AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 90

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Side 90
lA Skógræktartilraun Akra'jall O Uppgraeðsla 1997 O Uppgræðsla 1998 O Uppgræðsla 1999 FAXAFLÖI Halnasadu' GRÓE)UR FYRIR FÓLK I L A N D N A M I IN G 0 I F S Esa Hanrígl H\'eragercti ligftfelíll Grirdavlk Raykjanostá PoriáJcsKMr saman við að rækta sinn heimagarð. Frekari sam- takamáttur íbúa landsins gegn eyðingaröflunum mun skipta sköpum fyrir það umhverfi sem við viljum búa afkomendum okkar. Samtökin Gróður fyrir fólk telja að með því að beita sér fyrir kröftugri landgræðslu innan þessa afmarkaða svæðis megi áorka þar meiru á skemmri tíma í baráttunni gegn eyðingaröflunum. GROÐURSOKN ÞAR SEN FÓLKIÐ BÝR Landnám Ingólfs er svæðið sem landnámsmað- urinn Ingólfur Arnarson sló eign sinni á og skipti síðar á milli sex manna. Það nær meðfram strand- lengju Reykjanesskagans, inn í botn Hvalfjarðar og í austri meðfram Þingvallavatni, Sogi og Ölfus- á. Allt frá landnámi hefur svæðið verið þéttbýlt, enda ber núverandi gróðurfar merki aldalangrar búsetu og gróðurnýtingar. Meðalþéttleiki íbúa íslands í heild er um 2,5 íbúar á hvern ferkíló- metra en um 60 íbúar á ferkílómetra í Land- náminu. Náttúra svæðisins er fjölbreytt og miklir möguleikar eru til útilífs fyrir hinn „landlausa þétt- býlisbúa". í Landnámi Ingólfs er gróður hins vegar, með alltof fáum undantekningum, í mjög slæmu og sannarlega óásættanlegu ástandi. Svæðið er nær skóglaust.þar á sér víða stað gróður- og jarðvegseyðing, og þar eru jafnvel víð- áttumiklar sandeyðimerkur. Óhætt er að fullyrða að þetta sé einn verst farni hluti landsins í byggð hvað gróður varðar. Líkt og nafnið Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs gefur til kynna er stefna samtakanna að stunda uppgræðslu þar sem árangurinn blasir við og hefja „gróðursókn" þar sem fólkið fær sem best notið gróðurs. Því að þrátt fyrir að Landnám Ingólfs sé aðeins um 3% af flatarmáli alls landsins búa þar um 70% þjóðarinnar. f ANDA SIALFBÆRRAR ÞROUNAR Starfsemi Gróðurs fyrir fólk í Landnámi Ingólfs grundvallast á hugtakinu sjálfbær þróun. Megin- inntak sjálfbærrar þróunar er að ganga ekki á höfuðstól náttúrunnar - að okkur beri skylda til að skila landinu í jafngóðu eða betra ástandi til kom- andi kynslóða. Hornsteinn þeirrar þróunar er end- 88

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.