AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 25

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 25
Svæðiss ’ipulag fyrir höfuoborgarsvæðið AÐDRAGANDI. Á síðastliðnu ári gerðu átta sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu með sér sam- komulag um að láta vinna svæðis- skipulag fyrir höfuðborgarsvæðið. Sveitarfélögin sem eiga aðild að þessu samkomulagi eru: Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnar- nes, Bessastaðahreppur og Kjósar hreppur. Þau hafa hvert um sig skipað tvo fulltrúa og Skipulags- stofnun einn fulltrúa í samvinnunefnd til að hafa umsjón með verkefninu. Ákveðið var að bjóða verkið út á Evrópska efna- hagssvæðinu í formi forvals og lokaðs útboðs þar sem fram færi í senn hæfnismat og verðsaman- burður. Ljóst var í upphafi að um yfirgripsmikla og vandasama vinnu væri að ræða og var því í útboðsgögnum gerð krafa um reynslu við áþekk verk en vitað var að innlendir skipulagsráðgjafar byggju yfir takmarkaðri reynslu á þessu sviði. Þremur hópum innlendra og erlendra ráðgjafa var gefinn kostur á að bjóða í verkið. Þeim var falið að gera grein fyrir hvernig þeir hyggðust taka á verkinu, hverjir kæmu til með að vinna við það á þeirra vegum og fyrir hvaða verð. Að loknu hæfnismati og verðsamanburði, sem unnið var af sérstakri matsnefnd á vegum verk- kaupa, var í árslok 1998 ákveðið að ganga til samninga við hóp sem eftirtalin fyrirtæki mynd- uðu: Verkfræðistofan Anders Nyvig A/S og arkitek- ta- og skipulagsstofan Skaarup og Jespersen A/S, sem eru dönsk fyrirtæki, ásamt Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. og Vinnustofu arkitekta ehf. sem mynduðu íslenska hluta hópsins. Hópurinn kallar sig Nes planners og höfðar þar til verkefnisins þar sem byggðin á höfuðbor- garsvæðinu stendur á nesjum við innanverðan Faxaflóa. Skrifað var undir samning um verkið við hátíð- lega athöfn í Höfða 19. janúar 1999 þar sem allir forsvarsmenn sveitarfélaganna átta skrifuðu undir ásamt fulltrúum ráðgjafarfyrirtækjanna fjögurra m.a. til að leggja áherslu á mikilvægi verkefnisins sem var að hefjast. Vinnan hófst í upphafi árs 1999, eins og áætlað hafði verið, en aðhalds- samur tímarammi var settur um verkið sem gerir ráð fyrir að fullmótuð tillaga liggi fyrir á fyrri hluta árs 2000. HVAÐ ER SVÆOISSKIPULAC? Allt frá því að fyrstu skipulagslög voru sett hér á landi árið 1921 hefur sveitarfélögum verið gert skylt að láta vinna skipulag, í upphafi aðeins fyrir þéttbýlisstaði, en nú með seinni tíma lagabreyt- ingum fyrir allt land innan viðkomandi sveitar- félags. Kallast slíkar skipulagsáætlanir nú aðal- skipulag. Öll hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu aðalskipulag í gildi nema Kjósarhreppur þar sem aðalskipulag er í vinnslu. Samkvæmt nýjum skipulags- og byggingarlög- um, sem tóku gildi í ársbyrjun 1998, er svæðis- skipulag skilgreint á eftirfarandi hátt: Svæðiskipulag er skipulagsáætlun sem tekur yfir fleira en eitt sveitarfélag. Hlutverk þess er að samræma stefnu um landnotkun, samgöngu og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar á tilteknu svæði, minnst til 12 ára. Ekki er skylt sam- kvæmt áðurnefndum lögum að láta vinna svæðis- skipulag en það er engu að síður nauðsynlegt þar sem samræma þarf stefnu fleiri sveitarfélaga um byggðarþróun. TILCANCUR MEÐSVÆÐISSKIPULACI í verklýsingu útboðsgagna segir: „Með gerð svæðisskipulags er ætlun sveitarfélaganna að móta sameiginlega stefnu fyrir höfuðborgarsvæð- ið hvað varðar landnotkun og þróun byggðar, 23 RICHARD ÓLAFUR BRIEM, ARKITEKT OG SKIPULAGSFRÆÐINGUR

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.