AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 39

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 39
stefnumótun í svæðisskipulagi. Þá hef ég dregið saman nokkrar upplýsingar um þróun og skipulag borgarsvæða í nágrannalöndum sem draga má lærdóm af í skipulagsgerðinni. Þó er það þannig að ekki má taka erlendar fyrirmyndir, hvort sem þær koma frá Danmörku eða Bretlandi, beint upp í skipulagsvinnu hér á landi án yfirvegunar. Það þarf að vega og meta þessar hugmyndir miðað við íslenskar aðstæður, kynna þær og ræða. Þetta á m.a. við um hugmyndir um róttæka þéttingu byggðar svo dæmi sé tekið, þær þarf að útfæra í aðal- og deiliskipulagi í einstökum sveitarfélögum. Það sem einkennt hefur þróunina í gerð svæðis- skipulags fyrir borgarsvæði í nágrannalöndum okkar síðustu ár, og ekki hefur verið gefinn nægi- legur gaumur í svæðisskipulagsvinnunni til þessa, er að hún hefur færst frá því að fjalla fyrst og fremst um landrýmisáætlanir fyrir byggð og sam- göngumannvirki, yfir í meiri áherslu á háleitari stefnumótun til lengri framtíðar. Þannig fylgja jafn- vel ekki landnotkunarkort sumum þessara áætl- ana, því útfærsla byggðar samkvæmt markmið- um svæðisskipulagsins er mótuð í aðalskipulags- áætlunum einstakra sveitarfélaga á borgarsvæð- inu. Stefnumörkunin tekur mið af lykilhugtökum eins og lífsgæðum (quality of life), hæfni eða þekkingu (competence), jafnræði og virku lýðræði (t.d. hverfastjórnum). í svæðisskipulagsáætlunum eru sett fram mælanleg markmið til að fylgjast með hvernig gengur að nálgast framtíðarstefnu um betra borgarsamfélag. Þessi áætlanagerð er treyst með reglulegum viðhorfskönnunum meðal íbúa og samráði og samvinnu við hagsmunaaðila á svæðinu, s.s. fulltrúa atvinnulífsins og hverfa- samtaka. Það eru einmitt slík vinnubrögð sem skort hefur á við undirbúning svæðisskipulagsins sem hefur hingað til verið of bundið við hvar- spurningar út frá framreikningi á núverandi þróun, (þ.e. reaktiv vinnubrögð) í stað þess að spyrja hvað- eða hvernig- spurninga, um hvernig sam- félag við viljum skapa í framtíðinni (proaktiv vinnu- brögð). Lyfta þarf svæðisskipulagsvinnunni upp fyrir hefðbundið aðalskipulagsstig. Á næsta ári er fyrirhugað að hefja vinnu að undirbúningi langtímastefnumótunar fyrir Reykja- víkurborg á vegum Þróunarsviðs í Ráðhúsi Reykjavíkur sem m.a. verður byggð á ofangreind- um sjónarmiðum. Þessi vinna mun vonandi bæði styðja við og bæta við þá stefnumótun sem felst í svæðisskipulaginu. Mikilvægasta atriðið varðandi vinnuna við svæðisskipulagið á þessu stigi er að hvetja til al- mennrar umræðu um æskilega þróun höfuðborg- arsvæðisins og framtíðarsýn fyrir svæðið í heild og reyna þannig að skapa víðtæka sátt um þá stefnu sem valin verður. ■ Trimble 4800 GPS Alstöóin: Byltinqakennd nýjunq í landmælinqatækni T Mæ/ing á staónum meó tveimur tiónum... Loksins, allt á cinni mælistöng: Engir kaplar... GPS vidtæki og loftnet, radióbúnaóur og loftnet, rafhlaóa og mælibók! Enginn bakpoki... - Engir kaplar milli stangar og mælingamanns ■71 ■ i g - Enginn bakpoki cöa hliðartaska 11" | Q|0 - Lín og þægilcgl I meöfórum http:»wwv«.irimhi..coiTi Fljótlegt að fcsta á þrifót fyrir lengri mælingar Innbyggt minni fyrir sofnun gagna til cftirávinnslu Ný byltlngarkennd mællbók, honnuð og framleidd af Trimble |valmyndir I staö langrar lesningar http Wwww ismar is og minniskort cf óskaö er) ► ►►►►►► GPS Total Station* 4800

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.