Bændablaðið - 09.02.2023, Page 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Ég tel mikilvægt að heimildir
íslenskra bænda til samstarfs og
samvinnu í afurðasölumálum séu
formfestar og að þær heimildir
séu ekki lakari en tíðkast í
samanburðarlöndum.
Félög bænda
hafa víðtækt
hlutverk víða
um heim á
mörkuðum með
matvæli.
Þau standa
víða fyrir sam-
eiginlegri sölu
og flutningum
landbúnaðarvara,
setja sameiginleg viðmið um gæði
og eiginleika framleiðslu og með
samtakamátt að vopni hafa
bændur möguleika á að tryggja
sanngjarnari hlutdeild í virðiskeðju
landbúnaðarvara. Slíkt fyrirkomulag
gagnast bæði framleiðendum og
neytendum. Sé markaðsöflunum
einum eftirlátið að skipuleggja
virðiskeðju landbúnaðar er
samningsstaða bænda afleit.
Þess vegna tel ég mikilvægt að
íslenskir framleiðendur hafi sömu
heimildir og í samanburðarlöndum.
Framleiðendur eru margir en
milliliðir fáir. Því hafa vel flest
lönd mótað ramma utan um
framleiðendafélög og fært þeim
heimildir til samstarfs og samvinnu.
Slíkan ramma skortir hér á landi. Það
gerir það að verkum að möguleikar
til nútímavæðingar í krafti samvinnu
og samstarfs eru minni en víða
annars staðar.
Vinnandi fólk sækir kjarabætur í
krafti samstöðu til atvinnurekenda.
Í núverandi kerfi er framleiðendum
búvara, bændum, óheimilt að nýta
samstöðuna til kjarabóta. Aukin
framleiðni og afurðaverð eru einu
leiðirnar sem framleiðendur matvæla
hafa til þess að sækja kjarabætur.
Sambærilegar heimildir fyrir félög
framleiðenda og í nágrannalöndum
munu skapa skilyrði til að ná
kjarabótum í virðiskeðju matvæla.
Tryggjum bændum sambærileg
tækifæri
Markmiðsákvæði búvörulaga kveða
m.a. á um það að tekjur þeirra sem
stunda landbúnað séu í sem nánasta
samræmi við tekjur annarra stétta.
Þau markmið hafa verið nær óbreytt
síðan 1947.
Enda er það forsenda fyrir því
að landbúnaður þrífist að bændur
séu í sama efnahagslega veruleika
og aðrar stéttir landsins. Ljóst er að
misjafnlega hefur gengið að uppfylla
þetta markmið. Lengi vel var
framkvæmdin í landbúnaðarmálum
sú að ríkið ákvað verð á öllum
vörum, ákvað framleiðslumagn og
bætti upp tap af útflutningi með
útflutningsbótum. Það kerfi var í
skrefum lagt niður, enda var það
orðið með öllu ósjálfbært. Þá tók
við tímabil kvótakerfa og samdráttar
í framleiðslu.
Verðlagning var gefin frjáls á
flestum búvörum og félagasamtök
bænda hafa verið beitt viðurlögum
fyrir að álykta um að hækka
þyrfti verð í samræmi við aukinn
tilkostnað. Við þau kerfi, þó breytt
séu, býr hluti landbúnaðarins við enn
í dag. Lengi vel voru afurðafélög í
eigu bænda í gegnum samvinnufélög
en í tímans rás hefur þessi staða
breyst í mismunandi búgreinum.
Í dag eru afurðastöðvar í ýmsum
formum og misjafnt hvort þær séu í
eigu eða undir stjórn bænda.
Kjarabætur í krafti samstöðu
Samkeppnislög hafa önnur markmið
en búvörulög og mikilvægt að allar
undanþágur frá þeim séu skýrar og
afmarkaðar enda eru markmið þeirra
mikilvæg. Í ljósi þess tel ég eina
forsendu þess að bændur geti fengið
sanngjarnari afkomu að heimildir
þeirra séu skýrar og afmarkist við
félög í eigu eða stjórn bænda.
Mikilvægt er að tryggja að
heimildirnar séu ekki lakari en í
þeim löndum sem við berum okkur
saman við og að skilyrði fyrir hvaða
félög teljist í eigu eða undir stjórn
framleiðenda séu málefnaleg og
sanngjörn. Ljóst er að greina þarf
þennan þátt vel þar sem ýmis
álitamál eru uppi.
Félög framleiðenda í Evrópu eru
afar fjölbreytt, sum eru samþætt
félög sem eiga og reka ýmsa
starfsemi á meðan önnur eiga engar
eignir en beita sér fyrir bættri stöðu
framleiðenda í virðiskeðjunni í
krafti sameiginlegrar kröfugerðar
um afurðaverð. Öll þessi félög hafa
sinn tilgang og sitt hlutverk.
Nýverið ákvað ég að falla frá
fyrri áformum um að leggja fram
frumvarp að tillögu spretthópsins um
undanþágur frá samkeppnislögum
í landbúnaði. Í ljósi þeirra
athugasemda sem bárust taldi ég
mikilvægt að vinna málið betur.
Eftir stendur að hagræðingar er þörf
í afurðageiranum og mikilvægt er að
skapa ramma utan um samstarf og
samvinnu bænda.
Þeirri vinnu verður haldið áfram
enda tilefnið skýrt og í fullu gildi
eftir sem áður.
Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra.
Svandís
Svavarsdóttir
Sköpum skilyrði til
samstarfs og samvinnu
AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS