AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 45

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 45
Fáerin orð um svæðrisskripulag höfuðborgarsvæðrisrins Fyrir nokkru sendi ritstjóri þessa tímarits mér bréf og bað mig setja á blað ein- hver orð um ofangreint efni. Vísaði hann þar til reynslu minnar af samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, svo og setu á Alþingi. Heldur færðist ég undan þessu verkefni, enda langt um liðið frá því ég hafði afskipti af skipulagsmálum þessa svæðis. En ritstjórinn lét hér ekkert laust og því er nú rifj- að upp eitt og annað sem áður gerðist í þessum málum þegar lagður var grunnurinn að hinu nauð- synlega samstarfi sem verður að vera í skipulags- málum milli aðliggjandi sveitarfélaga. Sem sveitarstjóri Garðahrepps á árunum 1960- 1972 og fulltrúi í hreppsnefnd, síðar bæjarstjórn, til 1978, hafði ég að sjálfsögðu afskipti af skipu- lagsmálum. Og eitthvað kann ég að geta sagt um það sem nú er efst á baugi. Á þessu tímabili varð til hið eiginlega þéttbýli í Garðabæ, Flatir, Arnarnes, Lundahverfi og Byggðir skipulögð og byggð að mestu. Strax á 7. áratugnum hófst náið samstarf allra sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu í skipulagsmálum. Ég minnist margra funda í svæðisskipulagsnefnd frá þessum tíma þar sem skipulagsmálin voru sett í nýtt samhengi. Nauðsyn samvinnunnar var mönnum Ijós. Reykjavíkurborg, sem lang-stærsta sveitarfélag- ið, hafði þarna eðlilega forgöngu í samráði við skipulagsstjóra ríkisins. Danskur skipulags- arkitekt, Bredsdorf, hafði umsjón með skipu- lagsvinnunni og kynnti verkið fyrir okkur sveitar- stjórnarmönnum eftir því sem því miðaði fram. Þetta var sem sagt á sjöunda áratugnum. Þótt margt hafi breyst á þrjátíu árum er enginn vafi að þarna var unnið mikið nauðsynjaverk, sem eðlilega hefur þurft að endurskoða síðan. Og hin síðasta endurskoðun stendur einmitt nú yfir. Sveitarfélögin eru hin sömu nú og þá, nema að Reykjavík hefur innlimað Kjalarneshrepp. Og íbúafjöldinn er til muna meiri í öllum sveitarfélög- unum og Ijóst að enn mun fjölga íbúum á höfuð- borgarsvæðinu á næstu árum og áratugum eða um 56 þús. til ársins 2020. Því er það að sveitar- félögin reyna að gera sér sem gleggsta grein fyrir hver hin æskilegasta þróun byggðarinnar verður, eða a.m.k. ætti að verða, ef fyllstu hagkvæmni yrði gætt. Samkeppni um íbúa sem flytja vilja á þetta svæði kann að vera af hinu góða. Náttúrlegar aðstæður, skynsamleg stjórnun og undirbúningur viðkomandi sveitarfélags til að taka við auknum fjölda, svo og kostnaður ríkissjóðs (vegakerfi) eru þó þau atriði sem hljóta að ráða. Ekki þvingaðar lausnir vegna yfirburðastöðu einhvers aðila. Samvinna sveitarfélaganna í skipulagsmálum er nauðsyn, og á ýmsum öðrum sviðum afar mikil- væg. Svæðisskipulagið hefur hins vegar ekkert að gera með mögulega sameiningu sveitarfélaganna á svæðinu. Það er allt annað mál, eins og bæjar- stjórinn í Garðabæ hefur sagt í viðtali. Vel má vera að sá tími komi að einhver sveitar- félaganna sameinist. Heldur sýnist það þó fjarlægt. Öll þessi sveitar- félög eru af þeirri stærð, þótt misjöfn séu, að þau geta veitt íbúum sínum þá þjónustu sem þarf og sinnt þeim verkefnum sem þeim ber samkvæmt lögum. Það er í hinum dreifðu byggðum og fámennu sveitarfélögum sem sameining er nauðsyn. Miðbæjarsvæðin, eða kjarnar, eru nokkuð til ffÞeír sem vrilja nú berina byggðrinnri i norður og trúa því jafnframt að flugvöllurrinn víkri eru ekkri samkvæmrir sjálfum sér, eða horfa ekkri raunsæjum augum á málrið í herild.éé umræðu. Þar er minn bær, Garðabær, settur skör lægra en réttmætt sýnist. Þar hefur vel tekist að byggja upp lifandi kjarna þar sem eru um eða yfir 30 fyrirtæki, verslanir og stofnanir og þjónusta ýmis, „útimarkaður" undir þaki um flestar helgar. Slíkur kjarni er hverri 8 þúsund manna byggð nauðsynlegur og verður ekki settur í „C-flokk“. Skiptar skoðanir kunna að vera um það, hvort beina eigi byggðinni til norðurs eða suðurs á skipulagstímabilinu. Og svo verður áfram tekist á um hvort flugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni þótt 43 OLAFUR G. EINARSON, FV. ALÞINGISMAÐUR

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.