AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 79
ndanfarin ár hefur söluskrif-
stofa BM Vallá verið starf-
rækt í bráðabirgðahúsnæði
við Breiðhöfðann, í litlu timb-
urhúsi alveg við vegbrúnina.
v ' Fyrir fjórum árum var ég
fenginn til að endurskipuleggja og hanna
húsnæðið með það fyrir augum að lengja
líftíma þess um einhver ár til viðbótar.
Framleiðsla fyrirtækisins á ýmsum vörum
til garða og húsbygginga hefur hins vegar
aukist svo hratt á stuttum tíma, að fljótlega
varð Ijóst að óhjákvæmilegt yrði að byggja
yfir starfsemina stærra og varanlegt hús-
næði. Haustið 1998 ræddi Guðmundur
Benediktsson aðstoðarframkvæmdastjóri
fyrirtækisins við mig um byggingu nýrrar
söluskrifstofu. í framhaldi af því var ákveð-
ið að ræða við arkitektana Jón Þ. Þor-
valdsson og Baldur Ó. Svavarsson um
samstarf við hönnun hússins, en þeir reka
teiknistofuna Úti og Inni. Rafmagns og lýs-
ingarhönnuður hússins er Helgi Eiríksson,
verkfræðistofa Vífils Oddsonar sá um verk-
fræðiþáttinn og Guðmundur Örn Sigurðs-
son landslagsarkitekt um lóðina.
1 *
I
I "l í.:i: ji'
% p|I|
WtÁV-AAi
W\ f&\ J ''
n 'ö’-
, 11 y X ■ Arí Iví/ vV j|I Já.
FORSENDUR
Gengið var út frá að byggja ca 200 m2 húsnæði
þar sem steypan væri í aðalhlutverki, hús sem
endurspeglaði metnað fyrirtækisins sem ekki
hvað síst birtist í framleiðslu þess, þar sem mikil
áhersla er lögð á hönnun og vöruvöndun. Húsið
skyldi falla vel að Fornalundi sem er friðaður
trjálundur í umsjá BM Vallá og þeir hafa fléttað
framleiðsluvörur sínar inn í. Þarna skyldi rísa sér-
stætt hús, að innan sem utan, grundvallað á þeir-
ra eigin framleiðslu.
LÓD 06 UMHVERFI
Lóðin sem húsið stendur á er ákaflega þröng en
löng og afmarkast af verksmiðjuhúsi annars vegar
og hins vegar lóð gömlu slökkvistöðvarinnar. Því
verður lóðin óhjákvæmilega ráðandi þáttur í lögun
hússins. Ákveðið var að staðsetja húsið eins ná-
lægt gamla trjálundinum og hægt var. Þannig
skapaðist rými fyrir framan húsið og garðurinn
síðan dreginn utan um það og fram að bílastæð-
unum við Breiðhöfðann, en þaðan er aðalaðkom-
an að húsinu. Þriggja metra háir bogadregnir veg-
gir hlykkjast eftir lóðinni og skerma verksmiðju-
húsið frá söluskrifstofunni og skapa henni rými.
BM VALLA
Söludeild Breíðhöfða
Hannað af Omari Sigurbergssyni
húsgagna- og innanhússarkitekt FHI
og arkitektastofunni ÚTI og INNI
BYCCINCARLYSIMC
Húsið er í raun einingarhús á einni hæð með
skriðkjallara. Úthringurinn samanstendur af for-
steyptum einingum með innsteyptri einangrun, en
ómeðhöndlaður veggur eftir miðju húsinu endi-
löngu er staðsteyptur (sjónsteypa). Gólfplatan er
byggð upp á sérstökum gólfplötueiningum sem
raðað er ofan á sökklana, og síðan er steypt ofan
á eftir járnabindingu.
Eftir þornun var gólfið terrasóslípað. Þakið er
einnig sett saman úr forsteyptum einingum með
innsteyptri einangrun. Þakið er klætt sléttum,
steyptum þakskífum (borgarskífum) sem er ný
framleiðsla fyrirtækisins.
Þá eru allir léttir veggir hlaðnir úr sérstökum
milliveggjaeiningum.
77