Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Við fáum nú kveðjur landshorna á milli auk upplýsinga frá nokkrum þeirra félaga eldri borgara sem er að finna á landsvísu. Alls eru félögin fimmtíu og fimm talsins og samkvæmt Landssambandi eldri borgara er starfsemi þeirra allra afar virk. Formenn félaganna er kveðjuna senda hér á eftir eiga það sameiginlegt að benda á heimasíður félaga sinna og oft á síður á miðlinum Facebook, en þar má finna helstu uppákomur, dagskrár, myndasöfn og annað. Einnig hvetja allir formenn þá sem áhuga hafa að líta inn og vita hvort ekki sé eitthvað sem gæti vakið áhuga þeirra. Félagstengsl og félagslíf eru jú öllum holl. Með kveðju ... Ásdís Illugadóttir, formaður í Mývatnssveitinni segir okkur að félagsmenn hittist aðallega yfir veturinn og sæki þá samverustundir og íþróttatíma sem eru í boði í sveitinni. Skipulagðar séu skemmtiferðir innan- lands auk leikhúsferða og gjarnan er farið út að borða í leiðinni. Er stefnan einmitt tekin á Hof nú í febrúar að sjá söngleikinn CHICAGO auk málsverðar. Einnig er áætluð 3 daga skemmtiferð á S-Austurland í júní. Viðburðir sem þessir eru vel niðurgreiddir af félaginu, en tekjustofn þess eru árgjöld og árlegur styrkur frá sveitarfèlaginu. Engin sundlaug er hins vegar lengur starfrækt á staðnum og fólk afar óánægt með það. 40 kílómetrar eru í næstu laug og yfir heiði að fara sem aftrar eldra fólki eðlilega að sækja þá heilsubót, því miður. Frá Raufarhöfn berast þær fréttir að félagið hafi hlotið styrkveitingu úr uppbyggingarsjóði SSNE en samkvæmt formanninum, henni Kristjönu Bergsdóttur, sótti félagið um styrk til uppsetningar útilistaverks Helga Ólafssonar rafvirkja, Drekanum. Gnæfir verkið nú tvo metra upp í loftið, staðsett við Óskarsstöðina á Raufarhöfn. Að auki hlaust styrkur til uppsetningar myndaskilta til glöggvunar, þar sem áður voru síldarsöltunarplön og er þar með sögu síldarára Raufarhafnar viðhaldið. Er Félag eldri borgara afar virkt, en fyrir um áratug síðan tóku aldursforsetar sig til og stofnuðu það – með það fyrir augum að njóta návista hver annars og vinna að verkefnum. Eru félagsmenn 34 talsins og sami kjarni uppistaða félagsins í dag og við stofnun þess. Sigurlín Sveinbjarnardóttir, formaður í Hveragerði vill koma á framfæri að skráningar til þátttöku á námskeiðum vormisseris séu í fullum gangi fyrir áhugasama. Bæði fréttabréf og stundatafla hafi verið send út nýverið og á vefsíðunni www.hvera.net er allt að finna sem gæti orðið núverandi eða væntanlegum meðlimum til gagns og gamans. Valdemar Guðmundsson, formaður Félags eldri borgara í Strandasýslu telst til að félagar staðarins séu 91 talsins. Sex þó búsettir utan sýslunnar. Boðið er upp á fjölþætta starfsemi. Á sunnudögum er komið saman í flugstöðinni sem er í eigu sveitarfélagsins og hýsir m.a. auk samkoma eldri borgara, bæði bridds- og Lionsklúbbinn. Þar er spjallað, spilað og drukkið kaffi með fjölbreyttu meðlæti sem félagar koma sjálfir með. Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga er gengið í íþróttasalnum, boccia á miðvikudögum í sama sal, en á föstudögum er leiðbeinandi með félögum í salnum og tækjasal. Á miðvikudögum er að auki farið á sjúkrahúsið, tveir og tveir saman, spjallað og lesið fyrir vistmenn. Formaðurinn Ásgerður Páls- dóttir í Húnaþingi segir félagið leggja áherslu á ferðalög og heilsueflingu, hið síðarnefnda í samvinnu við sveitarfélagið – boðið er upp á stólaleikfimi, vatnsleikfimi og stólajóga vikulega yfir veturinn. Styttri ferðir félagsmanna, dagsferðir, leikhúsferðir og kvöldverðir, eru jafnan, en árlega er farin lengri ferð. Síðasta sumar var farið um norðanverða Vestfirði en nú í sumar verða þeir heimsóttir að sunnanverðu. Gestir komi í heimsókn til að fræða félagsmenn og skemmta, þá er vikuleg „söngstund“ þar sem fólk kemur saman og syngur af hjartans lyst við undirleik snillinga staðarins og er það mikil sálubót og hugarléttir mörgum að geta hist og sameinast í söng. Þá hefur félagið stutt Landssamband eldri borgara í baráttu fyrir bættum kjörum, og einnig málarekstur Gráa hersins. Helga Mattína Björnsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Dalvíkurbyggð leyfir okkur að heyra frá starfinu: „Við eigum okkar eigið félagsheimili sem heitir Mímisbrunnur og er opið hús á mánudögum. Við höfum tekið þátt í verkefni LEB og ÍSÍ sem kallast Bjartur lífsstíll, en alla mánudaga kemur sjúkraþjálfari til okkar með stólaleikfimi og teygjur sem er mjög vel sótt. Á þriðjudögum er kóræfing hjá Mímiskórnum okkar og á miðvikudögum er spiluð vist sem er sérdeilis vinsæl. Á fimmtudögum er opið hús, annan hvorn fimmtudag fáum við hjúkrunarfræðing frá heilsugæslunni okkar sem mælir blóðþrýsting, blóðsykur og gefur ráð. Hinn fimmtudaginn er létt bingó Síðasta föstudag hvers mánaðar er Sokkabandið, vinsæll prjónaklúbbur – aðrir föstudagar breytilegir eftir tilefninu. Alla daga er kaffi á könnunni og eitthvað gott með því. Svo er haustgleði, aðventuhátíð, þorrablót og vorgleði. Alltaf er farið tvær til fjórar skemmti- og leikhúsferðir á hverju ári og félagatal er um 120.“ Laufey Jóhannsdóttir, formaður Félags eldri borgara í Garðabæ, segir okkur frá því að félagið er með samning við Garðabæ og er hreyfing ofarlega á lista. Samningar eru við Janus- Heilsueflingu og öflugt og skipulagt starf er í vatnsleikfimi, zúmba gold, leikfimi, boccia, qi-gong, stólajóga, línudansi, dansleikfimi og félagsvist auk samlesturs í fornsögunum. Haldnar eru skemmtanir á borð við þorrablót, fræðsluerindi og dansiböll – en félagið státar af vel virkum Facebook- og Instagram-síðum auk heimasíðunnar www.febg.is. Félagsmenn eldri borgara í Eyjafjarðarsveit eru 78 talsins og fræðir formaðurinn, Hulda M. Jónsdóttir okkur um að hist sé, yfir vetrartímann á hverjum þriðjudegi, spilað bridge, prjónað, saumað út, heklað, skorið sé út og postulín málað. Stólaleikfimi í boði hjá sjúkraþjálfara og gott kaffi sem kostar 1.500 kr fyrir manninn. Miðvikudaga hafi þau aðgang að íþróttahúsi Hrafnagilsskóla, fari þar í boccia og stundi ýmsar íþróttaæfingar. Á föstudögum í vetur hefur sjúkraþjálfari leiðbeint þeim í íþróttahúsinu varðandi styrkjandi æfingar svo og mælt gripstyrkinn. Sami sjúkraþjálfari sér um vatnsleikfimi alla mánudaga frá september til nóvemberloka og fyrirhugað er að því verði haldið áfram út febrúar, enda vel sótt af bæði konum og körlum. Á sumrin eru vikulegar gönguferðir á svæðinu og félagar farið í hópferðir til Akureyrar á söfn, kaffihús eða annað áhugavert á veturna auk jólahlaðborðs í lok nóvember. Að auki sé farið í tvær ferðir árlega, önnur yfir 2-3 daga, þá ferðast í aðra landshluta og svo dagsferð síðla sumar. Nýverið var haldið tölvu- og tæknilæsinámskeið sem Símey á Akureyri stóð fyrir. Meðal annars var kennsla á notkun apps/smáforrita eins og t.d. Easy Park - svo nú geta allir í Félagi eldri borgara í Eyjafjarðarsveit lagt bílnum sínum án nokkurra vandkvæða á Akureyri. Í Rangárvallasýslunni er allt í fullu fjöri og mikið að gera á þriðju- og miðvikudögum, þá er handverk á fullu. Jón Ragnar Björnsson formaður segir okkur að gott sé að líta á Facebook-síðuna svo og vefsíðuna þeirra - febrang.net, þar sé ýmislegt að finna, m.a. fundargerðir sem upplýsa mikið það sem er í gangi. Alls er skráður 131 stofnfélagi en í janúarlok árið 1993 komu saman í Hlíðarenda á Hvolsvelli nokkrir áhugamenn um málefni eldri borgara, frá Hellu, Hvolsvelli og nágrannasveitum að frumkvæði Ólafs Ólafssonar. Á þessum fundi var samþykkt að boða til stofnfundar Félags eldri borgara í Rangárvallasýslu og má með sanni segja að þar hafi félagsmenn verið ansi ötulir og hressir síðan. Frá Vestmannaeyjum ritar okkur hann Gísli Valtýsson, fyrir hönd formannsins Þórs Vilhjálmssonar. Félag eldri borgara í Vestmanna- eyjum var stofnað í upphafi árs 1998 og er því 35 ára gamalt. Félagið hefur aðstöðu í húsi sem heitir Kvika, þar er tæplega 450 fermetra aðstaða fyrir félagsstarfið, sem Vestmannaeyjabær leggur félaginu til. Félagar í Félagi eldri borgara í Eyjum eru um 330 talsins. Það kallar á breytt lífsmynstur að verða eldri borgari, hætta á vinnumarkaði eftir áratuga störf. Sumum finnst eins og það séu alltaf sunnudagar. En lífið heldur auðvitað áfram en á breyttum forsendum. Hjá mörgum verða barnabörnin stærri hluti af tilverunni eftir starfslok. Ýmsar tómstundir sem áður var ekki tími til að sinna fá aukið vægi. Sumir eru vel undir starfslokin búnir, aðrir ekki eins og gengur. Þetta er því ekki einsleitur hópur, heldur ótrúlega litríkur, flottur, og orkumikill hópur og margir enn í fullu fjöri og tilbúnir í ný verkefni. Fólk leggst ekki sjálfkrafa í kör við það að mæta ekki lengur til vinnu að morgni; síður en svo. Þá er einmitt tíminn til að lifa og njóta, og gott að hafa fastan lið í tilverunni eins og t.d. Félag eldri borgara, þar sem maður er mannsins gaman og fjölbreytt félagsstarf í boði. Meðan Covid-ið gekk yfir heimsbyggðina markaði sú veira mjög allt félagsstarf okkar sem annarra. En nú er það vesen að mestu liðið hjá og félagstarfið því komið í fast form. Félagsstarf okkar eldri borgara í Eyjum er ágætlega líflegt. Haustfagnaður í upphafi vetrar og vorfagnaður í vetrarlok marka upphaf og endi hvers starfsárs. Vikulega eru haldnar spilavistir í húsnæði félagsins í Kviku, sönghópar, bæði karla og kvenna æfa þar einnig vikulega. Árlegt þorrablót er hluti af félagsstarfinu. - Að venju er þar margt um manninn. Hvert sumar og hvert haust hefur verið farið í ferðalag, ýmist innanlands eða utanlands. Alla virka daga hittist hópur félagsfólks í Kviku og spilar minigolf, eða svokallað pútt. Einn dag í viku hverri er svokallað handverk og hittingur með leiðsögn við handverkið en hittingurinn stjórnar sér sjálfur. Annan hvern mánudag yfir vetrartímann eru ýmsar uppákomur í Kviku á vegum félagsþjónustu Vestmannaeyjabæjar, þar sem dægurmálin eru á dagskrá, fyrirlestrar, fróðleikur og gaman. Þá er félagsfólki boðið upp á vikulega leikfimi í Íþróttahúsinu undir stjórn íþróttakennara. Þótt hefðbundið félagsstarf sé í pásu á sumrin, er þá margt sér til gamans gert undir heitinu „Út í sumarið“. Það er staðreynd að virk þátttaka í félagsstarfi lífgar upp á daginn, það er líka staðreynd að virk þátttaka í félagsstarfi getur stuðlað að betri andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu. Það er því full ástæða til að hvetja, ekki síst eldri borgara, að nýta sér það félagsstarf sem þeim stendur til boða. LÍF&STARF Það er yndislegt að sóla sig í sundlauginni í góðum félagsskap félags eldri borgara. Frá formanni FEB Eyjafjarðar. Listamaðurinn Helgi Ólafsson með verki sínu Drekinn á Raufarhöfn. Hugarleikfimin í forgrunni hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Myndina tók Einar S. Einarsson. Kaffinefndin góða á Dalvík, þær stöllur: Hjördís Jónsdóttir, Ásta Einarsdóttir, Elín Guðjónsdóttir og Súsanna Friðbjörnsdóttir fremst. Hann er flottur og vígalegur línudanshópurinn frá Vestmannaeyjum. Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Í fullu fjöri eftir sextugt – Landshorna á milli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.