Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
eyðimörkinni. Hæð trésins er í mesta
lagi tíu metrar. Annað og þriðja
sæti yfir dýptarmet plönturóta eiga
Juniperus monosperma, sem finnst í
vestan verðum Bandaríkjum Norður-
Ameríku, og áströlsk tröllatrjáa-
tegund, Eucaluptus sp., sem hafa
fundist með rætur niðri á 61 metra
dýpi. Í fjórða sæti var svo önnur
planta í Kalaharí-eyðimörkinni,
Acacia erioloba, með 60 metra
djúpa rót. Allar þessar plöntur
eiga það sameiginlegt að vaxa á
þurrkasvæðum.
Svepprætur
Fjöldi plantna lifir samlífi með
sveppum með þeim hætti að rætur
og sveppþræðir eða ýmur sveppa
tengjast í jarðvegi og mynda það
sem kallast svepprætur. Talið er að
samlífið eigi sér að minnsta kosti
60 milljón ára þróunarsögu og að
það sé mun algengara en talið hefur
verið til þessa.
Ýmislegt bendir til að plöntur
sem lifa í samlífi með sveppum
geti sent efnaboð sín á milli gegnum
ýmurnar sem greinast um jarðveginn
og tengjast öðrum plöntum sömu
tegundar. Reyndar er uppi kenning
um að slík skilaboð geti borist
á milli ólíkra plöntutegunda svo
lengi sem þær lifa samlífi við sömu
sveppategundina.
Sýnt hefur verið fram á að ólíkar
tegundir eins og rósir og grös geti
sent efnaboð sín á milli.
Einnig eru mörg dæmi um
að plöntur lifi samlífi með
jarðvegsbakteríum sem auka
niturnám plantnanna úr jarðvegi.
Gerð róta
Fyrsta rótin sem plöntur mynda
kallast kímrót og af henni myndast
svo eiginlegar rætur sem algengast
er að skipta í trefja- eða stólparót.
Munurinn á þessum megingerðum
róta er að stólparætur eru gildar
og vaxa beint niður á við ef engin
fyrirstaða er til staðar og frá þeim
vaxa síðan grennri hliðarrætur.
Trefjarætur greinast hins vegar
í allar áttir um jarðveginn og geta
orðið ansi víðfeðmar.
Stólparætur vaxa dýpra og hafa
yfirleitt betri aðgang að vatni en
trefjarætur sem liggja grynnra og
hafa meiri aðgang að næringarefnum.
Rannsóknir benda til að
plöntur sem upprunnar eru nær
heimskautunum myndi frekar
trefjarætur sem liggja grunnt þar
sem hitastig jarðvegsins og kaldur
jarðvegur dragi úr vexti stólparóta.
Fyrir rúmum tíu árum var
greint frá plöntu af ættkvíslinni
Corydalis, C, conorhiza, sem
vex villt í Kákasusfjöllum og til
fjalla í Tyrklandi sem myndar auk
venjulegra róta eins konar snjórætur.
Ræturnar sem mynda eins konar net
vaxa ofanjarðar en undir þykkum og
þunnum snjóalögum þar sem þær
nýta næringarefni.
Í hitabeltinu og á heittempraða
beltinu, ekki síst þar sem jarðvegur
er grunnur, mynda hávaxin tré
það sem kalla má stuðningsrætur.
Ræturnar eru, þykkar, víðfeðmar og
vaxa oft yfir og flækjast saman við
rætur annarra trjáa og veita trénu
góðan stuðning, auk þess að sjá
því fyrir næringarefnum. Dæmi er
um stuðningsrætur sem eru yfir níu
metrar á hæð og vaxa þrjátíu metra
út frá stofni trjáa og jafnvel aðra
þrjátíu metra niður á við.
Sumar plöntur mynda loftrætur,
dæmi um það eru pottaplöntur eins
og rifblaðka, mánagull og fjöldi
annarra klifurplantna í hitabeltinu
og orkideur. Tilgangur loftróta er
að auðvelda plöntum að taka upp
vatn þar sem rótarkerfi margra
klifurplantna er lítið.
Vaxi loftrætur niður í jarðveg
verður starfsemi þeirra sú sama og
annarra róta í jarðvegi.
Göngupálmi, Socratea exorrhiza,
sem finnst villtur í Mið- og Suður-
Afríku er með rætur sem líkjast
stultum og lyfta trénu í orðsins fyllstu
merkingu frá jarðvegsyfirborðinu.
Kraftmiklar ræturnar vaxa skávalt
út frá stofni trésins og niður í jörð.
Tréð er sólelskt og rætur þess vaxa
best í sól og forðast skugga. Þegar
eldri rætur drepast í skugga og nýjar
hafa náð fótfestu sólarmegin er því
eins og tréð hafi flutt sig til. Sagt
er að við bestu skilyrði, aðrir segja
það ósatt, færist göngupálmar um
tvo til þrjá sentímetra á sólarhring
sem gerir sjö til ellefu metra á ári.
Já. ég veit, þetta er farið að minna á
Hringadróttinssögu.
Tré sem vaxa á fenjasvæðum
eða þar sem gætir flóðs og fjöru
hafa mörg þróað með sér rætur sem
vaxa upp á við og upp úr síblautum
jarðveginum. Margar þessara plantna
eru saltþolnar og geta vaxið í fjörum.
Bergflétta, Hedera helix, er með
það sem kallast heftirætur en það eru
smávaxnar rætur sem plantan notar
til að festa sig við og klifra upp eftir
hrjúfu yfirborði trjáa eða steina.
Rótarkerfi ásæta sem eru
sníkjuplöntur sýgur næringuna
úr hýsilplöntunni. Dæmi um
sníkjuplöntur eru mistilteinn og
plöntur af ættkvíslinni Rafflesia
sem oft kallast hræblóm vegna
ýldulyktarinnar sem þau gefa frá sér.
Kókospálmar, Cocos nucifer,
mynda stólparætur sem liggja
ofarlega í jarðvegi og vaxa að hluta til
lárétt út frá stofninum en ná sjaldnast
út fyrir ystu blaðenda. Ræturnar eru
innan við átta sentímetrar að ummáli
og halda sama ummáli frá stofni út í
rótarenda. Nýjar rætur vaxa frá stofni
kókospálma svo lengi sem plantan
lifir og hafa talningar sýnt að 70 ára
gömul tré geta hafa myndað 3.600
rætur. Rætur einkímblaða laukjurta,
eins og hýasintu og lilja og sumar
stólpa- og forðarætur eins og rætur
fífla, hafa þann eiginleika að dragast
saman og þenjast út. Með því móti
draga samdráttarræturnar sig dýpra í
jörðina þar til kjördýpt er náð.
Rætur sem drepa
Fræ margra Ficus tegunda, þar á
meðal benjamínfíkuss, F. Benjamina,
sem margir þekkja sem sérlundaða
pottaplöntu, spíra á greinum annarra
trjáa hátt uppi í laufkrónunni í
náttúrulegum heimkynnum sínum.
Þangað berast fræin með fuglum sem
éta þau niðri á jörðinni en skíta þeim
svo uppi í trjánum þar sem þau festast
við greinarnar.
Fíkusar hefja því líf sitt sem ásætur
sem senda frá sér margar rætur sem
vaxa niður með stofni hýsiltrésins eða
hanga líkt og loftrætur á greinum þess
þar til þær ná jarðsambandi. Á stuttum
tíma ná rætur fíkusa að umvefja stofn
hýsilsins og smám saman drepst hann
og rotnar burt og eftir stendur hol súla
af blaðmiklum og státlegum fíkus með
stuðningsrætur.
Rótanytjar
Rætur eru til margra hluta nytsamlegar.
Flestir Íslendingar þekkja rótarávexti
eins og kartöflur, gulrætur, engiferrót,
rófur og radísur en færri hafa líklega
smakkað kassava, pipar- eða lakkrísrót.
Neysla á yam eða efni sem unnið er
úr þeirri rót meðal kvenfólks leynir
aftur á móti á sér því úr því er
unnið eitt af undirstöðuefnunum í
getnaðarvarnarpillunni.
Fjöldi róta hefur í gegnum
aldirnar verið notaður til lækninga,
ekki síst í Austurlöndum fjær þar
sem ginsengrótin er sögð vera allra
meina bót.
Rætur túrmerik hafa notið
talsverðra vinsælda hér á landi sem
hollusturætur undanfarið auk þess sem
túrmerik er ágætt til litunar.
Úr rótum er unnið krydd og
ilmefni sem notuð eru í vellyktandi
og kölnarvatn.
Hvannarætur
Á Íslandi hafa rætur ætihvannar,
Angelica archangelica, verið nýttar
til matar og lækninga allt frá landnámi
og líklegt að landnámsmenn hafi flutt
þær með sér til landsins sem slíkar.
Hvannarrótarbrennivín, sem
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
framleiddi, var vinsælt í eina tíð og
ekki óalgengt að sjá góðglaða menn
með flösku af því í buxnastrengnum á
sveitaböllum í gamla daga. Í dag eru
unnin heilsuefni úr hvannarrótinni,
sem meðal annars eru vindeyðandi og
auðvelda þvaglát eldri borgara.
Áttu börn og buru, grófu rætur og
muru, köttur úti í mýri, úti er ævintýri.
Göngupálmi, Socratea exorrhiza, sem finnst villtur
í Mið- og Suður-Afríku, er með rætur sem líkjast
stultum og lyfta trénu í orðsins fyllstu merkingu
frá jarðvegsyfirborðinu. Mynd / sciencealert.com
Forðarætur yam, Dioscorea sp., á
markaði í Nígeríu.
Mynd / udeozochibuzo.com
Stuðningsrætur semal eða silkibómullartrésins, Bombax ceiba,
sem er upprunnið í hitabelti Asíu. Mynd / wikipedia.org
Rætur sem drepa. Á stuttum tíma
ná rætur fíkusa að umvefja stofn
hýsilsins og smám saman drepst
hann. Mynd / rainforestreports.weebly.comNýjar rætur vaxa frá stofni kókospálma, Cocos nucifer, svo lengi sem plantan lifir. Mynd / agriculture2u.com
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19