AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Síða 39
stefnumótun í svæðisskipulagi. Þá hef ég dregið
saman nokkrar upplýsingar um þróun og skipulag
borgarsvæða í nágrannalöndum sem draga má
lærdóm af í skipulagsgerðinni. Þó er það þannig
að ekki má taka erlendar fyrirmyndir, hvort sem
þær koma frá Danmörku eða Bretlandi, beint upp
í skipulagsvinnu hér á landi án yfirvegunar. Það
þarf að vega og meta þessar hugmyndir miðað við
íslenskar aðstæður, kynna þær og ræða. Þetta á
m.a. við um hugmyndir um róttæka þéttingu
byggðar svo dæmi sé tekið, þær þarf að útfæra í
aðal- og deiliskipulagi í einstökum sveitarfélögum.
Það sem einkennt hefur þróunina í gerð svæðis-
skipulags fyrir borgarsvæði í nágrannalöndum
okkar síðustu ár, og ekki hefur verið gefinn nægi-
legur gaumur í svæðisskipulagsvinnunni til þessa,
er að hún hefur færst frá því að fjalla fyrst og
fremst um landrýmisáætlanir fyrir byggð og sam-
göngumannvirki, yfir í meiri áherslu á háleitari
stefnumótun til lengri framtíðar. Þannig fylgja jafn-
vel ekki landnotkunarkort sumum þessara áætl-
ana, því útfærsla byggðar samkvæmt markmið-
um svæðisskipulagsins er mótuð í aðalskipulags-
áætlunum einstakra sveitarfélaga á borgarsvæð-
inu.
Stefnumörkunin tekur mið af lykilhugtökum eins
og lífsgæðum (quality of life), hæfni eða þekkingu
(competence), jafnræði og virku lýðræði (t.d.
hverfastjórnum). í svæðisskipulagsáætlunum eru
sett fram mælanleg markmið til að fylgjast með
hvernig gengur að nálgast framtíðarstefnu um
betra borgarsamfélag. Þessi áætlanagerð er
treyst með reglulegum viðhorfskönnunum meðal
íbúa og samráði og samvinnu við hagsmunaaðila
á svæðinu, s.s. fulltrúa atvinnulífsins og hverfa-
samtaka. Það eru einmitt slík vinnubrögð sem
skort hefur á við undirbúning svæðisskipulagsins
sem hefur hingað til verið of bundið við hvar-
spurningar út frá framreikningi á núverandi þróun,
(þ.e. reaktiv vinnubrögð) í stað þess að spyrja
hvað- eða hvernig- spurninga, um hvernig sam-
félag við viljum skapa í framtíðinni (proaktiv vinnu-
brögð). Lyfta þarf svæðisskipulagsvinnunni upp
fyrir hefðbundið aðalskipulagsstig.
Á næsta ári er fyrirhugað að hefja vinnu að
undirbúningi langtímastefnumótunar fyrir Reykja-
víkurborg á vegum Þróunarsviðs í Ráðhúsi
Reykjavíkur sem m.a. verður byggð á ofangreind-
um sjónarmiðum. Þessi vinna mun vonandi bæði
styðja við og bæta við þá stefnumótun sem felst í
svæðisskipulaginu.
Mikilvægasta atriðið varðandi vinnuna við
svæðisskipulagið á þessu stigi er að hvetja til al-
mennrar umræðu um æskilega þróun höfuðborg-
arsvæðisins og framtíðarsýn fyrir svæðið í heild
og reyna þannig að skapa víðtæka sátt um þá
stefnu sem valin verður. ■
Trimble 4800 GPS Alstöóin:
Byltinqakennd nýjunq í landmælinqatækni T
Mæ/ing á staónum meó tveimur tiónum...
Loksins, allt á cinni mælistöng: Engir kaplar...
GPS vidtæki og loftnet, radióbúnaóur
og loftnet, rafhlaóa og mælibók! Enginn bakpoki...
- Engir kaplar milli stangar og mælingamanns ■71 ■ i g
- Enginn bakpoki cöa hliðartaska 11" | Q|0
- Lín og þægilcgl I meöfórum http:»wwv«.irimhi..coiTi
Fljótlegt að fcsta á þrifót fyrir lengri mælingar
Innbyggt minni fyrir sofnun gagna til cftirávinnslu
Ný byltlngarkennd mællbók, honnuð og
framleidd af Trimble |valmyndir I staö langrar lesningar http Wwww ismar is
og minniskort cf óskaö er)
► ►►►►►► GPS Total Station* 4800