Bændablaðið - 23.02.2023, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
FRÉTTIR
Gæði fyrir dýrin og þig!
FB Reykjavík
Korngarðar 12
570 9800
FB Selfoss
Austurvegur 64 a
570 9840
FB Hvolsvöllur
Duftþaksbraut 1
570 9850
www.fodur.is
fodur@fodur.is
Leiðrétting: Rangt nafn
Mistök urðu við nafnbirtingu með gömlu myndinni á blaðsíðu 6
í síðasta blaði. Eins og glöggir lesendur Bændablaðsins sáu er
rétt nafn mannsins á myndinni Teitur Guðmundsson að Móum á
Kjalarnesi. Beðist er velvirðingar á þessu. /VH
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins:
Afkoma garðyrkjubænda
hefur almennt versnað
Í nýlegri rekstrargreiningu
Ráðgjafarmiðstöðvar land
búnaðarins á garðyrkju á Íslandi
2019 til 2021 segir að afkoma
greinarinnar hafi almennt versnað
á tímabilinu. EBITHDA, sem
hlutfall af veltu, stendur í stað hjá
kartöflubændum en lækkar mikið
í ylræktinni.
Samkvæmt greiningunni versnaði
afkoma þeirra garðyrkjubænda sem
tóku þátt í verkefninu á þeim þremur
árum sem greiningin fór fram.
Allur kostnaður hækkað
Fastur kostnaður hækkaði mikið
á tímabilinu og mest á liðunum
rafmagn og vatn, eða um 77%.
Breytilegur kostnaður sem krónur á
hektara hækkar töluvert milli áranna
2019 og 2020 en lækkar heldur árið
2021 þannig að hækkunin er um 8%
á þessu þriggja ára tímabili.
Afkoma versnaði bæði í yl- og
kartöflurækt en mikil hækkun á
jarðræktarstyrk kemur í veg fyrir
enn verri afkomu þeirra sem hann fá.
Hópurinn sem vann að
greiningunni er sammála um að
nauðsynlegt sé að halda greiningunni
áfram og fjölga þeim sem taka
þátt í verkefninu til þess að hægt
sé að fá enn fyllri mynd af stöðu
greinarinnar. Einnig benda þeir á að
útvíkka megi verkefnið og taka inn
fleiri tegundir grænmetis í útiræktun
og blóm og gera greininguna að enn
öflugra verkfæri fyrir framleiðendur
og greinina. /VH
Sjá nánar á blaðsíðu bls. 48–49.
Samkvæmt rekstrargreiningu RML versnaði afkoma garðyrkjubænda sem
tóku þátt í verkefninu á þeim þremur árum sem greiningin fór fram.
Innflutningur:
Segjast fylgja settum leikreglum
– Dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga fullvinnur úkraínskt kjúklingakjöt og selur undir merkjum Esju gæðafæðis
Kjötvinnslan Esja gæðafæði
ehf., sem er í eigu Kaupfélags
Skagfirðinga, flutti inn um 40 tonn
af frosnu úkraínsku kjúklingakjöti
árið 2022. Má meðal annars
nálgast það í matvöruverslunum
undir vörumerkjum fyrirtækisins.
Ágúst Andrésson, forstöðumaður
kjötafurðastöðvar KS, segir að
auk þess kaupi fyrirtækið mikið af
úkraínskum kjúklingi frá öðrum
innflytjendum.
„Þegar við sáum það á heimasíðu
skattsins að það væri verið að opna
á innflutning frá Úkraínu fórum
við að kynna okkur möguleikana.
Við vissum að Úkraína væri mjög
framarlega í kjúklingarækt og einn
af stærri framleiðsluaðilum fyrir
Evrópumarkað. Við höfum verið
að flytja inn kjúkling frá Litáen og
skoðuðum hvort við gætum nálgast
sambærilega eða betri vöru á góðu
verði í Úkraínu. Við erum alltaf að
leita hagkvæmustu leiða til að geta
verið samkeppnishæfir á markaði
með góða þjónustu, gæðavöru og
gott verð,“ segir Ágúst.
Esja gæðafæði og Kjötbankinn
eru undir sama hatti og hafa verið
að vinna úr um 250 tonnum af
innfluttum kjúklingi á ári, bæði sem
keypt er af öðrum innflytjendum sem
og verið flutt inn beint. Fyrirtækið
flutti inn um 40 tonn af frosnu
kjúklingakjöti frá Úkraínu sem
komu, að sögn Ágústar, í tveimur
gámum hvort sínum megin við
jólin. Kjötið var unnið hér á landi
og endurselt.
„Við erum með fullvinnslu,
þannig erum við bæði að marinera,
forelda læri og bringur, snitsel og
fleira. Við seljum þetta til mötuneyta,
veitingahúsa og verslana um allt
land. Það er allur gangur á því
undir hvaða vörumerkjum úkraínska
kjötið er merkt, ekki verið nein ein
lína í því,“ segir hann.
Segjast hafa greitt toll
Í tilkynningu Esju gæðafæðis kemur
fram að greiddur hafi verið fullur
tollur af kjötinu. „Við fengum
eins tollafgreiðslu af þessum gámi
eins og öðrum vörum sem við
flytjum inn. Við gætum farið fram
á endurgreiðslurétt en höfum tekið
ákvörðun um að borga fullan toll af
þessu eins og öðru,“ segir Ágúst.
Samkvæmt uppgefnum
tölum Hagstofunnar var meðal-
innflutningsverð af frosnu
kjúklingakjöti frá Úkraínu árið 2022
um 580 kr/kg. Ef greiddur hefur
verið fullur verð- og magntollur
af vörunni hefur meðalverð á kíló
reynst ríflega 1.200 krónur. Gera
má ráð fyrir að einhver kostnaður
hljótist af flutningi, vinnslu og
endurpökkun kjötsins, en það mátti
finna í Nettó á minna en 2.000 kr./kg.
Inntur eftir því hvernig þeim
tækist að halda kílóverði svo lágu
í verslunum svarar Ágúst:
„Skýringin er einfaldlega sú að
við kaupum mikið af úkraínskum
kjúklingi af öðrum innflytjendum.“
Kjúklingurinn verði
upprunamerktur
Ágúst segir kjötið vera keypt
frá framleiðanda sem lúti öllum
kröfum sem gerðar eru til kjöts á
Evrópumarkaði. „Þegar við veljum
okkar birgja, hvort sem það er í
þessu eða öðru kjöti, þá gerum við
ákveðnar kröfur um gæði. Þessi vara
er ekkert frábrugðin annarri vöru
sem við erum að flytja inn.“
Hann bætir því við að úkraínsk
yfirvöld sjái um eftirlit með
framleiðslunni þar í landi. „Við fáum
alla þá pappíra með sendingum sem
þarf til að uppfylla kröfur sem gerðar
eru um innflutning. Ef eitthvað
vantar þá er það stöðvað í tolli.“
Ekki er skylda að upprunamerkja
matvöru sé hún unnin. Ágúst segir
að í ljósi umræðunnar um úkraínska
kjúklingakjötið hafi komið til tals
hjá fyrirtækinu að merkja uppruna
þess sérstaklega.
„Ég held það væri jafnmikill, ef
ekki meiri, sölupunktur að merkja
kjötið Úkraínu. En þetta er matsatriði
í hvert sinn.“
Eftir ábendingar segir Ágúst
að nú verði hægt að nálgast
upprunamerktan úkraínskan kjúkling
í Nettó frá fyrirtækinu.
Fleiri fyrirtæki með
misvísandi merkingar
Hann bendir þó á að ekki sé verið að
brjóta neinar reglur með því að geta
ekki uppruna ef kjöt er flutt inn og
unnið hér á landi.
„Reglan hefur verið að ef
kjúklingur er sannanlega íslensk
framleiðsla þá er hún merkt þannig.
Ef hann er fluttur inn er upprunaland
yfirleitt ekki tekið fram. Við fylgjum
bara þeim leikreglum sem settar eru.
Menn geta svo haft á því skoðun
hvort það sé rétt að hægt sé að
flytja hér inn kjöt í stórum stíl og
ekki geta uppruna. Samanber allan
þann kjúkling sem fluttur er hingað
til lands gegnum stóru innlendu
kjúklingaframleiðendurna. Það sama
má segja með allt nautahakk sem
flutt er inn af Stjörnugrís sem hefur
tekið mest til sín af EB tollkvóta
að undanförnu og flutt inn efni
sem fær enga íblöndun en er selt
sem hamborgarar með íslenskum
fánamerkjum á umbúðum. Slíkt er
reyndar ekki í lagi,“ segir Ágúst.
Hann er þeirrar skoðunar að allt
innflutt kjöt ætti að vera rekjanlegt
til upprunalands, hvort sem það sé
unnið eða ekki.
„Ég held að viðmið okkar
reglna, er þetta varðar, séu teknar
frá Evrópusambandinu og því
vitum við ekki frekar hvort vara
sem þaðan kemur og hefur fengið
meðhöndlun, íblöndun eins og t.d
kjúklingabringur, hvort uppruninn
sé í raun innan Evrópusambandsins
eða jafnvel einhvers staðar annars
staðar frá eins og t.d. Taílandi. Eins
halda margir að allt sem flutt er inn
frá Danish Crown sé frá Danmörku,
enda merkt danska fánanum, þegar
betur er að gáð kemur fram í
smáaletri umbúðanna að þetta kjöt
kemur frá mörgum öðrum löndum.
Því eru þessi mál ekki einföld.“
Inntur eftir því hvort KS
hyggist sýna frumkvæði með
upprunamerkingum á innfluttum
kjötvörum sínum segir hann slíkt
í skoðun. „Í sumum tilfellum hefur
það verið gert, eftir því sem við á, í
samræðu við endursöluaðila,“ segir
Ágúst.
/ghp
Spurt og svarað:
Er innflutningurinn að grafa undan
rekstrargrundvelli bænda?
Blm.: Nú eru tengsl KS við bændastéttina sterk. Félagið er með meirihlutastjórn
bænda og aðstoðarkaupfélagsstjóri félagsins er stjórnarformaður Samtaka
fyrirtækja í landbúnaði. Hefur hann sem slíkur mikið talað um samleið bænda,
afurðastöðva og fyrirtækja tengd landbúnaði. Hvernig bregðist þið við gagn
rýni um að með innflutningi á vöru sem er í beinni samkeppni við íslenskan
landbúnað séuð þið að grafa undan rekstrargrundvelli bænda?
ÁA: Innflutningur á kjúklingi á síðasta ári er um 1.700 tonn, vegna þess
að innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn hér á landi. Innflutningur
frá Úkraínu keppir fyrst og fremst við annan innfluttan kjúkling. Innlend
framleiðsla hefur alltaf þá sérstöðu að vera fersk á markaði og selst mest
sem slík. Innlendir kjúklingaframleiðendur eru stórir seljendur af innfluttum
kjúklingi, eru þeir að grafa undan sjálfum sér?
Úkraínskt kjúklingakjöt er m.a. unnið, flutt inn og pakkað undir merkjum
Esju gæðafæðis og endurselt í Nettó.
Ágúst Andrésson. Mynd / H.Kr