Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 09.02.2023, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Kynbótamatið er í stöðugri þróun og á síðasta ári varð sú breyting á útreikningi að hætt var að leiðrétta fyrir umhverfisáhrifum sýningarárs. Sú breyting gerði það að verkum að röðun hrossa í kynbótamatinu breyttist töluvert á alþjóðlegum grunni en hélt sér að mestu innan landa. Þróun á kynbótamatinu er langt komin en næsta skref verður að bæta við því að kynbótamat verði reiknað á grunni keppnisgagna auk gagna frá kynbótasýningum eins og er gert í dag. Það er mikilvægt að endurmeta þau lágmörk sem gilda fyrir afkvæmaverðlaun verði mikil breyting á niðurstöðum við mismunandi skref í þróun matsins. Í dag þarf hryssa að eiga að lágmarki fimm dæmd afkvæmi og vera með 116 stig í kynbótamati ýmist fyrir aðaleinkunn eða fyrir aðaleinkunn án skeiðs til að hljóta viðurkenningu fyrir afkvæmi. Af þeim 20 hryssum sem hlutu verðlaun fyrir afkvæmi árið 2022 voru 4 sem ná viðmiðinu 116 fyrir aðaleinkunn án skeiðs. Röðun hryssna fer eftir kynbótamati fyrir aðaleinkunn, ekki eftir kynbótamati fyrir aðaleinkunn án skeiðs. Hér á eftir og í næsta blaði verður fjallað um þessar hryssur og dómsorð afkvæma. Elísa frá Feti Efsta hryssan árið 2022, og þar með Glettubikarhafinn, er Elísa frá Feti. Hún er undan heiðursverðlaunahrossunum Gusti frá Hóli og Þernu frá Feti. Ræktandi Elísu er Guðmundur Friðrik Björgvinsson en eigendur eru Takthestar ehf. og John Sörensen. Elísa er með 126 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 12 afkvæmi og hafa 6 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Elísa frá Feti gefur hross í meðalstærð. Höfuðið er með vel opin augu og vel borin eyru en kjálkar eru stundum djúpir. Hálsinn er reistur við háar herðar með góða yfirlínu. Bakið hefur jafnan góða yfirlínu og er vöðvafyllt líkt og lendin. Samræmið er hlutfallrétt og fótahátt. Fætur eru þurrir en útskeifir og nágengir að framan. Hófar eru efnisgóðir og prúðleiki meðalgóður. Afkvæmin eru alhliðageng með skrefgott og takthreint tölt. Brokkið er fremur skrefmikið og taktgott líkt og skeiðið. Stökkið er afar gott, hátt og takthreint og hæga stökkið er svifgott. Fetið er taktgott með góða skreflengd. Afkvæmin fara vel í reið með góðum fótaburði. Elísa gefur reist og samræmisgóð hross með góða yfirlínu. Þau eru viljug, skrefmikil með góð gangskil og fótaburð. Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið. Æsa frá Flekkudal Hryssan í öðru sæti er Æsa frá Flekkudal. Hún er undan heiðursverðlaunahrossunum Orra frá Þúfu og Pyttlu frá Flekkudal. Ræktandi hennar er Guðný Ívarsdóttir en eigendur eru Guðný Ívarsdóttir og Sigurður Sigurðarson. Æsa er með 127 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 10 afkvæmi og hafa 6 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Æsa frá Flekkudal gefur stór hross. Höfuðið er með vel opin augu og vel borin eyru en ekki fínlegt. Hálsinn er reistur við háar herðar en getur verið djúpur. Bakið er fremur breitt og lendin öflug en stundum gróf. Samræmi er hlutfallarétt og fætur þurrir með öflugar sinar en geta verið nágengir. Hófar eru afar góðir með hvelfdan botn og efnismiklir, prúðleiki er alla jafna góður. Afkvæmin eru til helminga alhliðageng eða klárhross. Töltið og hæga töltið er mjög gott og jafnan skrefmikið með góðum fótaburði. Gæði brokksins getur brugðið til beggja átta allt frá því að vera sæmilegt og upp í það að vera úrvalsgott en að uppistöðu er það skrefgott með góðri lyftu. Ef skeiðgeta er til staðar er hún ekki mikil. Stökkið er skrefmikið og lyftingargott og hæga stökkið takthreint og svifgott. Fetið er líkt og brokkið afar misgott en er oftar skrefmikið og takthreint. Æsa frá Flekkudal gefur framfalleg og samræmisgóð hross sem eru sterkari á klárganginn. Afkvæmin fara vel í reið með góðum fótaburði og hafa góða framhugsun og eru samstarfsfús. Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og annað sætið. Hnota frá Stuðlum Hryssan í þriðja sæti er Hnota frá Stuðlum. Hún er undan heiðursverðlaunahrossunum Orra frá Þúfu og Þernu frá Arnarhóli. Ræktendur og eigendur hennar eru Edda Björg Ólafsdóttir og Páll Stefánsson. Hnota er með 124 stig í kynbótamati fyrir aðaleinkunn en hún á 8 afkvæmi og hafa 6 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Hnota frá Stuðlum gefur fremur stór hross. Höfuðið er fínlegt og skarpt með beina neflínu. Hálsinn er langur, mjúkur og hátt settur. Bakið er fremur breitt og lendin öflug en yfirlína í baki er misgóð. Samræmi einkennist af jöfnum hlutföllum og fótahæð. Fótagerð er afar góð, fætur þurrir með öflugar sinar og fremur góð sinaskil en geta verið nágengir að framan og aftan. Hófar eru efnismiklir og traustir en prúðleiki er í tæpu meðallagi. Afkvæmin eru ýmist alhliðageng eða klárhross með afar góðu tölti. Töltið og hæga töltið er mjög gott, takthreint, mjúkt með góðri lyftu og jafnan skrefmikið með miklum fótaburði. Sé skeið fyrir hendi er það takthreint og öruggt. Stökkið er ferðmikið með góðri fótlyftu og hæga stökkið er jafnvægisgott og takthreint. Fetgæðin eru misjöfn bæði hvað varðar skreflengd og framtak. Afkvæmin eru ásækin í vilja en þjál og fara afar vel í reið, reist með miklum fótaburði. Hnota frá Stuðlum gefur framfalleg og myndarleg hross með afar góða fætur. Þau eru ásækin í vilja með fallega framgöngu. Hún hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og þriðja sætið. Hrönn frá Búlandi Hryssan í fjórða sæti er Hrönn frá Búlandi. Hún er undan Smára frá Skagaströnd og Heklu frá Efri-Rauðalæk. Ræktandi hennar er Björgvin Daði Sverrisson og eigendur eru Björgvin Daði Sverrisson og Helena Ketilsdóttir. Hrönn er með 121 stig í kynbótamati fyrir aðal- einkunn en hún á 13 afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið kynbótadóm. Dómsorð afkvæma: Hnota frá Búlandi gefur hross í meðallagi að stærð. Höfuðið er fremur skarpt en merarskálar gætir stundum. Hálsinn er reistur og hátt settur. Bak og lend er vöðvafyllt en baklína mætti stundum vera hærri. Afkvæmin eru hlutfallrétt og sívalvaxin með meðalgóða fætur sem eru fremur réttir. Hófar eru efnismiklir með hvelfdan botn og prúðleiki er í tæpu meðallagi. Afkvæmin eru flest Hrossarækt: Hryssur sem hlutu heiðursverðlaun haustið 2022 – Fyrri hluti: Hryssur í 1.–9. sæti RÁÐGJAFARMIÐSTÖÐ LANDBÚNAÐARINS Hið alþjóðlega kynbótamat fyrir íslenska hestinn var reiknað eftir alla dóma ársins í lok október 2022 og birt í WorldFeng. Þar kom í ljós að 20 hryssur á Íslandi hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Þetta eru mun fleiri hryssur er almennt er að hljóti slík verðlaun á einu ári en skýringuna er helst að finna í breyttum útreikningi á kynbótamati. Elísa frá Feti, efsta hryssan árið 2022 ásamt afkvæmi og ræktanda sínum. Mynd / Aðsend Halla Eygló Sveinsdóttir. Elsa Albertsdóttir. Hrönn frá Búlandi. Mynd / Aðsend Álfarún frá Halakoti. Mynd / Aðsend Gréta frá Feti. Mynd / Aðsend Píla frá Syðra-Garðshorni. Mynd / Aðsend Glæða frá Þjóðólfshaga 1. Mynd / KollaGr Hnota frá Stuðlum. Mynd /Eiðfaxi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.