Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
Íbúar í Valais-hreppi í Sviss hafa
verið hvattir til að uppræta
kaktusa af ættkvíslinni Opuntia,
eða fíkjukaktus, hvar sem til
þeirra næst.
Undanfarin ár hefur tegundin
náð að skjóta rótum og fjölga
sér í héraðinu sem til þessa hefur
verið þekkt fyrir snjó á veturna
og alparósir á vorin. Landnám
kaktussins í Sviss er ekki alveg nýtt
þar sem til eru heimildir um hann
sem slæðing í náttúrunni allt frá
því hann var fluttur til landsins frá
Norður-Ameríku seint á átjándu öld.
Þolir frost
Þekkt er að Opuntia kaktusar
geti fjölgað sér hratt og orðið til
vandræða þar sem aðstæður eru þeim
hagfelldar, loftslag hlýtt og jarðvegur
sendinn og þurr. Kaktusinn, sem
þolir allt að mínus 15 gráður, virðist
kunna vel við sig í Valais héraði og
víðar og sagt er að hann sé allt að
30% af gróðurþekjunni þar sem hann
er algengastur.
Plantan þolir illa snjóþekju og
það að kaktusinn hafi komið sér vel
fyrir í Sviss er rakið til hækkandi
lofthita og færri daga sem snjór
liggur á landi undir 800 metra hæð.
Hækkun lofthita í Sviss er ein sú
mesta sem þekkist í heiminum og er
2,5º á Celsíus frá meðaltali áranna
frá 1871 til 1900.
Aukin útbreiðsla líkleg
Margir telja kaktusinn vera ógnun
við lífríkið á þeim svæðum sem hann
hefur komið sér fyrir og telja víst að
hann muni halda áfram að fjölga sér
og geti með tímanum lagt undir sig
stór svæði í Alpafjöllum.
Gróðurrannsóknir sýna að það
er ekki bara Opuntia kaktusinn sem
hefur aukið útbreiðslu sína því það
hefur fjöldi annarra tegunda líka
gert, sérstaklega í suðurhlíðum
Alpafjalla. /VH
VARAHLUTIR OG BÍLAVÖRUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á
www.bilanaust.is
António Guterres, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, lét fyrir
skömmu hafa eftir sér að hækkun
sjávarmáls vegna loftslagsbreytinga
muni leiða af sér fólksflutninga af
áður óþekktri stærð.
Í máli Guterres kom fram að
sjávarmál hafi hækkað mikið
undanfarna áratugi og að allt bendi
til að slíkt eigi eftir að aukast og að
ekki sé langt í að það eigi eftir að
hafa veruleg áhrif á íbúa víða um
heim. Miðað við núverandi hækkun
mun sjárvaryfirborð hækka um allt
að hálfan metra fyrir árið 2100 og
munu þá borgir eins og London, Los
Angeles og Bangkok fara að hluta á
kaf og sama gildir um Norðurmýrina
í Reykjavík.
Guterres segir að hækkun
sjávarmáls muni hafa gríðarleg áhrif
á líf og lífsafkomu milljarða manna.
Ræktarland til matvælaframleiðslu
mun dragast saman, fátækt aukast og
tíðni sjúkdóma einnig. Hann sagði að
eina leiðin til að höndla vanda sem í
vændum er sé að þjóðir heims tækju
höndum saman um að leysa hann í
sameiningu.
Máli sínu til stuðnings benti
aðalritarinn á nýjar upplýsingar frá
Alþjóðaveðurathugunarstofnuninni
sem sýna að hitastig sjávar hafi hlýnað
meira á síðustu hundrað árum en
ellefu þúsund árin þar á undan. Meðal
afleiðinga hlýnunar sjávar er hraðari
bráðnun heimskautaíssins auk þess
sem sjór þenst út við hlýnun.
/ VH
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir að hækkun sjávarmáls muni hafa
gríðarleg áhrif á líf milljarða manna. Ræktarland til matvælaframleiðslu muni
dragast saman, fátækt aukast og tíðni sjúkdóma einnig. Mynd / umsplash.com
Umhverfismál:
Hækkun sjávarmáls og fólksflutningar
Kaktusinn þolir allt að 15 gráðu frost
og virðist kunna vel við sig í Valais-
hreppi í Sviss og víðar í suðurhlíðum
Alpafjalla. Mynd / unsplash.com
Hlýnun jarðar:
Kaktusar í Alpafjöllum
Athugun sýnir að þriðjungur
stórfyrirtækja sem tengjast
víðáttumikilli skógareyðingu séu
ekki með neina áætlun um að
draga úr henni eða stöðva.
Samkvænt athugun Global
Canopy, samtaka sem sérhæfa
sig í söfnun upplýsinga og stöðu
skóga í heiminum, hafa 31% þeirra
alþjóðlegu stórfyrirtækja sem tengd
eru víðtækri skógareyðingu gert
ráðstafanir eða sett fram áætlun
um að draga úr eyðingunni. Mörg
fyrirtækjanna sem um ræðir hafa ekki
heldur neinar áætlanir um að skoða
þátt sinn í skógareyðingu og hafa
ekki skrifað undir viljayfirlýsingu
um að vilja draga úr eyðingunni.
Í skýrslu Global Canopy segir að
þrátt fyrir að fjöldi stórfyrirtækja
hafi gefið út stefnu þar sem kemur
fram vilji til að vernda skóga hafi fá
þeirra á sínum vegum eftirlit með
eyðingu í tengslum við framleiðslu
þeirra.
Þar segir einnig að fjöldi
fyrirtækja hafi á sínum tíma gefið
út yfirlýsingu um að draga verulega
úr eða hætta framleiðslu sem leiði til
skógareyðingar fyrir árið 2020 en
að lítið hafi orðið um efndir hvað
slíkt varðar.
Í athuguninni kemur fram að
ýmis fjármagnsfyrirtæki hafi í
ráðgjöf sinni bent á að samdráttur
í skógareyðingu gæti reynst
fjárhagslega óhagkvæmt.
Á Cop26 ráðstefnunni fyrir
tveimur árum samþykktu leiðtogar
heims að allt yrði gert til að draga úr
skógareyðingu og gera hana óþarfa
í virðiskeðjunni. Í dag er áætlað að
skógareyðing til að rækta pálma til
olíuframleiðslu og sojabaunir auk
nautgripaeldis sé ástæðan fyrir um
25% losun gróðurhúsalofttegunda
í heiminum.
/VH
Leiðtogar heims hafa samykkt að gera
allt til að draga úr skógareyðingu.
Mynd / unsplash.com
Umhverfismál:
Lítið gert til að draga úr skógareyðingu
UTAN ÚR HEIMI
Klónuð Holstein Friesian kvíga í Kína. Mynd / Northwest A&F University
Líf- og erfðafræðingar í Kína hafa
klónað kvígur úr kúm sem mjólka
yfir 18 tonn á ári. Til samanburðar
mjólkaði afurðahæsta kýrin hér
á landi rétt rúmum 8,9 tonnum á
síðasta ári.
Kýrnar sem um ræðir eru
Holstein Friesian, sem er kyn sem
upprunnið er í Hollandi, og mjólka
tæplega tvisvar sinnum meira en
aðrar kýr af því kyni. Gert er ráð
fyrir að hver um sig eigi klónuðu
kvígurnar að geta mjólkað 18
tonnum á ári, eða um 100 tonnum
af mjólk á líftíma sínum.
70% mjólkurkúa fluttur inn
Klónunin er sögð marka tímamót
í kínverskum mjólkuriðnaði og
draga úr þörf Kínverja til að
treysta á innflutning á mjólk og
erlendum mjólkurkúm en um 70%
mjólkurkúa í Kína eru fluttar inn.
Þrjár klónaðar kvígur eru þegar
í eldi Landbúnaðar-, skógræktar-
og tækniháskólans í Ningxia-
hreppi í Norðvestur-Kína.
Kvígurnar eru afrakstur 120
fósturvísa sem upphaflega koma
úr frumum sem teknar voru úr
eyrum móður kúnna og komið
fyrir í fósturmæður sem flestar
eru óbornar þegar þetta er skrifað.
Fyrsta kvígan kom í heiminn
eftir skurðaðgerð 30. desember
síðastliðinn og vó 56,7 kíló og var
76 sentímetrar á herðakamb og
113 sentímetrar að lengd.
Auk þess sem litarbrigði á feld
voru nákvæmlega þau sömu og
móður kýrinnar.
Klónun flýtir kynbótastarfi
Að sögn forsvarsmanns verk-
efnisins eru um 6,6 milljón
mjólkurkýr í Kína og fimm af
hverjum tíu þúsund kúm geta
mjólkað 100 tonnum á líftíma
sínum.
Hann segir nánast ómögulegt
að áætla mjólkurgetu kúa með
nokkurri vissu snemma á ævi
þeirra og því erfitt að velja ofurkýr
til undaneldis og að það megi því
flýta kynbótastarfinu með klónun.
Ætlun Kínverja er að klóna
ríflega eitt þúsund ofurkýr á næstu
tveimur til þremur árum og smám
saman að verða sjálfum sér nógir
um afurðamiklar mjólkurkýr. /VH
Erfðatækni:
Kínverjar klóna ofurkýr