Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni skipta öllu máli fyrir virkni og endingu véla. Olís veitir ráðgjöf um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar. Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar í síma 515 1100 eða pontun@olis.is. Svo allt gangi smurt í vetur um losun gróðurhúsalofttegunda frá árinu 2021. Stærsti hluti losunar frá landbúnaði kemur frá búfé, vegna iðragerjunar og meðhöndlunar húsdýraáburðar og frá nytjajarðvegi. Aukin losun frá búfé er rakin til aukins fjölda nautgripa. Halldóra segir að ein gagnlegasta og hraðvirkasta aðferðin við að draga úr losun í nautgriparækt, sé að lækka burðaraldur á kvígum og lækka sláturaldur á sláturgripum. „Við settum okkur markmið í hvoru tveggja, að lækka aldurinn um tvær vikur á árinu 2022. Við fórum langt fram úr því og er burðaraldurinn nú 23,7 mánuðir hjá kvígunum og sláturaldur 22 mánuðir hjá nautum. Aðferðirnar sem við notuðum var að nýta betur mestu vaxtagetuna hjá kálfunum, ná sem mestum vexti úr þeim á fyrstu tólf vikunum.“ Afleiðing aðgerðanna höfðu ekki síst jákvæð fjárhagsleg áhrif ofan á þau loftslagsmiðuðu. Iðragerjun og hvatar Iðragerjun er einn af stærstu losunarþáttum frá landbúnaði, enda felst í því metanlosun. Lítið hefur þokast í lausnum á því en þó eru fram komin efni sem hægt er að blanda í fóður og eiga að draga úr losuninni. „Flest þessara efna eiga það þó sameiginlegt að draga úr nytinni í kúnum, þannig ekki er enn raunhæft að nota þau,“ segir Halldóra. Hún segir því að enn sé áhrifamesta aðgerðin til að draga úr iðragerjun í mjólkurkúm að framleiða meiri mjólk á hvern grip, og dreifa þar með losuninni niður á meira magn afurða. Gauti bendir hins vegar á að búvörusamningarnir, eins og þeir eru uppbyggðir í dag, vinni gegn þessum loftslagsvænu aðgerðum. „Greiðslum frá ríkinu er skipt í greiðslumark og gripagreiðslur. Því fleiri gripi sem þú ert með, því hærri gripagreiðslur færðu. Þó byrja greiðslurnar að skerðast við fimmtíu kýr.“ Halldóra tekur undir það. „Það er eiginlega fáránlegt hvernig þessu var breytt, þegar vægið á gripagreiðslunum var tvöfaldað.“ Þess í stað myndu þau vilja sjá kerfinu stýrt í átt að loftslagsvænni lausnum. Einnig sé æskilegt að koma til móts við bændur þegar fyrrnefnd efni til íblöndunar í fóðri fara í notkun. „Þá gengur ekki að það sé þér til tjóns að nota efni sem draga úr losun. Ef menn vilja draga úr losun þá verður að vera til staðar hvati, það er ekki nóg að höfða bara til samviskunnar. Það virkar ekki á alla,“ segir Gauti. Halldóra segist vilja sjá einhvers konar umbun til þeirra sem eru í aðgerðum til að draga úr losun eða auka bindingu kolefnis í endurskoðun búvörusamninga. Kyngreining sæðis er loftslagsmál Kyngreining á sæði er eitt af hagsmunamálum innan nautgripa- ræktar. Á meðan slík tækni stendur bændum í nágrannalöndum til boða hefur hún ekki verið innleidd hér á landi. Auk þess að vera hagkvæmnismál telja Halldóra og Gauti að notkun á slíkri tækni sé einnig stórt loftslagsmál og því brýnt að koma henni á hér á landi sem fyrst. „Þú gætir fengið kvígur úr bestu mjólkurkúnum þínum og notað hinar til að framleiða Angus blendinga sem vaxa margfalt hraðar en Íslendingarnir,“ bendir Halldóra á. Minnkuðu áburðarnotkun um nær 10 tonn Áburðarnotkun er stór þáttur í losun búa auk þess sem áburðarkaup eru einn stærsti útgjaldaliður bænda. Því hefur minnkandi notkun áburðar bæði hagræn og lofts- lagsvæn áhrif. En minnkandi áburðarnotkun má þó ekki koma niður á gæði heyja, enda sýnir það sig að eiginleikar fóðurs hafa bein áhrif á iðragerjunina. Halldóra og Gauti settu sér það markmið að minnka áburðarnotkun um 5% á hverja framleidda fóður- einingu. Að ári liðnu kom í ljós að þau fóru langt fram úr þeim áætlunum og minnkuðu notkunina mun meira. Þrjár aðferðir reyndust lykillinn að þessum árangri. „Við keyptum okkur niður- lagningarbúnað á skítatankinn sem eykur nýtnina á lífræna áburðinum. Við tókum sýni úr skítnum og létum efnagreina hann. Einnig notuðum við meira af haugmeltu sem á að draga úr tapi á köfnunarefni við dreifingu. Þá reyndum við að hafa skráningar eins nákvæmar og við gátum svo við værum ekki að bera meira af tilbúnum áburði á en við nákvæmlega þurftum. Þetta höfðum við aldrei gert áður. Við höfum líka fengið til okkar verktaka sem bera á fyrir okkur með tölvusýrðum áburðardreifara sem er afar nákvæmur,“ segir Halldóra. Með þessum aðferðum reyndust þau spara um tíu tonn af áburði. „Við notuðum 29 tonn af áburði á síðasta ári fyrir þessa framleiðslu, en áður notuðum við hátt í 40 tonn,“ segir Gauti. Slík minnkun á notkun hafi enn fremur afskaplega jákvæð áhrif á rekstur búsins. Af öðrum aðgerðum sem þau hafa ráðist í er notkun á niturbindandi plöntum í endurrækt túna, sem þau þó gerðu áður og féll því vel að verkefninu. Þau segja að fóðrið verði líka lystugra þannig. Með því spara þau einnig áburð. „Verkefnið snýst um að nýta betur það sem þú ert með í höndunum. En það krefst þess að þú fylgist vel með og sért með skráningar í lagi,“ segir Halldóra. Skógrækt, landgræðsla og endurheimt votlendis Halldóra og Gauti búa að því að vera með töluvert landsvæði undir. Á því hafa þau undanfarin ár staðið í skógrækt og landgræðslu, óháð verkefninu. En nú fellur öll slík vinna vel að áætlun þeirra að loftslagsmarkmiðum. Þannig hafa þau, síðan árið 2013, ræktað skóg og eru með ríflega 200 hektara svæði þar undir í skógræktaráætlun og planta í um 4–5 hektara ár hvert. „Svo erum við með gróðurlausa mela sem við erum að græða upp. Við berum á þá skít og moð og setjum svo tilbúinn áburð þar sem við komum skítnum ekki að,“ segir Gauti en auk þess hafa þau fyllt ofan í skurði og þar með endurheimt um 90 hektara af votlendi. Vilja meiri hvata Allar upplýsingar og gögn skrá þau svo inn í kolefnisreiknivél RML og þaðan fá þau niðurstöðu um bindingu og losun búsins. Samkvæmt þeim stuðlum bindur Engihlíð töluvert meira en það losar. Gauti bendir þó á að kolefnis- reiknivélin sé ófullkomin og nauðsynlegt sé að bæta hana. „Mér skilst að meiningin sé að þú getir sett inn þína stærstu losunarþætti og fengið út tölu hvað losunin er á lítra mjólkur eða kíló kjöts. Í dag er þetta í heildartölum.“ Eins séu margir óvissuþættir í útreikningunum. „Það sem vantar í íslenskan landbúnað eru mælingar á losun frá landi, bæði ræktuðu og þurrkuðu.“ Hann segir jákvætt skref að ríkið hafi falið Landgræðslunni að endurmeta losun gróðurhúsalofttegunda frá ræktarlandi. „Það þurfa að koma raunhæfar niðurstöður um losun frá landi. Það er ekkert gáfulegt að vera að moka ofan í skurði í tuttugu ár og sjá svo að það var ekki til neins,“ segir Gauti. Halldóra segir að í framhaldi þurfi bændur og landeigendur fjárhagslegan hvata til að taka þátt í loftslagsvænum aðgerðum, á borð við endurheimt votlendis. „Þeim bændum sem leggja það á sig að gera landið betra ætti að vera umbunað fram yfir þá sem ekki gera slíkt. Mér finnst í raun ekki ganga upp að allir sitji við sama borð.“ Þau telja til dæmis gerlegt að koma slíkum hvötum á í kjötframleiðslu, með því að votta og markaðssetja sérstaklega kjöt sem framleitt er á loftslagsvænan hátt. Þátttakendur bera saman bækur sínar Þátttakendur í Loftslagsvænum landbúnaði fá hálfa milljón króna á ári ef þau skila árangri samkvæmt aðgerðaráætluninni. Halldóra og Gauti telja það fjármagn ákveðna þóknun en verkefninu fylgja kvaðir við skrásetningar sem geta verið tímafrekar. Aftur á móti segjast þau læra mikið af því að taka þátt. Þau sitja fjölbreytta fyrirlestra á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins sem þau láta vel að.Í raun sé þó mesti ábatinn betri búrekstur sem skilar sér beint í fjárhagsafkomuna. „Það er ekki annað hægt en að hvetja bændur til að taka þátt því það hefur jákvæð áhrif á reksturinn,“ segir Gauti. Þau segja jafnframt gefandi að vera í samskiptum við aðra bændur sem taka þátt í verkefninu. „Það er mjög mikill hugur í því fólki sem tekur þátt. Við hittumst hér í sumar og sýndum hvað við vorum að gera. Maður sér alltaf eitthvað hjá öðrum sem hægt er að læra af. Eins er gott fyrir okkur að hitta annað fólk sem er að hugsa um þessa hluti.“ Á Engihlíð er mjaltabás með tólf tækjum. Við settum okkur markmið um að minnka olíunotkun um fimm prósent frá árinu á undan en samdrátturinn varð tíu prósent, úr 6.700 lítrum í 6.000.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.