AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 36

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 36
meðal bandarískra skipulagsfræðinga um þessar mundir er „Transit oriented development, TOD“. Þessi hugmyndafræði er ríkjandi í stefnumótun í svæðisskipulagi borgarsvæða beggja vegna Atlantshafsins. í Danmörku hefur þessi skipulags- hugsun verið lengi við lýði í hinu fræga „Fingra- plani“ fyrir Kaupmannahafnarsvæðið og eins voru úthverfi Stokkhólms byggð sem þéttir kjarnar við sporvagnalínur. í Bandaríkjunum, þar sem stórborgarsvæði taka yfir marga tugi sveitarfélaga og fleiri en eina sýslu, er löng reynsla af svæðisskipulagi sem stýrt er af svæðisstjórn, “Regional Council". Þekktustu og framsæknustu svæðisskipulagsáætlanirnar hafa verið unnar fyrir Portland í Oregon og Seattle- svæðið í Washingtonfylki. í báðum áætlununum er megináherslan á að takmarka útþenslu byggðar og að byggja aðallega umhverfis núverandi þjónustukjarna í tengslum við almenningsvagna- kerfið. í Seattle er verið að gera spennandi tilraun með að virkja hverfasamtök við endurskipulagn- ingu þessara þjónustukjarna og geta þau sjálf ráð- ið sér skipulagsráðgjafa, samkvæmt sérstökum samningum við borgaryfirvöld, til að koma fram með tillögur sem lagðar eru fyrir skipulagsyfirvöld borgarinnar „Neighbourhood planning". (Sjá skýrslu Þróunarsviðs í Ráðhúsi, Hverfa- skiptingar í Reykjavík, okt. 1999). Á Norðurlöndum hefur dreifbýlisviðhorfa lengi gætt í almennri stjórnsýslu og skipulagsmálum enda löndin stór, harðbýl og byggðin dreifð eins og hér á landi. Á allra síðustu árum hefur þó orðið vakning á Norðurlöndum þar sem athygli ráða- manna hefur í síauknum mæli beinst að stórborg- Mynd 3. Frítími Menntun Vinna 100% 80 60 40 20 Notkun tímans 1880 30 40 ára Frítími Menntun I 10 2000 Símenntun Vinna I I I L Efri ár I 20 30 40 70 80 ára arsvæðunum og sérstökum aðstæðum og vanda- málum sem þar er að finna. Án efa gætir þarna áhrifa frá stefnumótunarvinnu skipulagsfræðinga Evrópubandalagsins, „European Spatial Develop- ment Rerspective, ESDP“. Öll Norðurlöndin nema íslandi hafa myndað vinnuhópa og komið á form- legu samstarfi milli ráðuneyta til að vinna að stefnumótun fyrir æskilega þróun borgarsvæða. Danir eru komnir einna lengst í þessu og má lesa um helstu stefnumál danskra yfirvalda um æski- lega þróun danskra borga í ritinu „Fremtidens By“, sem gefið var út af Bæja- og húsnæðisráðuneyt- inu fyrr á þessu ári. Hér á landi er lítil hreyfing á þessum málum þótt yfir 90% landsmanna búi í þéttbýli og um 60% á höfuðborgarsvæðinu. Öll umræðan er um flótta landsbyggðarmanna til höfuðborgarsvæðisins en lítil um þau vandamál sem þessir flutningar skapa á hinu örtvaxandi höfuðborgarsvæði og um þau sérstöku vandamál og verkefni sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þurfa að glíma við. Það er því brýnt að fulltrúar höfuðborgarsvæðisins taki upp viðræður við fulltrúa ríkisvaldsins um sam- eiginlega byggðastefnu, því þessir hröðu flutning- ar til höfuðborgarsvæðisins geta ekki talist þjóð- hagslega hagkvæmir. Þjóðfélagsbreytingar hafa verið gífurlega örar síðustu áratugi, m.a. vegna svo kallaðrar upplýs- ingabyltingar sem hefur haft víðtæk áhrif á allt daglegt líf manna. Því hafa verið settar á laggirnar rannsóknastofnanir í framtíðarfræðum, svo kallað- ar framtíðarstofnanir, víða um lönd, m.a. í flestum höfuðborgum Norðurlanda. Þessar stofnanir veita opinberum aðilum og einkafyrirtækjum ráðgjöf um ýmis mál er varða undirbyggingu framtíðaráætl- ana. Engin slík stofnun er til hér á landi og því brýnt að leita í smiðju til þessara aðila varðandi langtímastefnumótun. (Sjá grein höfundar í Les- bók Morgunblaðsins 11. sept. sl. Um tímann og draumasamfélagið). í ársbyrjun var sett á laggirn- ar svo kallað Þróunarsvið í Ráðhúsi Reykjavíkur með það meginhlutverk að undirbúa langtímas- tefnumótun fyrir Reykjavíkurborg og stuðla að rannsóknum á borgarsamfélaginu. Þá hafa Reykjavíkurborg og Háskóli íslands ákveðið að standa sarmeiginlega að rekstri Borgarfræðaseturs sem hefur það hlutverk að auka samskipti þeirra hvað varðar rannsóknir og fræðslu um málefni borgar og byggðar í landinu. Stefnt er að því að Borgarfræðasetrið hefji starfsemi í byrjun næsta árs. 34

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.