Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Ég tel mikilvægt að heimildir íslenskra bænda til samstarfs og samvinnu í afurðasölumálum séu formfestar og að þær heimildir séu ekki lakari en tíðkast í samanburðarlöndum. Félög bænda hafa víðtækt hlutverk víða um heim á mörkuðum með matvæli. Þau standa víða fyrir sam- eiginlegri sölu og flutningum landbúnaðarvara, setja sameiginleg viðmið um gæði og eiginleika framleiðslu og með samtakamátt að vopni hafa bændur möguleika á að tryggja sanngjarnari hlutdeild í virðiskeðju landbúnaðarvara. Slíkt fyrirkomulag gagnast bæði framleiðendum og neytendum. Sé markaðsöflunum einum eftirlátið að skipuleggja virðiskeðju landbúnaðar er samningsstaða bænda afleit. Þess vegna tel ég mikilvægt að íslenskir framleiðendur hafi sömu heimildir og í samanburðarlöndum. Framleiðendur eru margir en milliliðir fáir. Því hafa vel flest lönd mótað ramma utan um framleiðendafélög og fært þeim heimildir til samstarfs og samvinnu. Slíkan ramma skortir hér á landi. Það gerir það að verkum að möguleikar til nútímavæðingar í krafti samvinnu og samstarfs eru minni en víða annars staðar. Vinnandi fólk sækir kjarabætur í krafti samstöðu til atvinnurekenda. Í núverandi kerfi er framleiðendum búvara, bændum, óheimilt að nýta samstöðuna til kjarabóta. Aukin framleiðni og afurðaverð eru einu leiðirnar sem framleiðendur matvæla hafa til þess að sækja kjarabætur. Sambærilegar heimildir fyrir félög framleiðenda og í nágrannalöndum munu skapa skilyrði til að ná kjarabótum í virðiskeðju matvæla. Tryggjum bændum sambærileg tækifæri Markmiðsákvæði búvörulaga kveða m.a. á um það að tekjur þeirra sem stunda landbúnað séu í sem nánasta samræmi við tekjur annarra stétta. Þau markmið hafa verið nær óbreytt síðan 1947. Enda er það forsenda fyrir því að landbúnaður þrífist að bændur séu í sama efnahagslega veruleika og aðrar stéttir landsins. Ljóst er að misjafnlega hefur gengið að uppfylla þetta markmið. Lengi vel var framkvæmdin í landbúnaðarmálum sú að ríkið ákvað verð á öllum vörum, ákvað framleiðslumagn og bætti upp tap af útflutningi með útflutningsbótum. Það kerfi var í skrefum lagt niður, enda var það orðið með öllu ósjálfbært. Þá tók við tímabil kvótakerfa og samdráttar í framleiðslu. Verðlagning var gefin frjáls á flestum búvörum og félagasamtök bænda hafa verið beitt viðurlögum fyrir að álykta um að hækka þyrfti verð í samræmi við aukinn tilkostnað. Við þau kerfi, þó breytt séu, býr hluti landbúnaðarins við enn í dag. Lengi vel voru afurðafélög í eigu bænda í gegnum samvinnufélög en í tímans rás hefur þessi staða breyst í mismunandi búgreinum. Í dag eru afurðastöðvar í ýmsum formum og misjafnt hvort þær séu í eigu eða undir stjórn bænda. Kjarabætur í krafti samstöðu Samkeppnislög hafa önnur markmið en búvörulög og mikilvægt að allar undanþágur frá þeim séu skýrar og afmarkaðar enda eru markmið þeirra mikilvæg. Í ljósi þess tel ég eina forsendu þess að bændur geti fengið sanngjarnari afkomu að heimildir þeirra séu skýrar og afmarkist við félög í eigu eða stjórn bænda. Mikilvægt er að tryggja að heimildirnar séu ekki lakari en í þeim löndum sem við berum okkur saman við og að skilyrði fyrir hvaða félög teljist í eigu eða undir stjórn framleiðenda séu málefnaleg og sanngjörn. Ljóst er að greina þarf þennan þátt vel þar sem ýmis álitamál eru uppi. Félög framleiðenda í Evrópu eru afar fjölbreytt, sum eru samþætt félög sem eiga og reka ýmsa starfsemi á meðan önnur eiga engar eignir en beita sér fyrir bættri stöðu framleiðenda í virðiskeðjunni í krafti sameiginlegrar kröfugerðar um afurðaverð. Öll þessi félög hafa sinn tilgang og sitt hlutverk. Nýverið ákvað ég að falla frá fyrri áformum um að leggja fram frumvarp að tillögu spretthópsins um undanþágur frá samkeppnislögum í landbúnaði. Í ljósi þeirra athugasemda sem bárust taldi ég mikilvægt að vinna málið betur. Eftir stendur að hagræðingar er þörf í afurðageiranum og mikilvægt er að skapa ramma utan um samstarf og samvinnu bænda. Þeirri vinnu verður haldið áfram enda tilefnið skýrt og í fullu gildi eftir sem áður. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Svandís Svavarsdóttir Sköpum skilyrði til samstarfs og samvinnu AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.