Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Á síðasta ári framleiddi Sorpa
tvær miljónir rúmmetra metangass
sem jafngildir orkunni í tveimur
milljónum lítra af dísilolíu. Á
þessu ári er stefnt að því að koma
framleiðslunni upp í fjórar milljónir
rúmmetra til að svara eftirspurn.
Aukning hefur verið á afköstum eftir
að Gaja, gas- og jarðgerðarstöð, var
tekin í gagnið.
Norðurorka framleiðir nálægt
250 til 300 þúsund rúmmetra af
metangasi á ári hverju, sem er nálægt
fullum afköstum stöðvarinnar.
Allt er það selt sem eldsneyti og
myndi duga fyrir árskeyrslu 250
til 300 fólksbíla. 60 til 70 prósent
af metaninu er hins vegar notað
til að knýja metanstrætisvagna á
Akureyri. Einnig eru framleidd 70
til 100 tonn af lífdísil á hverju ári
úr steikingarolíu frá veitingahúsum.
„Engar tæknilegar hindranir“
Núna er komin af stað vinna við
að hanna líforkuver í samstarfi
sveitarfélaga á Norðurlandi
eystra. Þar yrði farvegur fyrir
allan lífrænan úrgang og afköstin
í eldsneytisframleiðslu myndu
tífaldast. „Tíminn er svo fljótur að
líða. Ísland ætlar að vera búið að
draga úr losun um 55 prósent fyrir
2030 – og árið 2023 var að detta
inn. Við klárum samdráttinn ekki í
desember 2029, heldur þurfum við
að ná árangri á hverju ári.
Við þurfum að nýta þessar
„núlausnir“ sem við erum með
í staðinn fyrir að horfa alltaf á
einhverja nýsköpun. Það eru engar
tæknilegar hindranir í nýtingu
metans – það þarf bara vilja til
verka,“ segir Guðmundur H.
Sigurðarson hjá Vistorku, sem er
dótturfélag Norðurorku.
Kaupendur að öllu
íslensku metani
Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta-
og viðskiptaþróunarstjóri hjá Sorpu,
segir þá nýbreytni hafa átt sér stað
á síðustu misserum að iðnfyrirtæki
eru farin að sækjast eftir metani.
Malbiksstöðin stefnir að því að
kaupa milljón rúmmetra á ári. Enn
fremur hafa Te og kaffi ásamt Lava
Show nýlega skipt út innfluttu
jarðgasi í stað metans frá Sorpu.
Gunnar segir að í flestum tilfellum
þar sem notað er propangas eða dísil
sé hægt að skipta yfir í metan. Ekki
er þó hægt að skipta út innihaldi
gaskútsins við grillið, því rúmmál
metans við stofuhita er of mikið til
að það sé meðfærilegt í litlu magni.
„Staðan er sú að það eru kaup-
endur að bróðurpartinum af því
metani sem framleitt er á Íslandi í dag.
Þannig að ef við ætlum að nýta
þennan kost betur í orkuskiptunum
þurfum við að framleiða meira,“
segir Gunnar.
Metan er 80 sinnum verri
gróðurhúsalofttegund fyrstu tíu árin
en koltvísýringur – og 30 sinnum
verri yfir hundrað ár. Gunnar Dofri
segir risavaxið loftslagsmál að nýta
metanið ekki bara í orkuskipti,
heldur líka fanga það. Söfnun
metans á urðunarstöðum er mjög
óskilvirk samanborið við þegar
lífrænn úrgangur er unninn við
stýrðar aðstæður.
Um áramótin tóku í gildi nýjar
reglur þar sem sveitarfélög eru
skylduð til sérsöfnunar á lífrænum
úrgangi, þó svo að fæst sveitarfélög
hafi lokið sinni aðlögun eins
og kom fram í síðasta tölublaði
Bændablaðsins. Í þeim reglum er
tekið fyrir urðun á áðurnefndu sorpi.
Gunnar segir að þegar byrjað
verði að taka við sérflokkuðum
matarleifum muni Gaja skila af
sér mjög hreinni afurð. Í stöðinni
er búnaður sem hreinsar burt
aðskotahluti, en þar sem almenna
sorpið sem kemur í stöðina núna
inniheldur 30 prósent af óæskilegum
efnum ræður búnaðurinn ekki við að
hreinsa afurðina nógu vel í moltu
sem má nýta. Sorpið er því verkað
til metanframleiðslu og urðað að
því loknu.
Samkvæmt Gunnari fara mikil
verðmæti forgörðum með að
fullnýta ekki lífúrgang. „Það er
eitthvað sem við getum ekki leyft
okkur ef okkur er alvara að ætla
í orkuskiptin. Við erum alltaf að
bíða eftir stóru lausninni en hún
kemur aldrei. Orkuskiptin verða
„þúsundlausnalausn“. Við höfum
ekki efni á því að bíða eftir að einn
orkukostur vinni af því það verður
enginn sigurvegari.“
Nokkur munur er á Gaja og
því líforkuveri sem fyrirhugað
er fyrir norðan, því fyrrnefnda
sorphreinsistöðin verkar þurrt
lífrænt sorp, á meðan sú síðarnefnda
myndi að auki vinna með lífrænar
afurðir á vökvaformi.
Heildstæð lausn í burðarliðnum
Samtök sveitarfélaga og atvinnu-
þróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)
létu gera frumhagkvæmnimat á
fýsileika þess að reisa líforkuver
í landshlutanum. Smári Jónas
Lúðvíksson, verkefnastjóri hjá
SSNE, kom að vinnu skýrslunnar
og segir hann niðurstöðurnar í stuttu
máli mæla með frekari skoðun á
uppbyggingu líforkuvers. „Þetta
yrði heildstæð lausn á meðhöndlun
lífúrgangs,“ segir Smári.
Öll vinna við undirbúning muni
taka nokkur ár áður en framkvæmdir
geta endanlega hafist. Samkvæmt
tímalínu í skýrslunni er talið
mögulegt að líforkuverið verði
klárt í tveimur áföngum. Sá hluti
sem snýr að metanframleiðslu gæti
verið kominn í gagnið í lok árs 2027
og sorpbrennslan um mitt ár 2030.
„Við vonumst til þess að fljótlega
verði gerð viljayfirlýsing á milli
sveitarfélaganna og ráðuneytis um
að fara í þá vinnu,“ segir Smári.
Farvegur fyrir öll dýrahræ
Líforkuverið mun taka við dýra-
hræjum úr öllum áhættuflokkum.
Eins og staðan er núna er ekki
hlaupið að því að farga sauðfé sem
smitað er af riðu, en í líforkuverinu
mun opnast farvegur til að búa til
lífdísil úr fitunni og brenna restinni.
„Þetta er orkuver, en afurðin sem
slík er orkugjafar,“ segir Smári. Þar
á hann annars vegar við eldsneyti
eins og metan og lífdísil, og hins
vegar áburð í formi moltu eða
meltrar mykju. Ef samstarf næst við
aðila í fiskeldi skapast miklir mögu-
leikar á að framleiða fosfórríkan
áburð úr seyru sem verður til í
landeldi. Öll tæknin sem lagt er upp
með að nota í líforkuverinu er þekkt
og var horft til þess sem vel er gert
í öðrum löndum.
„Það eina sem er nýtt er að við
erum að setja þetta allt á sama stað.
Með því að ná þessum efnum í
hringrás verðum við sjálfum okkur
nægari. Það er mjög mikilvægt að
við týnum ekki þessum verðmætum
út úr keðjunni hjá okkur – því að
þetta eru sannarlega verðmæti. Við
erum alltaf að reka okkur meira
og meira á það í dag að öll þessi
verðmæti eru ekki tæmandi og þau
verða dýrari og dýrari,“ segir Smári.
Loftfirrt gerjun á mykju
Ásgeir Ívarsson hjá Gefn kom einnig
að vinnu frumhagkvæmnimatsins á
líforkuveri fyrir SSNE. Hann segir
að matið geri ráð fyrir að fyrirhugað
líforkuver á Norðurlandi eystra
muni vinna metan úr mykju frá
landbúnaði. Hráefninu yrði safnað í
loftþétta tanka, en við þær aðstæður
éta örverur upp allt súrefnið og
koma af stað loftfirrtri gerjun.
FRÉTTASKÝRING
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Hringrásarhagkerfið:
Lífrænn úrgangur er vannýtt
auðlind á Íslandi
– Fullnýting er mikilvægt loftslagsmál
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Í dag eru tveir stórir metanframleiðendur á Íslandi – annars vegar Sorpa
í Reykjavík og hins vegar Norðurorka á Akureyri. Lífrænn úrgangur
ratar hins vegar enn í urðun og fara verðmæti forgörðum. Tæknin til
að fullvinna lífrænan úrgang er þekkt, en innleiðing hefur gengið hægt
hingað til. Skriður virðist vera kominn á þessi mál og má reikna með
framförum á næstu misserum.
Matarleifar og lífúrgangur eru verðmæt hráefni. Sveitarfélög landsins áttu að innleiða sérsöfnun á lífrænu sorpi
um áramótin, en innleiðingin hefur dregist. Mynd / Þráinn Kolbeinsson