Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Boðað hefur verið til II. búgreinaþings þann 22. og 23. febrúar næstkomandi, þar munu bændur funda í sínum búgreinadeildum, fara yfir helstu atriði er snúa að viðkomandi búgrein og kjósa sér stjórn deilda til að leggja línurnar í áherslum ársins. Veigamesta atriðið verður væntanlega áherslur búgreina við endurskoðun búvörusamninga. Þá á sér nú stað mikil umræða í samfélaginu um tolla og tollvernd þar sem forkólfar verkalýðshreyfingarinnar hafa meira að segja sett það inn sem hluta af samningum við sinn viðsemjanda að lækka tolla á landbúnaðarvörum. Hér er hreinlega verið að vega að launakjörum bænda og starfsfólks í landbúnaði og því sætir það undrun að verkalýðsfélög fari í þessa vegferð, því mikið af þeirra félagsfólki hefur lífsviðurværi sitt af því að vinna landbúnaðarvörur eða þjónusta greinina. Tollar eru og verða alltaf hluti af rekstrarumhverfi landbúnaðar hér á landi eins og í öllum vestrænum heimi. Eftirlit með innflutningi Um miðjan janúarmánuð felldi matvæla- ráðuneytið úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um að synja fyrirtæki um heimild til innflutnings á trjábolum með berki frá Póllandi. Ráðuneytið, sem fer jafnframt með málefni skógræktar, var ósammála niðurstöðu MAST og virðist sem svo að hér hafi verið tekist á um mismunandi skilning á reglugerð um plöntur og plöntuafurðir. Síðustu tíu ár hafa garðyrkjubændur óskað eftir því við ráðherra landbúnaðar að umrædd reglugerð verði endurskoðuð. Viðbrögð ráðuneytisins, (og þar með, að ég tel, fimm ráðherra), hafa einkennst af dulbúinni jákvæðni. Vinnan hefur nefnilega ítrekað strandað, sem er að mínu áliti með öllu óskiljanlegt þar sem hagsmunir flóru Íslands er í húfi. Í 4. gr. reglugerðarinnar er tekið fram að innflutningur á bolvið með berki er óheimill. Í 5. gr. sömu reglugerðar kemur fram að heimilt er að flytja inn trjávið með berki. Það er augljóst að nauðsynlegt er að ljúka endurskoðun á gildandi reglugerð þar sem auðveldlega megi túlka innflutning á plöntum og plöntuafurðum á mismunandi veg með flóru Íslands að veði. Verksmiðjubúskapur Mikið er spáð og spekúlerað um verksmiðjubúskap á Íslandi. Þar virðast menn líta til skilgreiningar á slíkri framleiðslu með mjög neikvæðum hætti. En hver er skilgreining verksmiðjubúskapar? Matvælaframleiðsla er bundin í þannig umhverfi að mögulegt er að framleiða afurðirnar, hvort sem er svín, kjúklingur, egg eða jafnvel grænmeti. Allt er þetta framleitt við kröfur og skilyrði svo neytendur geti notið öruggra matvæla á hverjum tíma. Ef ekki væri húsakostur fyrir svínaframleiðslu myndu þau drepast úr kulda á okkar harða landi. Sama á við kjúkling og egg. Tómatar og gúrkur þrífast ekki utandyra og þar sem þessi framleiðsla fer fram innandyra í vernduðu umhverfi í miklu magni, er framleiðslan þá skilgreind sem verksmiðjubúskapur? Íslenskir svínaræktendur eru að framleiða jafn mikið á einu ári og það sem Danir framleiða af svínakjöti á einni viku. Þar á bæ tala menn eftir sem áður um landbúnað en ekki verksmiðjubúskap. En að hluta þá er þessi vara flutt inn og enginn talar um að verið sé að neyta verksmiðjuframleidds matar. Höfum skilgreiningar og hugtök svo allir skilji það eins, stöndum vörð um íslenskan landbúnað öllum til heilla, bændum, neytendum og verkamönnum þessa lands. SKOÐUN Villandi framsetning Yfirgnæfandi meirihluti neytenda telur upprunamerkingar á mat mikilvægar, ef marka má könnun sem Gallup gerði fyrir hönd Icelandic Lamb árið 2021. Samkvæmt henni sögðust rúmlega 70% neytenda óánægðir með að erlendar kjötafurðir séu seldar undir íslenskum vörumerkjum og hafði a.m.k. 20% svarenda upplifað að hafa verið blekktir við innkaup hvað varðar uppruna matvöru. Á meðan reglugerðir kveða á um að skylt sé að merkja uppruna á kjöti og ferskum matjurtum er einhverra hluta vegna ekki skylda að merkja unnar kjötvörur eða tilbúna rétti eftir upprunalandi. Því skyldi engan undra þótt neytendur hér á landi kvarti yfir því að óljóst þyki hvort búvara sé úr innlendu eða erlendu hráefni. Skyldumerkingarnar eru oft í smáu letri og á ólíkum stöðum á pakkningum. Uppruni matvöru skiptir miklu máli og allir ættu að hafa greiðan aðgang að upplýsingum um hvernig vara er til komin, hvernig hún er ræktuð og framleidd, hversu langt að hún er flutt og svo framvegis. Það sýnir sig ekki síst hversu brýnt þetta neytendamál er þegar upp koma dæmi um grófar blekkingar. Áhyggjur bænda af neikvæðum áhrifum af tollfrjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum frá Úkraínu voru ekki úr lausu lofti gripnar. Þegar Bændasamtökin lögðu til fyrirvara við tollaniðurfellingu á vörum upprunnum frá Úkraínu í júní síðastliðnum var því slegið upp í mörgum fjölmiðlum sem einhvers lags hysteríu af þeirra hálfu. Innflutningur á búvörum frá Úkraínu þekktist ekki, flutningsvegalengdin væri svo mikil að ekki þótti ástæða til að óttast að nokkuð þess háttar myndi gerast. En viðskiptahættir geta verið siðlausir eins og eftirfarandi dæmi sýnir: Þegar þetta er ritað standa afurðafyrirtæki, í eigu hérlendra bænda, að innflutningi, vinnslu og umpökkun á úkraínsku kjúklingakjöti. Uppruna er ekki getið á umbúðum. Þetta eru fyrirtæki sem gefa sig út fyrir að vinna kjötvöru af ýmsu tagi og endurselja til verslana, veitingahúsa, hótela og mötuneyta. Umræddar vörur liggja frammi í verslunum á tæplega helmingi lægra kílóverði en aðrar kjúklingavörur með svipaðri framsetningu. Af hverju í ósköpunum eru teknar ákvarðanir sem brjóta í bága við hagsmuni íslenskrar landbúnaðarframleiðslu í fyrirtækjum sem eru í eigu íslenskra bænda? Þetta nær ekki nokkurri átt. Af hverju er kjúklinginn ekki sérstaklega merktur sem úkraínskur? Slíkt getur þótt söluvænlegt, auk hagstæða verðsins. Neytendur gætu þá sýnt samhug og stuðning sinn við Úkraínu með því að velja úkraínskt hráefni vísvitandi. Yfirlýstur tilgangur ríkisstjórnarinnar með tollaniðurfellingunni var jú að sýna stuðning í verki. Þarna eru augljós tækifæri. Með þessum blekkingarleik er hins vegar engum greiði gerður. Hvorki neytendum, né framleiðendum á Íslandi. Traust til verslunar og matvælaframleiðslu dvínar. Stuðningurinn við Úkraínu virðist óheiðarlegur. Guðrún Hulda Pálsdóttir ritstjóri. Búgreinaþing GAMLA MYNDIN Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands gunnar@bondi.is Bændablaðið kemur út 23 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (23. tölublöð) kostar þá kr. 14.900 með vsk. Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar kr. 11.900 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Borgartún 25, 4. hæð - 105 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Kt: 631294-2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − Ritstjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir (ábm.) gudrunhulda@bondi.is – Sími: 563 0300 – Blaðamenn: – Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 563 0303 Netfang auglýsinga: thordis@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621 Fyrsta andabúið. Jón M. Guðmundsson, sem yfirleitt er kenndur við Reyki í Mosfellsbæ, ásamt Pekingöndum á Álfsnesi um 1900. Á árunum 1958 til 1964 var starfrækt andabú í Álfsnesi á Kjalarnesi og fjölgaði aliöndum á landinu talsvert við það. Endurnar á búinu klöktust úr eggjum sem fengin voru af dönsku Pekingandakyni. Þegar best gekk var slátrað 200 til 300 fuglum á viku. Búið skipti um eiganda í miðjum rekstri og við því tók Sigurbjörn Eiríksson, sem oftast er kenndur við veitingahús sem var í Reykjavík og hét Klúbburinn. Hann rak búið til 1964 en þá var rekstrinum hætt. Mynd / Myndasafn Bændasamtaka Íslands. Grísir í Laxárdal. Mynd / ÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.