Bændablaðið - 09.02.2023, Page 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni
skipta öllu máli fyrir virkni og endingu véla. Olís veitir ráðgjöf
um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Svo allt
gangi smurt í vetur
um losun gróðurhúsalofttegunda frá
árinu 2021. Stærsti hluti losunar frá
landbúnaði kemur frá búfé, vegna
iðragerjunar og meðhöndlunar
húsdýraáburðar og frá nytjajarðvegi.
Aukin losun frá búfé er rakin til
aukins fjölda nautgripa.
Halldóra segir að ein gagnlegasta
og hraðvirkasta aðferðin við að
draga úr losun í nautgriparækt, sé
að lækka burðaraldur á kvígum og
lækka sláturaldur á sláturgripum.
„Við settum okkur markmið í
hvoru tveggja, að lækka aldurinn
um tvær vikur á árinu 2022. Við
fórum langt fram úr því og er
burðaraldurinn nú 23,7 mánuðir hjá
kvígunum og sláturaldur 22 mánuðir
hjá nautum. Aðferðirnar sem við
notuðum var að nýta betur mestu
vaxtagetuna hjá kálfunum, ná sem
mestum vexti úr þeim á fyrstu tólf
vikunum.“
Afleiðing aðgerðanna höfðu ekki
síst jákvæð fjárhagsleg áhrif ofan á
þau loftslagsmiðuðu.
Iðragerjun og hvatar
Iðragerjun er einn af stærstu
losunarþáttum frá landbúnaði,
enda felst í því metanlosun. Lítið
hefur þokast í lausnum á því en þó
eru fram komin efni sem hægt er
að blanda í fóður og eiga að draga
úr losuninni. „Flest þessara efna
eiga það þó sameiginlegt að draga
úr nytinni í kúnum, þannig ekki er
enn raunhæft að nota þau,“ segir
Halldóra. Hún segir því að enn sé
áhrifamesta aðgerðin til að draga
úr iðragerjun í mjólkurkúm að
framleiða meiri mjólk á hvern grip,
og dreifa þar með losuninni niður á
meira magn afurða.
Gauti bendir hins vegar á að
búvörusamningarnir, eins og þeir
eru uppbyggðir í dag, vinni gegn
þessum loftslagsvænu aðgerðum.
„Greiðslum frá ríkinu er skipt í
greiðslumark og gripagreiðslur.
Því fleiri gripi sem þú ert með, því
hærri gripagreiðslur færðu. Þó byrja
greiðslurnar að skerðast við fimmtíu
kýr.“ Halldóra tekur undir það.
„Það er eiginlega fáránlegt hvernig
þessu var breytt, þegar vægið á
gripagreiðslunum var tvöfaldað.“
Þess í stað myndu þau vilja sjá
kerfinu stýrt í átt að loftslagsvænni
lausnum. Einnig sé æskilegt að
koma til móts við bændur þegar
fyrrnefnd efni til íblöndunar í fóðri
fara í notkun.
„Þá gengur ekki að það sé þér
til tjóns að nota efni sem draga úr
losun. Ef menn vilja draga úr losun
þá verður að vera til staðar hvati,
það er ekki nóg að höfða bara til
samviskunnar. Það virkar ekki á
alla,“ segir Gauti.
Halldóra segist vilja sjá einhvers
konar umbun til þeirra sem eru
í aðgerðum til að draga úr losun
eða auka bindingu kolefnis í
endurskoðun búvörusamninga.
Kyngreining sæðis er loftslagsmál
Kyngreining á sæði er eitt af
hagsmunamálum innan nautgripa-
ræktar. Á meðan slík tækni stendur
bændum í nágrannalöndum til
boða hefur hún ekki verið innleidd
hér á landi.
Auk þess að vera hagkvæmnismál
telja Halldóra og Gauti að notkun
á slíkri tækni sé einnig stórt
loftslagsmál og því brýnt að koma
henni á hér á landi sem fyrst.
„Þú gætir fengið kvígur úr bestu
mjólkurkúnum þínum og notað hinar
til að framleiða Angus blendinga
sem vaxa margfalt hraðar en
Íslendingarnir,“ bendir Halldóra á.
Minnkuðu áburðarnotkun
um nær 10 tonn
Áburðarnotkun er stór þáttur í losun
búa auk þess sem áburðarkaup eru
einn stærsti útgjaldaliður bænda.
Því hefur minnkandi notkun
áburðar bæði hagræn og lofts-
lagsvæn áhrif. En minnkandi
áburðarnotkun má þó ekki koma
niður á gæði heyja, enda sýnir það
sig að eiginleikar fóðurs hafa bein
áhrif á iðragerjunina.
Halldóra og Gauti settu sér það
markmið að minnka áburðarnotkun
um 5% á hverja framleidda fóður-
einingu. Að ári liðnu kom í ljós
að þau fóru langt fram úr þeim
áætlunum og minnkuðu notkunina
mun meira. Þrjár aðferðir reyndust
lykillinn að þessum árangri.
„Við keyptum okkur niður-
lagningarbúnað á skítatankinn sem
eykur nýtnina á lífræna áburðinum.
Við tókum sýni úr skítnum og létum
efnagreina hann. Einnig notuðum
við meira af haugmeltu sem á að
draga úr tapi á köfnunarefni við
dreifingu. Þá reyndum við að hafa
skráningar eins nákvæmar og við
gátum svo við værum ekki að bera
meira af tilbúnum áburði á en við
nákvæmlega þurftum. Þetta höfðum
við aldrei gert áður. Við höfum líka
fengið til okkar verktaka sem bera
á fyrir okkur með tölvusýrðum
áburðardreifara sem er afar
nákvæmur,“ segir Halldóra.
Með þessum aðferðum reyndust
þau spara um tíu tonn af áburði. „Við
notuðum 29 tonn af áburði á síðasta
ári fyrir þessa framleiðslu, en áður
notuðum við hátt í 40 tonn,“ segir
Gauti. Slík minnkun á notkun hafi
enn fremur afskaplega jákvæð áhrif
á rekstur búsins.
Af öðrum aðgerðum sem þau hafa
ráðist í er notkun á niturbindandi
plöntum í endurrækt túna, sem
þau þó gerðu áður og féll því vel
að verkefninu. Þau segja að fóðrið
verði líka lystugra þannig. Með því
spara þau einnig áburð.
„Verkefnið snýst um að nýta betur
það sem þú ert með í höndunum. En
það krefst þess að þú fylgist vel með
og sért með skráningar í lagi,“ segir
Halldóra.
Skógrækt, landgræðsla og
endurheimt votlendis
Halldóra og Gauti búa að því að
vera með töluvert landsvæði undir.
Á því hafa þau undanfarin ár staðið
í skógrækt og landgræðslu, óháð
verkefninu.
En nú fellur öll slík vinna
vel að áætlun þeirra að
loftslagsmarkmiðum. Þannig hafa
þau, síðan árið 2013, ræktað skóg og
eru með ríflega 200 hektara svæði
þar undir í skógræktaráætlun og
planta í um 4–5 hektara ár hvert.
„Svo erum við með gróðurlausa
mela sem við erum að græða upp.
Við berum á þá skít og moð og
setjum svo tilbúinn áburð þar sem
við komum skítnum ekki að,“ segir
Gauti en auk þess hafa þau fyllt ofan
í skurði og þar með endurheimt um
90 hektara af votlendi.
Vilja meiri hvata
Allar upplýsingar og gögn skrá þau
svo inn í kolefnisreiknivél RML og
þaðan fá þau niðurstöðu um bindingu
og losun búsins. Samkvæmt þeim
stuðlum bindur Engihlíð töluvert
meira en það losar.
Gauti bendir þó á að kolefnis-
reiknivélin sé ófullkomin og
nauðsynlegt sé að bæta hana. „Mér
skilst að meiningin sé að þú getir
sett inn þína stærstu losunarþætti
og fengið út tölu hvað losunin er á
lítra mjólkur eða kíló kjöts. Í dag er
þetta í heildartölum.“
Eins séu margir óvissuþættir í
útreikningunum.
„Það sem vantar í íslenskan
landbúnað eru mælingar á losun frá
landi, bæði ræktuðu og þurrkuðu.“
Hann segir jákvætt skref að ríkið hafi
falið Landgræðslunni að endurmeta
losun gróðurhúsalofttegunda frá
ræktarlandi.
„Það þurfa að koma raunhæfar
niðurstöður um losun frá landi.
Það er ekkert gáfulegt að vera að
moka ofan í skurði í tuttugu ár og
sjá svo að það var ekki til neins,“
segir Gauti.
Halldóra segir að í framhaldi
þurfi bændur og landeigendur
fjárhagslegan hvata til að taka þátt
í loftslagsvænum aðgerðum, á borð
við endurheimt votlendis.
„Þeim bændum sem leggja það á
sig að gera landið betra ætti að vera
umbunað fram yfir þá sem ekki gera
slíkt. Mér finnst í raun ekki ganga
upp að allir sitji við sama borð.“
Þau telja til dæmis gerlegt
að koma slíkum hvötum á í
kjötframleiðslu, með því að votta
og markaðssetja sérstaklega kjöt sem
framleitt er á loftslagsvænan hátt.
Þátttakendur bera saman
bækur sínar
Þátttakendur í Loftslagsvænum
landbúnaði fá hálfa milljón króna á
ári ef þau skila árangri samkvæmt
aðgerðaráætluninni. Halldóra og
Gauti telja það fjármagn ákveðna
þóknun en verkefninu fylgja kvaðir
við skrásetningar sem geta verið
tímafrekar.
Aftur á móti segjast þau
læra mikið af því að taka þátt.
Þau sitja fjölbreytta fyrirlestra
á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins sem þau láta vel
að.Í raun sé þó mesti ábatinn betri
búrekstur sem skilar sér beint í
fjárhagsafkomuna.
„Það er ekki annað hægt en að
hvetja bændur til að taka þátt því
það hefur jákvæð áhrif á reksturinn,“
segir Gauti.
Þau segja jafnframt gefandi að
vera í samskiptum við aðra bændur
sem taka þátt í verkefninu.
„Það er mjög mikill hugur í því
fólki sem tekur þátt. Við hittumst
hér í sumar og sýndum hvað við
vorum að gera. Maður sér alltaf
eitthvað hjá öðrum sem hægt er að
læra af. Eins er gott fyrir okkur að
hitta annað fólk sem er að hugsa um
þessa hluti.“
Á Engihlíð er mjaltabás með tólf tækjum.
Við settum okkur
markmið um að
minnka olíunotkun um
fimm prósent frá árinu á
undan en samdrátturinn
varð tíu prósent, úr
6.700 lítrum í 6.000.“