AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 63

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 63
gólfinu og þar af leiðandi verður yfirbragð innra rýmis grófara en steinslípuð gólf á efri hæðum. Einnig er sá steinn, sem notaður er utan á bygg- ingunni, settur framan á barborðið. Við þetta breytist tilfinningin fyrir áferð rýmisins, og skilin milli úti og inni verða óljósari. Þegar litið er út sést í efri hluta dómkirkjunnar, það er efst í turn hennar og aðalinngang og svo höfuð gangandi vegfar- enda. Raunverulegt fjarlægðarskyn á því sem sést raskast, þar sem tilfinningin fyrir torginu verður að engu og útsýnið verður að flatri tví- víddar-mynd. Þó er breytileg hreyfing á þessari mynd eftir því hver stefna gangandi vegfarandans er uppi á stétt torgsins. Bogi rýmisins fyrir utan veitingastaðinn, sem setur takmörk fyrir stærð staðarins, endurspeglar boga dómkirkjunnar og um leið beinir augum manns að henni. Hvort sem gestur hússins er á efri hæðum eða í niðurgröfn- um veitingastaðnum þá er hann sífellt minntur á mótleikara ráðhússins, heilagleikann sjálfan. Fyrir utan það að auka rými hins opinbera, þá hafði húsagerð sem þessi það að markmiði að tvinna umhverfi dómkirkjunnar saman og leysa þannig vanda torgsins, sem einkenndist mjög af auðri lóðinni sem sneri að dómkirkjunni. Til þess að koma í veg fyrir að keppa við framhlið dóm- kirkjunnar þá er framhlið ráðhússins byggð upp eins og tónlistarhandrit eftir láréttum nótna- strengjunum. Tónlist og afstæður hrynjandi partit- unnar skapa jafnvægi og kyrrð í hringmyndun torgsins. Ekki eru teknir neinir formfastir þættir frá dómkirkjunni aðrir en taktföst afstæðan, þ.e. ein- földun á formum og tilvísun í landfræðilegt og menningarlegt umhverfið. Þessi túlkun á umhverf- inu, sem byggist á góðu samfélagi nútíðar og fortíðar til þess að leiða menn inn í framtíðina, er einkennandi fyrir byggingar Moneos og ýmissa ítalskra arkitekta, eins og t.d. Ignazio Gardella. Bygging hans í Feneyjum hafði mikil áhrif á Moneo þegar hann hannaði viðbygginguna í Murcia, um hvernig útlit nútímabyggingar ætti rætur sínar að rekja til forfeðranna . Útsýni yfir á dómkirkjuna er mikilvægasta gildið í hönnun þessarar ráðhússbyggingar fyrir borgina: stórar svalir þjóna sama hlutverki eins og í leik- húsi, veggir eru ristir í stigagangi og opinn að- gangur er að yfirbyggðum þakfletinum með það eitt fyrir augum að horfa á dómkirkjuna fyrir fram- an og torgið sem iðar af lífi. Hér í verki Moneos í Murcia spila saga og menning, litir og áferð, efniviður og einfaldleiki í formum, hljómlist í eyrum fólks, bæði þeirra sem nota bygginguna og þeirra sem virða hana fyrir sér á torginu sitjandi á veit- ingastað með tapas og bjórglas við hönd. ■ Ljósm. í grein: Juan de la Cruz Megías. 61

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.