AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Blaðsíða 86

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Blaðsíða 86
ennfremur sköpunarsaga landsins með áþreifan- legum hætti. Byggingin mun hvorki etja kappi við landslagið, né endursegja sögu eða náttúrufar með formi sínu. Hún mun falla að landslaginu á hógværan hátt og vera virk í rýmismótun við aðkomuna að Hakinu. Henni er ætlað að vera látlaus umgjörð um sýningarhald sem í tímans rás mun taka sí- felldum breytingum. FYRIRKOMULAG - STAOHÆTTIR Byggingunni er skipt í tvær álmur sem snúa hornrétt hvor á aðra, og móta rými sem tekur á móti þeim sem koma gangandi frá bílastæðum, af Hakinu, eða upp götuna úr Almannagjá. Annars vegar er fræðslumiðstöð, sem er forsalur og fræðslustofa, hins vegar þjónustuhús, snyrtingar og rými fyrir geymslu, ræstingu og tæknibúnað. Þannig er umgengni um bygginguna einfölduð, og skilið á milli þeirra sem einungis hyggjast nota hreinlætisaðstöðuna og hinna sem vilja njóta sýningarinnar. Byggingarhlutarnir eru tengdir með yfirbyggðu útirými. Forsalur og fræðslustofa mynda ílangt rými. Gaflveggir þess og suðurveggurinn næst þeim eru glerjaðir. Þar er útsýni til suðvesturs að aðkomu- rými og til suðausturs til Þingvallavatns og Nesja- valla yfir Hakið. Norðurveggur rýmisins er lokaður, utan einn glugga þar sem sér til norðausturs, yfir barma Almannagjár, til Skjaldbreiðar. Yfir mið- svæði fræðslustofunnar eru þrír þakgluggar sem jafna dagsbirtu í honum. Aðstaða landvarðar og afgreiðsluborð er fyrir miðjum skilvegg, forsalar og fræðslustofu. Gengið er inn í fræðslustofuna með- fram norðurveggnum, og sýningin skoðuð á hring- ferð, sólarsælis. Veggspjöld, málverk og sýningar- skápar verða á langveggjum, en líkön, sýningar- skápar og margmiðlunartölvur á miðju gólfi salar- ins. Við glugga verður stillt upp sýningarefni sem skírskotar til útsýnis og gestum gefinn kostur á að slaka á einbeitingu og láta hugann reika út í víðernið. Snyrtingum og rými fyrir geymslu, ræst- ingu og tæknibúnað er raðað að gangi sem er varinn veðri með þéttu þaki og gisnum rimlavegg. Snyrtingarnar eru sjö talsins, þar af ein sem upp- fyllir kröfur um aðgengi hreyfihamlaðra. Gólf byggingarinnar er lítið eitt hærra en land- hæð umhverfis það. Yfirbyggða útirýmið er and- dyri fræðslumiðstöðvarinnar. Það blasir við þegar komið er að byggingunni, og upp að því liggur skábraut með litlum halla og framan við það á milli skábrautarinnar og þjónustuálmunnar er timbur- klædd verönd. Hún er hluti af rými sem er mótað framan við bygginguna og er ætlað til sýningar- halds utan dyra. Veggir byggingarinnar marka sýningarrýmið á tvo vegu, og framan við það eru lágir veggir hlaðnir úr hraungrýti, og mynda þeir sjónrænt framhald af hraunhleðslum við bílastæði. Útirýmið snýr vel við sólu og frá því er útsýni yfir Hakið til Þingvallavatns og Nesjavalla. Þarna er svigrúm til að miðla fróðleik með spjöldum, líkön- um og gripum sem þola að standa úti árið um kring. Sérstaklega er nærtækt að leggja áherslu á fræðslu um náttúrufar og áhrif mannvistar og um- ferðar ferðamanna á það. Hluti byggingarinnar er staðsettur utan við bygg- ingarreit sem skilgreindur er í samkeppnisgögn- um. Það er gert til að ná fram markvissari rýmis- mótun framan við byggingarnar og betri tengslum við aðkomusvæði við bílastæði. EFNISMEÐFERÐ Sökklar sýningarskálans eru steinsteyptir. Burð- arvirki er úr stálbitum, veggir klæddir með eirplöt- um að utan, en með viðarklæðningu að innan, gluggar eru úr viði og gólfið er litað ílagnarefni blandað möl. Þak er klætt með pappa eða dúk, en inni er loftið klætt viðarklæðningu og hljóðgleypi- plötum. Veggir þjónustuhússins eru úr steinsteypu, einangraðir að innan. Yfir snyrtingunum er gler- þak sem borið er af álrömmum. Flísar á gólfi og veggjum. Gangi framan við snyrtingarnar er lokað með gisnum vegg úrtrérimlum og regnheldu þaki. Val á klæðningarefnum á veggi miðar að því að tengja mannvirkin staðnum. Eirklæðning á veggj- um sýningarhússins vísar til þakanna á Þingvalla- bænum og kirkjunni sem sér oná frá Hakinu. Sjón- steypan í vegg þjónustuálmu tengist lágum grjót- hleðslum við bílastæði og aðkomu, og umgjörð um sýningarrými framan við fræðslumiðstöðina. FRANKVÆMD Stefnt er að því að hin nýja fræðslumiðstöð við Hakið á Þingvöllum verði reist í vetur og á vor- mánuðum og verði tilbúin til notkunar í september þessa árs. ■ 84
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.