AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1999, Page 91
urnýting og hringrásarferli efna. Gróður fyrir fólk
hefur sett sér það markmið að komast yfir þau
lífrænu efni sem til falla á svæðinu og nýta þau
þar sem þeirra er þörf við uppgræðslu. Samtökin
líta einnig á það sem hlutverk sitt að hvetja og
virkja íbúa landsins til aukinnar notkunar lífrænna
efna í þágu landbóta og að miðla þeirri reynslu
sem samtökin hafa þegar öðlast. Samkvæmt
úttekt sem Gróður fyrir fólk lét gera á fyrsta starfs-
ári sínu falla árlega til í Landnáminu einu um 70
þúsund tonn lífrænna efna frá húsdýraeldi: hest-
húsum, alifugla-, eggja-, loðdýra- og svínabúum.
Reikna má með öðru eins magni af mómold sem
grafin er upp við verklegar framkvæmdir. Árlega
falla einnig til um 50 þúsund tonn á svæðinu sem
eldhús- og garðaúrgangur frá heimilum, úrgangur
frá veitingahúsum, verslunum og ýmsum öðrum
atvinnurekstri. Alls falla því til liðlega um 200
þúsund tonn af lífrænum úrgangi í Landnáminu
og er aðeins lítið brot af þessu mikla magni nýtt til
uppgræðslu. Með förgun þessara efna fara gífur-
leg verðmæti forgörðum sem gerir okkur enn og
aftur ósamanburðarhæf á því sviði sé miðað við
nágrannalönd okkar.
SKIL * I - NÁTTÚRA OG MENNING
Umhverfisverkefninu SKIL 21 er ýtt úr vör í til-
efni þess að Reykjavík er ein af menningarborg-
um Evrópu árið 2000. Verkefnið er mótað af verk-
fræðistofunni Línuhönnun hf. og Gróðri fyrir fólk í
samvinnu við Reykjavík, menningarborg Evrópu
árið 2000. SKIL 21 beinist að nýtingu lífræns úr-
gangs frá atvinnurekstri til uppgræðslu og rækt-
unar. Tólf fyrirtæki gerðust stofnaðilar að SKIL 21
í febrúar sl. og fleiri hafa fylgt í kjölfarið. Þátttak-
endur í verkefninu hafa þegar hafið markvissa
flokkun sorps og er lífræna úrganginum beint í
jarðgerð. í raun eru fá viðfangsefni á sviði um-
hverfismála sem hafa eins mikinn umhverfisávinn-
ing í för með sér og það að beina lífrænum úr-
gangsefnum frá urðun eða brennslu og til notkun-
ar, m.a. við ræktun og uppgræðslu.
SAMVINNA SKILAR ÁRANGRI
Fyrsta uppgræðsluverkefni Skil 21 hefur verið val-
ið landssvæði í landi Reykjavíkur og Mosfellsbæj-
ar í Hamrahlíðarlöndum við Úlfarsfell við Vestur-
landsveg. Dugmikill hópur vinnuskóla Landsvirkj-
unar starfaði í allt sumar við skógræktar- og lim-
gerðisplöntun, dreifingu lífrænna efna, sáningu og
við að fella niður og græða upp rofabörð. Hamra-
hlíðasvæðið er eitt fárra innan gömlu borgarmark-
anna sem áætlað er til byggðar í framtíðinni. Að
undanförnu hefur hópur arkitekta, undir nafninu
Gjóla, unnið að módeli sem miðar að því að móta
landnotkun svæðisins með tilliti til staðbundins
náttúrufars; veðurs og gróðurfars. Byggingafram-
kvæmdir hafa að sjálfsögðu mikið rask í för með
sér en með samvinnu við Gjóluverkefnið beindist
ræktun svæðisins, auk uppgræðslu ógróins lands,
að skjólbeltum, skógræktar- og útivistarsvæðum
fyrir komandi byggð. Góð samvinna við sveitarfé-
lögin í Landnámi Ingólfs er forsenda góðs árang-
urs í starfsemi Gróðurs fyrir fólk. Kortið á bls. 88
sýnir þau svæði sem Gróður fyrir fólk hefur staðið
fyrir uppgræðsluframkvæmdum á í samvinnu við
fjölda aðila. Sá mikli meðbyr sem Gróður fyrir fólk
hefur hvarvetna mætt sannar að íbúar Landnáms
Ingólfs telja orðið löngu tímabært að græða upp
sitt nánasta umhverfi og sætta sig ekki lengur við
að verðmætum lífrænum efnum sé kastað á glæ.
á skrifstofunni
Nashuatec D420
Stafræn Ijósritun gefur m.a.
■ Hámarks myndgæði
■ Innbyggða rafræna röðun
■ 600 dpi prentun á A3 og minna
■ Tengingu við tölvukost fyrirtækisins
■ Einfaldari vél
■ Fjölhæfari vél
■ Hljéðlátari vinnslu
■ Öfluga faxtengingu
nashuatec
OPTÍMA
ÁRMÚLA 8 •SlMI 588 9000