Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Líkt og gefur að skilja er þjónusta
við slík skip mikil og eitthvað þarf
allt þetta fólk að borða. Bændablaðið
leitaði upplýsinga hjá markaðsaðilum
og framleiðendum um hvernig
þessi markaður er og hvort skipin
væru að kaupa íslenskar matvörur.
Viðmælendur eru sammála um að
markaðurinn sé stór og áhugaverður
en að ólíklegt sé að íslensk framleiðsla
eins og hún er í dag geti sinnt honum
nema litlum hluta hans.
Leiðangursskip vænlegri
markaður
Skemmtiferðaskipin sem koma
hingað eru aðallega tvenns konar.
Svokölluð leiðangursskip eru skip
sem taka að jafnaði allt að 500
farþega, en eru oftast 200 til 300
farþega skip.
Þau skip leggja áherslu á upplifun
á Norðurslóðum og ekki síst að
upplifa menningu íbúanna. Þar með
talið matarmenningu.
Stærri skip geta tekið allt að 4.000
farþega en algengara að þau séu á bilinu
1.000 til 2.500 farþega skip sem koma
til Íslands. Sigurður Jökull Ólafsson,
markaðsstjóri Faxaflóahafna, segir
að leiðangursskipin leggi áherslu
á menningu þeirra svæða sem
þau sækja heim og þar með talið
matarmenningu.
„Þau eru því vænlegri markhópur
fyrir íslenska framleiðendur. Hins
vegar hafa stærri skipin verið að
versla eitthvert lítilræði samkvæmt
því sem ég hef heyrt.“
Stóru skemmtiferðaskipin kaupa
lítið af íslenskum mat
Jóhann Bogason, framkvæmdastjóri
Gáru skipamiðlunar, segir komur
skemmtiferðaskipa vítt og breitt um
landið þegar allt er talið mörg hundruð
á ári og þar af hátt í þrjú hundruð bara
til Reykjavíkur.
„Við fáum reglulega fyrirspurnir
um afgreiðslu á matvöru, sérstaklega
ferskvöru eins og grænmeti og
mjólkurafurðir, um borð í þessi skip.
Við kaupum vörurnar hjá stórum
birgjum eins og Innnesi, Ekrunni
og Garra og ég veit ekki hvort þeir
leggi áherslu á að selja íslenskar
matvörur eða ekki, enda gerum við
ekki greinarmun á innlendri eða
erlendri matvöru þegar við kaupum
hana fyrir skipin.
Fyrir Covid var í gangi verkefni
sem hét Flavour of Iceland þar sem
unnið var markvisst að því að kynna
íslenskar matvörur fyrir útgerðum
skemmtiferðaskipa en ég veit ekki
til þess að slík markaðssetning hafi
átt sér stað síðan þá.“ Jóhann segir
að minni skipin, leiðangursskip, gefi
sig út fyrir að bjóða staðbundinn mat
um borð að minnsta kosti einu sinni í
viku. „Þá er keyptur íslenskur bjór og
eitthvað sterkara líka, kjöt og fiskur og
búinn til viðburður í kringum íslenskt
þema. Stóru skipin stoppa stutt og allt
meira fyrirséð og fast í skorðum og
þau kaupa lítið af matvöru hér. Ég
sé alveg fyrir mér að það sé góður
markaður fyrir íslenskar matvörur
hjá leiðangursskipunum, sérstaklega
ef lögð er áhersla á lífræn matvæli.“
Framboð af grænmeti
af skornum skammti
Jóhannes Þór Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri ferskvöru hjá Innnesi,
segir að fyrirtækið hafi mikið af
íslenskum vörum á boðstólum og að
þeir selji þær til skipamiðlara eins og
innfluttar vörur séu þær í boði og að
beðið sé um þær.
„Ef við tökum íslenskt grænmeti
sem dæmi þá seljum við það klárlega
svo lengi sem það er í boði en því
miður er framboðið oft af skornum
skammti.“
Lítil skref í fyrstu
Konráð Grétar Ómarsson, sölu-
og innkaupastjóri hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna, segir að fram til
þessa hafi sorglega lítið verið selt
af íslenskum landbúnaðarvörum
um borð í skemmtiferðaskip sem
heimsækja landið eða þau skip sem
bjóða upp á siglingar í kringum það.
„Við hjá Sölufélaginu höfum
skoðað þessi mál undanfarin ár og
síðastliðið haust urðum við vör við
aukinn áhuga hjá umboðsmönnum
skipanna. Þetta á sérstaklega við um
þá aðila sem bjóða upp á siglingu í
kringum landið.
Það er því tækifæri fyrir íslenska
framleiðendur að bjóða fram íslenskar
vörur á leiðangursskipin, sem eru
minni skip og sérhæfa sig í siglingum
á heimsskautasvæðunum. Stóru
skipin, sem eru sum að taka kost hér á
landi að hluta, hafa ekki lagt áherslu á
íslenskar matvörur enn sem komið er
en vissulega er það mál sem vert er að
skoða líka. Sérstaklega ef vel gengur
með þessi minni skip. Við ákváðum
því að skoða hvort það er áhugi á að
koma inn með séríslenskar vörur undir
vörumerkinu Pure Artcic, sem er að
flytja út íslensk matvæli inn í þetta
verkefni. Til að byrja með hugsuðum
við verkefnið nánast einungis út frá
íslensku grænmeti en það virðist vera
áhugi á öðrum íslenskum vörum, þar
með talið lambakjöti og íslenskum
fiski, inn í þetta verkefni.
Það væri gaman að geta boðið
upp á ferskar íslenskar vörur um
VARAHLUTIR OG BÍLAVÖRUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
Skemmtiferðaskip við Skarfabakka. Myndir / Aðsendar
Vannýttur markaður fyrir íslenskar matvörur:
Kostur skemmtiferðaskipa
Von er á tæplega 300 farþegaskipum til Íslands á þessu ári. Ætla má að farþegar
verði ríflega 300 þúsund. Eitthvað er selt af íslenskum eggjum, fiski og mjólk
til þessara skipa en lítið af grænmeti og kjöti. Hér er um stóran og mögulega
vannýttan markað að ræða fyrir íslenskar landbúnaðarvörur og sjófang.
FRÉTTASKÝRING
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is