Bændablaðið - 09.02.2023, Side 30

Bændablaðið - 09.02.2023, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2023 Líkt og gefur að skilja er þjónusta við slík skip mikil og eitthvað þarf allt þetta fólk að borða. Bændablaðið leitaði upplýsinga hjá markaðsaðilum og framleiðendum um hvernig þessi markaður er og hvort skipin væru að kaupa íslenskar matvörur. Viðmælendur eru sammála um að markaðurinn sé stór og áhugaverður en að ólíklegt sé að íslensk framleiðsla eins og hún er í dag geti sinnt honum nema litlum hluta hans. Leiðangursskip vænlegri markaður Skemmtiferðaskipin sem koma hingað eru aðallega tvenns konar. Svokölluð leiðangursskip eru skip sem taka að jafnaði allt að 500 farþega, en eru oftast 200 til 300 farþega skip. Þau skip leggja áherslu á upplifun á Norðurslóðum og ekki síst að upplifa menningu íbúanna. Þar með talið matarmenningu. Stærri skip geta tekið allt að 4.000 farþega en algengara að þau séu á bilinu 1.000 til 2.500 farþega skip sem koma til Íslands. Sigurður Jökull Ólafsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, segir að leiðangursskipin leggi áherslu á menningu þeirra svæða sem þau sækja heim og þar með talið matarmenningu. „Þau eru því vænlegri markhópur fyrir íslenska framleiðendur. Hins vegar hafa stærri skipin verið að versla eitthvert lítilræði samkvæmt því sem ég hef heyrt.“ Stóru skemmtiferðaskipin kaupa lítið af íslenskum mat Jóhann Bogason, framkvæmdastjóri Gáru skipamiðlunar, segir komur skemmtiferðaskipa vítt og breitt um landið þegar allt er talið mörg hundruð á ári og þar af hátt í þrjú hundruð bara til Reykjavíkur. „Við fáum reglulega fyrirspurnir um afgreiðslu á matvöru, sérstaklega ferskvöru eins og grænmeti og mjólkurafurðir, um borð í þessi skip. Við kaupum vörurnar hjá stórum birgjum eins og Innnesi, Ekrunni og Garra og ég veit ekki hvort þeir leggi áherslu á að selja íslenskar matvörur eða ekki, enda gerum við ekki greinarmun á innlendri eða erlendri matvöru þegar við kaupum hana fyrir skipin. Fyrir Covid var í gangi verkefni sem hét Flavour of Iceland þar sem unnið var markvisst að því að kynna íslenskar matvörur fyrir útgerðum skemmtiferðaskipa en ég veit ekki til þess að slík markaðssetning hafi átt sér stað síðan þá.“ Jóhann segir að minni skipin, leiðangursskip, gefi sig út fyrir að bjóða staðbundinn mat um borð að minnsta kosti einu sinni í viku. „Þá er keyptur íslenskur bjór og eitthvað sterkara líka, kjöt og fiskur og búinn til viðburður í kringum íslenskt þema. Stóru skipin stoppa stutt og allt meira fyrirséð og fast í skorðum og þau kaupa lítið af matvöru hér. Ég sé alveg fyrir mér að það sé góður markaður fyrir íslenskar matvörur hjá leiðangursskipunum, sérstaklega ef lögð er áhersla á lífræn matvæli.“ Framboð af grænmeti af skornum skammti Jóhannes Þór Ævarsson, fram- kvæmdastjóri ferskvöru hjá Innnesi, segir að fyrirtækið hafi mikið af íslenskum vörum á boðstólum og að þeir selji þær til skipamiðlara eins og innfluttar vörur séu þær í boði og að beðið sé um þær. „Ef við tökum íslenskt grænmeti sem dæmi þá seljum við það klárlega svo lengi sem það er í boði en því miður er framboðið oft af skornum skammti.“ Lítil skref í fyrstu Konráð Grétar Ómarsson, sölu- og innkaupastjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, segir að fram til þessa hafi sorglega lítið verið selt af íslenskum landbúnaðarvörum um borð í skemmtiferðaskip sem heimsækja landið eða þau skip sem bjóða upp á siglingar í kringum það. „Við hjá Sölufélaginu höfum skoðað þessi mál undanfarin ár og síðastliðið haust urðum við vör við aukinn áhuga hjá umboðsmönnum skipanna. Þetta á sérstaklega við um þá aðila sem bjóða upp á siglingu í kringum landið. Það er því tækifæri fyrir íslenska framleiðendur að bjóða fram íslenskar vörur á leiðangursskipin, sem eru minni skip og sérhæfa sig í siglingum á heimsskautasvæðunum. Stóru skipin, sem eru sum að taka kost hér á landi að hluta, hafa ekki lagt áherslu á íslenskar matvörur enn sem komið er en vissulega er það mál sem vert er að skoða líka. Sérstaklega ef vel gengur með þessi minni skip. Við ákváðum því að skoða hvort það er áhugi á að koma inn með séríslenskar vörur undir vörumerkinu Pure Artcic, sem er að flytja út íslensk matvæli inn í þetta verkefni. Til að byrja með hugsuðum við verkefnið nánast einungis út frá íslensku grænmeti en það virðist vera áhugi á öðrum íslenskum vörum, þar með talið lambakjöti og íslenskum fiski, inn í þetta verkefni. Það væri gaman að geta boðið upp á ferskar íslenskar vörur um VARAHLUTIR OG BÍLAVÖRUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI BÆJARHRAUNI 12 220 HAFNARFIRÐI S. 555 4800 Hafnargata 52 260 Reykjanesbæ S. 421 7510 Hrísmýri 7 800 Selfossi S. 482 4200 Furuvöllum 15 600 Akureyri S. 535 9085 Sólvangi 5 700 Egilsstöðum S. 471 1244 STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 12 110 REYKJAVÍK S. 535 9000 Skoðaðu vöruúrvalið á www.bilanaust.is Skemmtiferðaskip við Skarfabakka. Myndir / Aðsendar Vannýttur markaður fyrir íslenskar matvörur: Kostur skemmtiferðaskipa Von er á tæplega 300 farþegaskipum til Íslands á þessu ári. Ætla má að farþegar verði ríflega 300 þúsund. Eitthvað er selt af íslenskum eggjum, fiski og mjólk til þessara skipa en lítið af grænmeti og kjöti. Hér er um stóran og mögulega vannýttan markað að ræða fyrir íslenskar landbúnaðarvörur og sjófang. FRÉTTASKÝRING Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.