Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 eyðimörkinni. Hæð trésins er í mesta lagi tíu metrar. Annað og þriðja sæti yfir dýptarmet plönturóta eiga Juniperus monosperma, sem finnst í vestan verðum Bandaríkjum Norður- Ameríku, og áströlsk tröllatrjáa- tegund, Eucaluptus sp., sem hafa fundist með rætur niðri á 61 metra dýpi. Í fjórða sæti var svo önnur planta í Kalaharí-eyðimörkinni, Acacia erioloba, með 60 metra djúpa rót. Allar þessar plöntur eiga það sameiginlegt að vaxa á þurrkasvæðum. Svepprætur Fjöldi plantna lifir samlífi með sveppum með þeim hætti að rætur og sveppþræðir eða ýmur sveppa tengjast í jarðvegi og mynda það sem kallast svepprætur. Talið er að samlífið eigi sér að minnsta kosti 60 milljón ára þróunarsögu og að það sé mun algengara en talið hefur verið til þessa. Ýmislegt bendir til að plöntur sem lifa í samlífi með sveppum geti sent efnaboð sín á milli gegnum ýmurnar sem greinast um jarðveginn og tengjast öðrum plöntum sömu tegundar. Reyndar er uppi kenning um að slík skilaboð geti borist á milli ólíkra plöntutegunda svo lengi sem þær lifa samlífi við sömu sveppategundina. Sýnt hefur verið fram á að ólíkar tegundir eins og rósir og grös geti sent efnaboð sín á milli. Einnig eru mörg dæmi um að plöntur lifi samlífi með jarðvegsbakteríum sem auka niturnám plantnanna úr jarðvegi. Gerð róta Fyrsta rótin sem plöntur mynda kallast kímrót og af henni myndast svo eiginlegar rætur sem algengast er að skipta í trefja- eða stólparót. Munurinn á þessum megingerðum róta er að stólparætur eru gildar og vaxa beint niður á við ef engin fyrirstaða er til staðar og frá þeim vaxa síðan grennri hliðarrætur. Trefjarætur greinast hins vegar í allar áttir um jarðveginn og geta orðið ansi víðfeðmar. Stólparætur vaxa dýpra og hafa yfirleitt betri aðgang að vatni en trefjarætur sem liggja grynnra og hafa meiri aðgang að næringarefnum. Rannsóknir benda til að plöntur sem upprunnar eru nær heimskautunum myndi frekar trefjarætur sem liggja grunnt þar sem hitastig jarðvegsins og kaldur jarðvegur dragi úr vexti stólparóta. Fyrir rúmum tíu árum var greint frá plöntu af ættkvíslinni Corydalis, C, conorhiza, sem vex villt í Kákasusfjöllum og til fjalla í Tyrklandi sem myndar auk venjulegra róta eins konar snjórætur. Ræturnar sem mynda eins konar net vaxa ofanjarðar en undir þykkum og þunnum snjóalögum þar sem þær nýta næringarefni. Í hitabeltinu og á heittempraða beltinu, ekki síst þar sem jarðvegur er grunnur, mynda hávaxin tré það sem kalla má stuðningsrætur. Ræturnar eru, þykkar, víðfeðmar og vaxa oft yfir og flækjast saman við rætur annarra trjáa og veita trénu góðan stuðning, auk þess að sjá því fyrir næringarefnum. Dæmi er um stuðningsrætur sem eru yfir níu metrar á hæð og vaxa þrjátíu metra út frá stofni trjáa og jafnvel aðra þrjátíu metra niður á við. Sumar plöntur mynda loftrætur, dæmi um það eru pottaplöntur eins og rifblaðka, mánagull og fjöldi annarra klifurplantna í hitabeltinu og orkideur. Tilgangur loftróta er að auðvelda plöntum að taka upp vatn þar sem rótarkerfi margra klifurplantna er lítið. Vaxi loftrætur niður í jarðveg verður starfsemi þeirra sú sama og annarra róta í jarðvegi. Göngupálmi, Socratea exorrhiza, sem finnst villtur í Mið- og Suður- Afríku er með rætur sem líkjast stultum og lyfta trénu í orðsins fyllstu merkingu frá jarðvegsyfirborðinu. Kraftmiklar ræturnar vaxa skávalt út frá stofni trésins og niður í jörð. Tréð er sólelskt og rætur þess vaxa best í sól og forðast skugga. Þegar eldri rætur drepast í skugga og nýjar hafa náð fótfestu sólarmegin er því eins og tréð hafi flutt sig til. Sagt er að við bestu skilyrði, aðrir segja það ósatt, færist göngupálmar um tvo til þrjá sentímetra á sólarhring sem gerir sjö til ellefu metra á ári. Já. ég veit, þetta er farið að minna á Hringadróttinssögu. Tré sem vaxa á fenjasvæðum eða þar sem gætir flóðs og fjöru hafa mörg þróað með sér rætur sem vaxa upp á við og upp úr síblautum jarðveginum. Margar þessara plantna eru saltþolnar og geta vaxið í fjörum. Bergflétta, Hedera helix, er með það sem kallast heftirætur en það eru smávaxnar rætur sem plantan notar til að festa sig við og klifra upp eftir hrjúfu yfirborði trjáa eða steina. Rótarkerfi ásæta sem eru sníkjuplöntur sýgur næringuna úr hýsilplöntunni. Dæmi um sníkjuplöntur eru mistilteinn og plöntur af ættkvíslinni Rafflesia sem oft kallast hræblóm vegna ýldulyktarinnar sem þau gefa frá sér. Kókospálmar, Cocos nucifer, mynda stólparætur sem liggja ofarlega í jarðvegi og vaxa að hluta til lárétt út frá stofninum en ná sjaldnast út fyrir ystu blaðenda. Ræturnar eru innan við átta sentímetrar að ummáli og halda sama ummáli frá stofni út í rótarenda. Nýjar rætur vaxa frá stofni kókospálma svo lengi sem plantan lifir og hafa talningar sýnt að 70 ára gömul tré geta hafa myndað 3.600 rætur. Rætur einkímblaða laukjurta, eins og hýasintu og lilja og sumar stólpa- og forðarætur eins og rætur fífla, hafa þann eiginleika að dragast saman og þenjast út. Með því móti draga samdráttarræturnar sig dýpra í jörðina þar til kjördýpt er náð. Rætur sem drepa Fræ margra Ficus tegunda, þar á meðal benjamínfíkuss, F. Benjamina, sem margir þekkja sem sérlundaða pottaplöntu, spíra á greinum annarra trjáa hátt uppi í laufkrónunni í náttúrulegum heimkynnum sínum. Þangað berast fræin með fuglum sem éta þau niðri á jörðinni en skíta þeim svo uppi í trjánum þar sem þau festast við greinarnar. Fíkusar hefja því líf sitt sem ásætur sem senda frá sér margar rætur sem vaxa niður með stofni hýsiltrésins eða hanga líkt og loftrætur á greinum þess þar til þær ná jarðsambandi. Á stuttum tíma ná rætur fíkusa að umvefja stofn hýsilsins og smám saman drepst hann og rotnar burt og eftir stendur hol súla af blaðmiklum og státlegum fíkus með stuðningsrætur. Rótanytjar Rætur eru til margra hluta nytsamlegar. Flestir Íslendingar þekkja rótarávexti eins og kartöflur, gulrætur, engiferrót, rófur og radísur en færri hafa líklega smakkað kassava, pipar- eða lakkrísrót. Neysla á yam eða efni sem unnið er úr þeirri rót meðal kvenfólks leynir aftur á móti á sér því úr því er unnið eitt af undirstöðuefnunum í getnaðarvarnarpillunni. Fjöldi róta hefur í gegnum aldirnar verið notaður til lækninga, ekki síst í Austurlöndum fjær þar sem ginsengrótin er sögð vera allra meina bót. Rætur túrmerik hafa notið talsverðra vinsælda hér á landi sem hollusturætur undanfarið auk þess sem túrmerik er ágætt til litunar. Úr rótum er unnið krydd og ilmefni sem notuð eru í vellyktandi og kölnarvatn. Hvannarætur Á Íslandi hafa rætur ætihvannar, Angelica archangelica, verið nýttar til matar og lækninga allt frá landnámi og líklegt að landnámsmenn hafi flutt þær með sér til landsins sem slíkar. Hvannarrótarbrennivín, sem Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins framleiddi, var vinsælt í eina tíð og ekki óalgengt að sjá góðglaða menn með flösku af því í buxnastrengnum á sveitaböllum í gamla daga. Í dag eru unnin heilsuefni úr hvannarrótinni, sem meðal annars eru vindeyðandi og auðvelda þvaglát eldri borgara. Áttu börn og buru, grófu rætur og muru, köttur úti í mýri, úti er ævintýri. Göngupálmi, Socratea exorrhiza, sem finnst villtur í Mið- og Suður-Afríku, er með rætur sem líkjast stultum og lyfta trénu í orðsins fyllstu merkingu frá jarðvegsyfirborðinu. Mynd / sciencealert.com Forðarætur yam, Dioscorea sp., á markaði í Nígeríu. Mynd / udeozochibuzo.com Stuðningsrætur semal eða silkibómullartrésins, Bombax ceiba, sem er upprunnið í hitabelti Asíu. Mynd / wikipedia.org Rætur sem drepa. Á stuttum tíma ná rætur fíkusa að umvefja stofn hýsilsins og smám saman drepst hann. Mynd / rainforestreports.weebly.comNýjar rætur vaxa frá stofni kókospálma, Cocos nucifer, svo lengi sem plantan lifir. Mynd / agriculture2u.com Lífræn hreinsistöð • Fyrirferðalítil fullkomin sambyggð skolphreinsistöð • Uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði hreinsunar • Engin rotþró eða siturlögn 25 ára ábyrgð • Tæming seyru á þriggja til fimm ára fresti • Engir hreyfanlegir hlutir • Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík Sími 517 2220 - petur@idnver.is G ra fik a 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.