Bændablaðið - 23.02.2023, Side 36

Bændablaðið - 23.02.2023, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 Sauðfjárbúskapur: Með framtíðina fyrir sér – Ungir bændur sem beita sér í loftslagsmálum Inn í Hofsárdal í Vopnafirði er ættarsetrið Bustarfell, undir samnefndu fjalli. Þar hefur sama fjölskylda búið síðan árið 1532. Eftir nám árið 2017 settust Eyþór Bragi og Þórdís þar að, á æskuheimili Eyþórs, og stunda þar sauðfjárbúskap. Foreldrar Eyþórs, Björg Einarsdóttir og Bragi Vagnsson, búa einnig á Bustarfelli og taka enn þá þátt í búskapnum. Eyþór Bragi mun vera fimmtándi ættliður fjölskyldunnar sem stundar búskap á Bustarfelli. Rekstur sauðfjárbúsins gerir ráð fyrir einu ársstarfi, þó Eyþór og Þórdís segi að mun meiri tími en svo fari í búskapinn. Bæði stunda þau svo vinnu utan bús. Þórdís vinnur sem kynbótafræðingur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og hefur t.a.m. unnið við innleiðingu erfðamengisúrvals í nautgriparækt og við útreikninga kynbótamats í sauðfjárrækt og nautgriparækt. Eyþór er leiðsögumaður í laxveiði á sumrin ásamt því að taka að sér hin ýmsu tilfallandi störf í sveitinni. Auk þess er hann safnstjóri Minjasafnsins á Bustarfelli. „Ég stefndi alltaf á nám tengt landbúnaði til að geta unnið við áhugamálið og samhliða því vil ég búa í sveit og rækta búfé. Eyþór er mikill veiðimaður og sumrin yrðu því ekki eins nema hann gæti starfað í laxveiðinni. Við erum því rosalega heppin að geta lifað okkar lífi og stundað vinnu sem við höfum ástríðu fyrir,“ segir Þórdís. Undir það tekur Eyþór. „Lífið er aldrei einhæft og allir hjálpast hér að. Systkinin mín taka hluta af sumarfríinu til að komast á sauðburðarvaktir og með í smalamennsku, það veitir þeim ákveðna lífsfyllingu en er í okkar huga ómetanleg aðstoð við bústörfin. Ég held það myndi vanta stóran hluta af sjálfum mér ef veruleikinn snerist ekki um þessi árstíðabundnu verkefni sem fylgir sauðfjárbúskap.“ Þau benda þó á að margir ungir bændur lifi öðrum veruleika, bústörfin þurfa að vera aðaltekjulind og kostir á aukastörfum utan bús eru ekki fyrir hendi. Eyþór bætir við að sauðfjárræktin hafi verið fjársvelt í svo mörg ár. Því hafi eðlileg endurnýjun á tækjum og híbýlum jafnvel ekki átt sér stað. Í upphafi vegferðar sinnar þurfi ungir bændur því æði oft að leggja í stórar fjárfestingar og tilheyrandi skuldsetningu til þess að uppfæra búin samkvæmt nútímakröfum. Sameiginlegur vilji til að bæta búskap Bustarfell er eitt af þeim fimmtán sauðfjárbúum sem fyrst var boðin þátttaka í verkefni Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, Loftslagsvænn landbúnaður, í ársbyrjun 2020. „Okkar bú var í þessum fyrsta tilraunahóp. Við sóttum um því okkur þótti verkefnið áhugavert og vildum vita út á hvað þetta gengi. Meiningin er góð og pælingarnar líka,“ segir Eyþór og bætir við að síðan þá hafi verkefnið þróast mikið og breyst. Í dag hefur fjöldi bænda bæst í hóp þátttakenda og teljast nú 22 sauðfjárbú og 24 bú í nautgriparækt hluti af verkefninu. Þau segja að þátttakendur séu afar ólíkur hópur bænda, fólk á öllum aldri sem býr við misjafnar aðstæður, jarðgæðum er misskipt, tækifæri til að minnka losun og auka bindingu er breytilegt og þekking fólks mismunandi. Þau telja sig búa vel að því að hafa hafið vegferðina strax eftir háskólanám, Eyþór er búfræðingur og Þórdís meistari í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Þannig liggi t.d. sú tölvuvinna sem fylgi verkefninu vel fyrir þeim. „Margt sem kemur fram í verkefninu er nokkuð augljóst fyrir okkur á meðan þær upplýsingar gætu verið nýlunda fyrir næsta bónda. En það sem við öll eigum sameiginlegt er viljinn til að skilja við hlutina í betra ástandi en við tókum við þeim,“ segir Eyþór. Verkefnið sé því hvati til að fara af stað í vegferð í átt að betri búháttum. „Bændurnir eiga að setja sér raunsæ markmið miðað við sitt bú. Það getur til dæmis reynst miserfitt fyrir þátttökubæi að stunda landgræðslu, sumir búa á litlum jörðum. En með því að ræða við ráðgjafana og aðra bændur geta þátttakendurnir fengið innblástur og hugmyndir að því hvernig hægt er að binda eða minnka losun kolefnis,“ segir Þórdís. Stórtæk landgræðsla Á þátttökutímabilinu hafa Eyþór Bragi og Þórdís sett sér 10–15 mælanleg markmið á ári og náð þeim flestum. „Markmiðin voru mörg til staðar áður en við fórum inn í verkefnið. Aðgerðirnar eru jú loftslagsvænar en líka hagkvæmar. Við reynum að hámarka afurðir eftir á, minnka olíunotkun og bæta nýtingu áburðar. Að sjálfsögðu er maður alltaf að stefna að því hvort sem er,“ segir Eyþór. Samkvæmt kolefnisreiknivélinni bindur Bustarfellsbúið meira en það losar. Vegur þar þungt stórtæk landgræðsla, bæði niðri í dalnum og uppi á Vopnafjarðarheiði. Rétt er þó að taka fram að kolefnisreiknivél þessi er ekki fullkomin. Eitt af markmiðunum sem þau settu sér í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður er aukin landgræðsla. „Við tökum þátt í tveimur verkefnum tengdum landgræðslu, annars vegar Bændur græða landið og hins vegar Landbótasjóðsverkefni uppi á heiði. Við höfum mjög stórt land undir og dreifum eins miklum áburði og við fáum úthlutað. Þarna á heiðinni er mikið rofið land eftir kuldatímabil fyrr á öldum, ekki bætir úr skák hvernig farið var að þegar þjóðvegirnir þar í gegn voru lagðir á síðustu öld. Viðkvæmur jarðvegur var þá rifinn upp og ekki hugað að því að loka honum eftir á,“ segir Eyþór. Á meðan Landgræðslan útvegar áburð leggur hann til vinnu og tækjabúnað til dreifingar. Auk landgræðslunnar stefna þau á að rækta skjólbelti við túnin og í fyrra hófust þau handa við að planta trjám í dalnum fyrir innan bæinn. Samhliða því hefur þó átt sér stað ákveðin náttúruleg endurheimt vistkerfis því gamli birkiskógurinn sem þar er stækkar ört og má nú finna sjálfssáðar birkiplöntur á allstóru svæði. Aðferðir sem minnka útgjöld Eyþór og Þórdís halda 530 vetrarfóðraðar ær, sem telst til Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is Sauðfjárbændurnir Þórdís Þórarinsdóttir og Eyþór Bragi Bragason ásamt dóttur sinni, Ernu Diljá. „Við erum því rosalega heppin að geta lifað okkar lífi og stundað vinnu sem við höfum ástríðu fyrir,“ segir Þórdís. Myndir / ghp Eyþór Bragi Bragason og Þórdís Þórarinsdóttir á Bustarfelli í Vopnafirði eru ungir og metnaðarfullir sauðfjárbændur. Þau láta sig umhverfismál varða og sýna það í verki með því að stunda loftslagsvænan landbúnað. VIÐTAL Eyþór og Þórdís halda 530 vetrarfóðraðar ær sem telst til ríflegs meðalbús hér á landi. Þau hafa fjölgað fé síðustu ár og hafa áhuga á að fjölga enn frekar. Hyrnt og hvítt er í meirihluta eins og hér sést. Ærin Skvísa er fyrir miðju. Þórdís ásamt Móhnýflu, sem er ein af tveimur kindum í hjörðinni sem er hnýflótt. Það snýst meðal annars um betri búskaparhætti en einnig að rækta hjarðirnar sínar og nýta sér kynbótastarfið sem verið er að stunda í sameiginlegum tilgangi og gagnast okkur öllum í erfðaframförum og meiri afurðum í framtíðinni.“

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.