AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 62
ekki frá torginu sjálfu heldur er gengið inn í bygg-
inguna úr hliðargötunni, Polo Medina. Ef Moneo
hefði ákveðið að hafa aðalinnganginn á móts við
dómkirkjuna, þá hefði þurft að mynda táknrænt,
lýðræðislegt samband milli kirkjunnar og borgar-
innar. Moneo ákvað að virða styrkleika kirkjunnar
og vald hennar í þjóðfélaginu með því að halda
henni í aðalhlutverki torgsins.
Skýrt er að hönnun viðbyggingarinnar mótast af
því að vera áhorfandi. Hún býður borgarbúum upp
á stað þar sem þeir geta virt dómkirkjuna sína fyrir
sér á stórum svölum á framhlið hússins og á þaki
þess. Einnig er fundið fyrir mikilvægi kirkjunnar
þegar gengið er í stigagangi ráðhússins upp á efri
hæðir byggingarinnar, þá opnast ferhyrnt op í
vegginn sem rammar inn hluta dómkirkjunnar.
Þetta á við, þó viss stéttaskipting eigi sér stað við
dreifingu skrifstofanna. Svalanna njóta þeir sem
lengra staldra við, eins og í fundarsalnum og á
skrifstofu ritara iðnaðarins, frekar en þeir sem eiga
sér hröð viðskipti í erli dagsins. Hinar hliðar byg-
gingarinnar eru líka mikilvægar. Útlitslega séð eru
þær sjálfstæðar einingar sem einkennast þó af
samsvörun við mótistandandi hús. Þær ávarpa og
svara þeim byggingum sem þær standa
andspænis í hlutföllum og uppröðun glugga.
Einföld lögun glugga og gluggaumgerða eykur
áhrif Ijóss og skugga og gerir hið síðarnefnda
hluta af formlegum efniviði byggingarinnar.
Þegar gengið er inn í ráðhúsið innum aðalin-
nganginn eru gestirnir tengdir hlutverki hússins
með mjög góðu aðgengi upplýsinga. Þar að auki,
er þar ráðstefnusalur með stórum skermi og skrif-
stofur samsíða götunni San Patricio. Á næstu
hæðum eru síðan skrifstofur og svæði opnum
almenningi til þess að njóta fagurs útsýnisins.
Þetta eitt er í raun athyglisvert. Moneo hefur t.d.
vísvitandi lokað fyrir sýn á nærliggjandi háhýsi í
San Patricio götunni þegar gengið er út á svalir
ráðhússins, vegna þess hve það þótti illa byggt á
tæknilegum og fagurfræðilegum forsendum. í
byggingu sinrii leggur Moneo áherslu á samspil
ólíkra og góðra efna, eins og ýmissa steinteg-
unda, viða og stáls sem gefa byggingunni líf og
blæbrigðamun. Sama gildir innanhúss þar sem
eiginleikar efnanna fá að njóta sín. Lýsing og hús-
gögn eru einnig hluti af heildaráhrifum til skynjunar
mannsins á bygggingunni.
Lítill veitingastaður er niðurgrafinn í byggingu
ráðhússins á móts við torgið og er hann tilvísun í
áður auða og óbyggða lóðina, svo notuð séu orð
arkitektsins. Steypu erfléttað saman við steininn á
60