Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023
Gasið sem myndast í tönkunum
nefnist hauggas, sem er að
megninu til blanda af metani og
koldíoxíði. Eftir að búið er að
meðhöndla mykjuna á þennan
hátt er hún orðin að betri áburði,
þar sem köfnunarefnissamböndin
brotna niður og verða aðgengilegri
plöntunum.
60 til 65 prósent af rúmmáli
hauggassins er metan. Með
lágmarkshreinsun nýtist það til
að hita katla og sem eldsneyti á
rafstöðvar. Erlendis tíðkast að
framleiða rafmagn og varma á
þennan hátt. Hérlendis er hitaveita
og vatnsaflsorka ódýrari, sem
hefur komið í veg fyrir frekari
innleiðingu.
Ýmsar aðferðir eru til að
fullhreinsa hauggas, en hérlendis
tíðkast að láta það fara í gegnum
vatnsbað, sem leysir upp öll
óæskilegu gösin og skilur metanið
eftir. Að lokinni þurrkun fæst
eldsneytið sem dælt er á bifreiðar
og vinnuvélar. Koldíoxíð er stærsta
aukaefnið í hauggasi og er möguleiki
á að vinna úr því kolsýru sem ýmist
gagnast í ylrækt eða gosdrykkjagerð.
Í líforkuverinu er gert ráð fyrir
þeim möguleika að sótthreinsa
mykjuna áður en hún fer í tankana.
Þá er hún hituð vel yfir 100 °C undir
þrýstingi sem á að koma í veg fyrir
dreifingu smitefna. Reikna þarf með
að stöku bæir geti ekki tekið þátt ef
áhætta á dreifingu búfjársjúkdóma
er mikil.
„Þetta getur klárlega verið hluti
af þessari orkuskiptavegferð sem
við erum á. Hvað eldsneytishliðina
varðar er fólk áhugasamt um vetni
og annað rafeldsneyti, en metanið
er ekki síður áhugaverður kostur þó
ekki verði hægt að framleiða það í
jafn miklum mæli,“ segir Ásgeir, en
verðleikar metans felast m.a. í því að
framleiðslan er afar orkuhagkvæm.
Við framleiðslu á vetni þarf minnst
tífalt meiri raforku samanborið við
framleiðslu á jafn mikilli orku í
formi metans eins og tæknin er núna.
Færeyingar með fullkomið
líforkuver
Eitt af því sem horft var til við frum
hagkvæmnimatið er líforkuverið
Förka, rétt norðan við Þórshöfn í
Færeyjum. Þar er hráefnið seyra
frá landeldi, úrgangur úr sjókvíum
ásamt mykju frá kúabúum, og afurðin
er góður áburður, metan og varmi.
Lítill hluti hráefnisins eru skemmdir
ávextir og grænmeti úr verslunum.
Förka er alfarið í eigu fiskeldis
risans Bakkafrosts. Fróði Mortensen,
framkvæmdastjóri Förka, segir
kaupendur eldisfisks farna að
gera ríkari kröfu um sjálfbærni í
framleiðslu, ekki bara þegar kemur að
loftslagsmálum, heldur líka varðandi
mengun.
Meira en helmingur af út
flutningstekjum Færeyinga er frá
fiskeldi. Því skiptir Bakkafrost
miklu máli að auka sjálfbærni
framleiðslunnar og að losna við
úrganginn á sem bestan máta. Fróði
segir að gengið sé út frá því að lax
sem drepst í sjókvíum beri með sér
sjúkdóma og því nauðsynlegt að
fjarlægja hræin áður en smitefnin
dreifa úr sér. Þennan úrgang þarf að
meðhöndla með varúð og má ekki
nýta ómeðhöndlaðan sem fæðu,
fóður eða áburð eða losa í hafið. Áður
en lífmassaverið var sett upp voru
hræin send til vinnslu í Noregi og
send þaðan sem hráefni í lífmassaver
í Danmörku. Nú er öruggur farvegur
fyrir úrganginn hjá Förka.
Með því að vinna úr úrganginum
innanlands styður Bakkafrost við
myndun hringrásarhagkerfisins og
hefur jákvæð áhrif á samfélagið.
„Þetta er dýrt, en samt er þetta
ódýrara samanborið við áður,“ segir
Fróði.
Flutt án endurgjalds
Starfsmenn Förka sækja mykjuna
með flutningabílum á bæina og skila
verkuðum áburði til baka. Bændurnir
borga ekkert fyrir flutninginn eða
meðferðina í líforkuverinu. Það
eina sem bændurnir þurfa að gera
er að koma upp tvöfaldri geymslu
á lífrænum áburði, þannig að hægt
sé að halda meltri mykju aðskilinni.
Bændum býðst ekki geymslupláss í
lífmassaverinu, því Förka fær mun
betri nýtingu á flutningabýlunum ef
þeir keyra fulllestaðir báðar leiðir.
Færeyskir sauðfjárbændur eru
einnig í samstarfi við Förka, þrátt
fyrir að leggja engin hráefni í
líforkuverið. Þeirra framlag er að
leggja til beitiland og tún meðfram
þjóðvegum sem Förka getur spúlað
áburði á með þar til gerðri dælu á
flutningabíl. Stöku kúabændur nýta
sömu þjónustu og spara þar með
vinnu og eldsneyti við að keyra
mykjunni sjálfir á túnin.
Förka efnagreinir áburðinn og
sendir upplýsingarnar til bændanna.
Með því geta þeir séð nákvæmlega
hvað þeir eru með í höndunum.
Samkvæmt Fróða geta bændurnir
uppfyllt þörfina á köfnunarefni með
áburðinum frá Förka og gefur seyran
frá landeldinu mikinn fosfór. Kaup á
tilbúnum áburði eru því í lágmarki.
„Bændurnir fá betri afurð þar sem
þetta lyktar ekki illa, inniheldur meiri
vökva, er einsleitara og er með meira
af næringarefnum.“
Ferlið í gegnum Förka
Tveir móttökutankar eru við
líforkuverið. Annar tekur við
mykju og seyru, á meðan hinn er
hugsaður fyrir laxahræ. Hráefnið í
móttökutönkunum er hitað upp í 85 °C
í eina klukkustund til gerilsneyðingar.
Að því loknu er efninu dælt í aðal
verkunartankinn þar sem gerjunin
hefst við 28 °C. Þaðan er efninu dælt
í minni gerjunartank og kælt niður
í 25 °C og er umframhitinn nýttur
til kyndingar. Þaðan fer efnið svo í
geymslutanka sem duga til að geyma
vikuforða af framleiðslu.
Metanið sem verður til er notað í
rafstöð, sem annars vegar framleiðir
rafmagn sem sett er á dreifikerfið,
og hins vegar skilar rafstöðin af sér
varma sem fer í vinnsluna og í að
kynda hús í Þórshöfn. Á síðasta ári
seldi Förka 2,6 gWst af rafmagni, en
Fróði segir að stefnt sé að því að ná
þessari tölu upp í 9 gWst eftir einhver
ár. Markmiðið er að framleiða
rafmagn fyrir 1.900 heimili og hita
fyrir 400.
Aðspurður hvaða úrgangur komi
frá starfsemi Förka segir Fróði að
það séu einungis slitnir vélahlutir,
skrifstofupappír og umbúðir. Einnig
kemur eitthvað af koltvísýringi frá
metanrafstöðinni.
Metan mun alltaf fylgja okkur
Ragnar K. Ásmundsson, Ph.D.,
verkefnisstjóri Orkusjóðs, segir að
mest af því metani sem framleitt er
í heiminum sé jarðgas – sem oftar
en ekki er aukaafurð úr olíulindum.
Allt metan sem er nýtt og framleitt
á Íslandi kemur frá úrgangi.
Ragnar segir mikið loftslagsmál
að safna metani úr lífrænum
úrgangi, en eins og áður segir er það
gastegund sem veldur mun meiri
loftslagsáhrifum en koltvísýringur.
„Það er loftslagsatriði þó þú gerir
ekkert annað en að kveikja í þessu.“
Ragnar nefnir að metangas sem
búið er að kæla niður á vökvaform
sé talsvert notað sem eldsneyti á
skipavélar og er bruninn á því
mjög hreinn samanborið við dísil
eða bensín. „Metan er þó ekki sett
efst á lista yfir þau eldsneyti sem
eiga að taka við síðar meir þar sem
sameindin inniheldur kol og við
brunann myndast koltvísýringur.
Metan verður samt alltaf með
okkur af því að við erum kolbaseruð
lífvera og það er partur af okkar
lífi. Við þurfum því að koma því
í farveg.“
Félagið Norður með svissneska
bakhjarla standa á bak við verkefni
á Hellisheiði og Þeistareykjum sem
byggjast á að fanga og nýta metan
sem verður til við framleiðslu á
jarðvarma.
„Ef það fer af stað eru ákveðin
samlegðaráhrif sem auka metan á
íslenskum markaði,“ segir Ragnar.
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Virka daga 10-17
Laugardaga 11-15
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022
Óhagkvæmt á
smáum skala
Jón Tryggvi Guðmundsson, vél-
tæknifræðingur á orkusviði, gerði
tilraun fyrir nokkrum árum við
framleiðslu metans úr mykju sem
féll til á kúabúinu Hraungerði í
Flóahreppi. Tækjabúnaðurinn gat
framleitt átta rúmmetra á klukku-
tíma og nýtti Jón Tryggvi afurðina
sem eldsneyti á eigin bíla.
Aðspurður hvort hann myndi fara
aftur í sömu vegferð, verandi með
þá reynslu sem hann er með núna,
segir Jón Tryggvi forsendurnar
vera breyttar. „Þegar ég fór af
stað árið 2008 var þróun rafbíla
ekki komin eins langt og núna.
Mínar hugmyndir gengu út á að
framleiða metan á fólksbíla sem
þá var þekkt lausn og komnar upp
metanstöðvar í Reykjavík.“
Jón Tryggvi segir torsótt að safna
upp miklum metanforða með
einföldum tækjabúnaði. Þetta
atriði geri ópraktískt fyrir bændur
að fá sér metantraktora með það
að sjónarmiði að framleiða orkuna
á þá sjálfir. „Þegar orkuþörfin er
mest, á sumrin í heyskap, þá ertu
búinn að dreifa öllum haugnum
á túnin og ert með tóm haughús.
Bændur þyrftu að gera einhverjar
ráðstafanir til að tryggja að
framleiðslan fari fram jöfnum
höndum og notkunin.“
Stofnkostnaðurinn er nokkuð hár
og getur Jón Tryggvi ekki mælt
með að einstaka býli fari í sömu
vegferð. „Mér finnst hundleiðinlegt
að þurfa að segja þetta en það
er ekki arður af þessu og þetta
stendur varla undir sér.“
Guðmundur H. Sigurðarson.
Ásgeir Ívarsson.
Gunnar Dofri Ólafsson.
Ragnar K. Ásmundsson.
Fróði Mortensen.
Smári Jónas Lúðvíksson.
Með réttum innviðum er hægt að auka áburðargildi mykju svo um munar.
Mynd / Úr myndasafni