ég bind líka miklar vonir við að samráð og sam-
starf við félagasamtök, íbúa og atvinnulíf á svæð-
inu aukist og að við berum gæfu til að brjótast út
úr þeirri átakahefð sem hamlar uppbyggilegri
samræðu milli stjórnvalda og hagsmunaaðila.
Eins og ég sagði fyrr í greininni þá hefur allt sinn
tíma. Núna finnst mér eins og eitthvað liggi í loft-
inu. Guð láti á gott vita. ■
vinnuvernd í verki
Öryggis- eg aðbúnaðarmál í byggíng
ariðnaði Shípun og skyldur samræmingaraðila
\ýjar reglur nr. 547/1996 um að-
búnað, hollustuhætti og öryggis-
ráðstafanir á byggingarvinnu-
stöðum og við aðra tímabundna
mannvirkjagerð tóku gildi hér á
landi 1997. Reglur þessar voru
settar með hliðsjón af tilskipun Evrópusambands-
ins 92/57 sem var viðbætir við XVIII. viðauka
samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Markmið reglnanna er að samræma öryggis- og
heilbrigisráðstafanir á byggingarvinnustöðum og
við aðra tímabundna mannvirkjagerð. Sérstaklega
er fjallað um ábyrgð þar sem fleiri en einn verktaki
eru að störfum.
í reglunum eru skilgreindar skyldur aðila er að
byggingarstarfsemi koma s.s. verkkaupa, atvinnu-
rekenda, verktaka, sjálfstætt starfandi einstakl-
inga, verkefnastjóra, samræmingaraðila öryggis-
og heilbrigðisráðstafana og annarra starfsmanna.
Skipa ber samræmingaraðila öryggis- og heil-
brigðisráðstafana til starfa á byggingarsvæði þar
sem fleiri en einn atvinnurekandi eða verktaki er
að störfum. Áður en byggingarsvæði er skipulagt
skal gerð öryggis- og heilbrigðisáætlun ef:
a. tveir eða fleiri atvinnurekendur eða verktakar
starfa samtímis á sama byggingarvinnustað og
starfsmenn eru fleiri en 10.
b. vinna er hættuleg samanber II. viðauka
reglnanna. (sjá nánar viðkomandi reglur)
Verkkaupi, eða aðili sem hann hefur falið um-
sjón byggingarframkvæmda t.d. verktaki eða
verkefnastjóri, skal senda tilkynningu til Vinnu-
eftirlits ríkisins áður en vinna hefst sem er í sam-
ræmi við III. viðauka framangreindra reglna ef:
Frá byggingarvinnustað. Ljósmynd Sigfús Sigurðsson
a. um er að ræða byggingarvinnustað þar sem
ráðgert er að vinna standi lengur en 30 vinnudaga
og þar sem fleiri en 20 starfsmenn eru í vinnu
samtímis, eða
b. um er að ræða byggingarvinnustað þar sem
ráðgert er að vinna sé meira en 500 dagsverk.
Tilkynningin skal einnig sett upp á áberandi stað á
byggingarsvæðinu.
Skipun samræmingaraðila
Verkkaupa ber að skipa samræmingaraðila
bæði fyrir samræmingu á atriðum er varða öryggi
starfsmanna. Hins vegar verða allir sem eiga að
koma að málinu að leggjast á eitt til að fullnægj-
andi árangur náist.
Reglur nr. 547/1996 um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggisráðstafanir á byggingarvinnustöðum og
við aðra tímabundna mannvirkjagerð er hægt að
fá hjá Vinnueftirliti ríkisins. Einnig er hægt að nálg-
ast þær á heimasíðu Vinnueftirlitsins www.ver.is.
20