Bændablaðið - 23.02.2023, Síða 20

Bændablaðið - 23.02.2023, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 FRÉTTASKÝRING Gert er ráð fyrir að um samstarfs­ verkefni verði að ræða með Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Flokkur landnýtingar ekki á beinni ábyrgð Samkvæmt skuldbindingum Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB) telst losun gróðurhúsalofttegunda frá íslenskum landbúnaði vera á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Landnýtingarhluti landbúnaðarins, sem innifelur uppgjör frá ræktarlöndum og skógrækt er það hins vegar ekki, heldur fellur í flokkinn landnotkun, breytt landnotkun og skógrækt (LULUCF). Þó þarf að gera grein fyrir þeirri losun í losunarbókhaldi Íslands gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum í loftslagsmálum. Möguleikar eru á að telja sér bindingu koltvísýrings í þeim flokki að einhverju leyti sér til tekna í losunarbókhaldinu. Nú liggur fyrir að Ísland þarf að gera upp skuldir sínar á þessu ári vegna skuldbindinga gagnvart seinni Kýótóbókuninni, tímabilið 2013 til 2020. Samkvæmt þeim skuldbindingum bar Íslandi að draga úr losun um 20 prósent árið 2020, miðað við losun ársins 1990. Ísland og Evrópusambandið gerðu með sér tvíhliðasamning til að ná markmiðum sínum í sameiningu. Samkvæmt þessum samningi fékk Ísland úthlutaðar losunarheimildir fyrir losun á beinni ábyrgð Íslands og heimild til að nýta sér bindingareiningar frá landnotkun og skógrækt. Umhverfisstofnun heldur utan um losunarbókhald Íslands og samkvæmt upplýsingum þaðan losaði Ísland á tímabilinu tæpar 7,7 milljónir tonna koltvísýringsígilda (CO2­íg) umfram heimildir. Leyfilegt var að telja tæplega 4,3 milljónir tonna CO2­íg fram til frádráttar sem bindingareiningar. Þar af leiðandi var losun Íslands á þessu tímabili um 3,4 milljónir tonna CO2­íg umfram losunarheimildir og bindingareiningar – og Ísland þarf að kaupa losunarheimildir fyrir þessu magni. Samkvæmt upplýsingum úr umhverfis­, orku­ og loftslagsráðuneytinu liggur kaupverð á losunarheimildum ekki fyrir en í fjárlögum 2023 sé gert ráð fyrir 800 milljóna króna fjárheimildum vegna uppgjörsins. Rannsókn RALA frá 1975 Ræktarland er skilgreint sem tún og akrar. Sá starfshópur, sem sér um útreikninga fyrir LULUCF­ flokkinn í losunarbókhaldi Íslands, samanstendur af fulltrúum Land­ græðslunnar og Skógaræktarinnar. Í losunarbókhaldinu er ræktar­ landinu skipt í tvennt; land sem er í ræktun og notkun og svo það sem ekki er ræktað eða nýtt. Land getur flust á milli þessa flokka, en upplýsingar um þessa landnýtingu eru sóttar í gagnagrunna Hagstofunnar og Ráðgjafarmiðstöðvar land­ búnaðarins ár hvert. Á árunum 1945 til 1973 stóð Rann sóknar stofnun landbúnaðarins (RALA) fyrir tilraun á fjórum stöðum á landinu þar sem kolefnisforði í íslenskum steinefnajarðvegi var rannsakaður og breytingar á honum yfir tímabilið. Síðan voru gögnin tekin saman úr þessum tilraunum árið 1975 og hafa frá árinu 2018 verið notuð til að áætla losun gróðurhúsalofttegunda frá þessari jarðvegstegund í losunarbókahaldi Íslands, sem er um 55 prósent alls ræktarlands Íslands. Áætluð losun frá lífrænum jarðvegi Lífrænn jarðvegur á framræstu landi, telst vera um 45 prósent ræktarlands. Stór hluti heildarlosunar gróður­ húsalofttegunda frá landnýtingar­ hluta landbúnaðarins er áætlaður frá þessum land nýtingarflokki. Ekki er til íslenskur reiknistuðull fyrir losun frá þessu landi og því hefur verið notast við stuðla sem Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) gefur út. Alls er ræktarland metið einungis um eitt prósent af heildarflatarmáli Íslands, sem skýrir kannski að einhverju leyti hvers vegna þessi landnýtingarflokkur hefur ekki verið í forgangi við mat á losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi. Miðað við þá reiknistuðla sem notaðir hafa verið, losar ræktarland þó um 22 prósent af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda í LULUCF­ flokknum. Stærðarhlutfall annarra undir flokka LULUCF, af heildar­ flatarmáli Íslands, eru: mólendi 58 prósent, auðnir 31 prósent, votlendi níu prósent, þéttbýli er með meira en eitt prósent og skógar um eitt prósent. Af þessum undirflokkum er mólendi stórtækasti losunarvaldurinn með um 64 prósent og votlendi um 20 prósent. Binding kolefnis í skóglendi hefur margfaldast undanfarna áratugi. Hlutfall LULUCF­flokksins í losunarbókhaldi Íslands er svo það langhæsta, áætlað rúm 66 prósent árið 2020 samkvæmt landsskýrslu Umhverfisstofnunar frá síðasta ári um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi frá 1990 til 2020. Því má ætla að ávinningurinn geti orðið nokkur inn í losunarbókhald Íslands, með góðum árangri kolefnisbindingar á sviði landnýtingar og skógræktar. Lokaniðurstöður í árslok 2026 Ráðuneytin hafa unnið í sameiningu að undirbúningi verkefnisins og er gert ráð fyrir að fyrstu niðurstöður liggi fyrir árið 2024 og lokaniðurstöður verði birtar í árslok 2026. Ástæða þess að ráðist er í endurmatið nú er sú að sýnt þykir að talsverður breytileiki sé í losun gróðurhúsalofttegunda frá ólíkum jarðvegstegundum og landsvæðum. Nýlegar rannsóknir þykja einnig benda til að þörf sé á að endurmeta stuðla sem notaðir hafa verið um þessa losun og bindingu frá ólíkum svæðum. Vísbendingar um mun minni losun frá framræstu landi Síðasta sumar gaf Landbúnaðar­ háskóli Íslands (LbhÍ) út ritið Langtímatap kolefnis í framræstu ræktarlandi. Þar var greint frá niðurstöðum rannsóknar á langtíma afleiðingum framræslu á jarðveg í kolefnisríku votlendi. Verkefnið hafði það meginmarkmið að auka þekkingu á langtímaáhrifum af framræslu ræktarlands á kolefnisbúskap jarðvegs og aðra þætti því tengdu – þannig að betur verði hægt að áætla kolefnislosun í framræstum íslenskum mýrum sem þykja hafa mikla sérstöðu. Í inngangi að ritinu er bent á að í stöðlum IPCC sé gert ráð fyrir verulegum óvissumörkum og frávikshlutföllum, í land nýtingar­ flokkunum framræst mólendi og akurlendi, sem dragi úr notagildi staðalgilda til að áætla með vissu raunlosun kolefnis á ólíkum svæðum eins og á Íslandi. Vísindaleg óvissa í matinu Í innganginum kemur einnig fram að staðlar IPCC fyrir Ísland eru metnir í lægsta gæðaflokki aðferðaþrepa (aðferðaþrep 1) sem þýðir að vísindaleg óvissa sé mikil í mati á losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda vegna landnotkunar og breytinga á henni. „Þetta er einfaldlega staðan sem við stöndum frammi fyrir og Landgræðslan hefur verið að vinna að því að bæta úr allt frá því að umhverfisráðuneytið fól stofnuninni umsjón með landnýtingarhluta loftslagsbókhaldsins á árinu 2018,“ segir Jóhann Þórsson, vistfræðingur og fagteymisstjóri loftslags­ og jarðvegs hjá Landgræðslunni, spurður um áreiðanleika talna um áætlaða losun frá íslensku ræktarlandi. „Stuðlar IPCC samkvæmt aðferðaþrepi 1 eru oftar en ekki í hærri kanti þess sem gæti verið að gerast, enda hvetur það ríki til að afla sér betri gagna. Það er hins vegar ekkert sem segir að útkoman verði betri þegar komnir eru landsstuðlar, en í tilviki Íslands má alveg gera ráð fyrir að svo verði í einhverjum tilvikum innan sumra landnýtingarflokkanna eða undirflokka þeirra. Þetta gæti til dæmis átt við um framræst land,“ segir Jóhann. Loftslagsmál: Endurmat á losun gróður húsa loft­ tegunda frá ræktarlöndum bænda – Flokkar landnýtingar ekki á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda, en möguleikar á að nota bindingu inn í losunarbókhaldið Matvælaráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafa falið Landgræðslunni að stýra endurmati á losun gróðurhúsa lofttegunda frá ræktarlöndum bænda. Tilgangurinn er að afla nýrra gagna með uppfærslu á losunarstuðlum fyrir mismunandi jarðvegsgerðir svo bæta megi losunarbókhald Íslands gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum í loftslagsmálum. Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Lífrænn jarðvegur á framræstu landi telst vera um 45 prósent ræktarlands. Mynd / Landgræðslan Losun gróðurhúsalofttegunda frá landnotkun og skógrækt, flokki LULUCF. Heimild: Umhverfisstofnun Losun gróðurhúsalofttegunda frá flokkum á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda árið 2020, auk landnotkunar og skógræktar (LULUCF). Heimild: Umhverfisstofnun

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.