Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023
RML
og aðkeyptar þjónustu hjá
kartöflubændum.
- Fastur kostnaður hækkar einnig
en þó er nokkur breytileiki milli
greinanna. Launakostnaður eykst
hjá báðum hópum á tímabilinu.
- Framlegð hreinna afurðatekna
(fyrir opinberar greiðslur) í kr./kg
lækkar í rótargrænmetinu en hækkar
í ylræktinni.
- EBITDA sem hlutfall af
heildar veltu stendur nánast í stað hjá
kartöflubændum en lækkar töluvert
í ylræktinni.
- Afkoma versnar heldur í
kartöfluræktinni en mikil hækkun
á jarðræktarstyrk kemur í veg fyrir
að lækkun sé enn meiri og má áætla
að stuðningurinn stuðli að því að
vöruverð hækkar ekki á tímabilinu.
Afurðatekjur (án opinbera greiðslna)
mældar í kr./kg eru nánast þær sömu
2021 og 2019.
- Afkoma versnar töluvert í
ylræktinni, allavega hjá þeim búum
sem mynda það meðaltal sem unnið
er með. Afurðatekjur mældar í kr./
kg hækka um 12% á þessu 3 ára
tímabili sem dugir ekki til að vega á
móti hækkun framleiðslukostnaðar.
Mikilvægt er að fá rekstrartölur frá
fleiri framleiðendum til að meta
stöðuna enn betur.
- Með þeim fyrirvara að unnið
var með frekar lítið gagnasafn þá
er niðurstaðan úr þessari greiningu
sú að frekar hefur hallað undan fæti
síðustu ár þó það eigi auðvitað alls
ekki við um alla framleiðendur.
Hagnaður í greininni virðist ekki
vera sá sami og hann var þegar
Vífill Karlsson gerði sína úttekt.
- Opinberar greiðslur á hvaða
formi sem þær eru hafa afgerandi
áhrif í þá átt að halda afurðaverði
í jafnvægi og gera greinina
rekstrarhæfa.
Nauðsynlegt að fá fleiri
framleiðendur inn í verkefnið
Mikilvægt er að vinna verkefni sem
þetta og í raun þyrfti það að vera
stöðugt í vinnslu. Það nýtist bæði
sem stjórntæki fyrir framleiðendur
sem og upplýsingabanki um stöðu
greinarinnar.
Nauðsynlegt er að fylgjast
vel með þróun í greininni
vegna mikilvægi hennar
í matvælaframleiðslu og
matvælaöryggi þjóðarinnar sem
og vegna markaðrar stefnu og
aðgerðaráætlunar stjórnvalda í
loftslagsmálum.
Þó búin séu ekki fleiri sem
mynda það gagnasafn sem unnið
var með, er hægt að skoða þróun
í rótargrænmetisrækt nokkuð vel.
Ef gögn skila sér síðan frá fleirum
í ylræktarhlutanum þá verður
hægt að vinna nánar með þau,
en erfiðara verður að setja fram
samanburðargreiningu þar sem fáir
aðilar eru í ræktun á hverri tegund.
Heildarmyndina verður samt hægt
að skoða og greina.
Ákveðið er að framhald verði
á verkefninu og verður skoðað
að útvíkka það og taka inn fleiri
tegundir og gera þetta öflugra
verkfæri fyrir framleiðendur og
greinina.
Mikilvægt er að fá fleiri
framleiðendur inn í verkefnið
til þess að styrkja enn frekar
gagnagrunninn svo hann gefi sem
besta mynd af rekstri og stöðu
garðyrkjunnar.
Þeim framleiðendum sem óska
eftir að taka þátt er bent á að hafa
samband við Ívar Ragnarsson
ivar@rml.is, Sigurð Guðmundsson
sg@rml.is og Helga Jóhannesson
helgi@rml.is
Breytt gjaldskrá RML
Á fundi stjórnar RML þann 31. janúar sl. var meðal
annars til umræðu rekstur forrita sem nauðsynleg eru
öllum bændum í landinu til að m.a. halda utan um
bústofn sinn, ræktun og rekstur.
Meginástæða þessarar umræðu er sú að mörg
undanfarin ár hafa forritin verið rekin með halla. Meðal
afleiðinga af vanfjármögnun eru að eðlileg uppfærsla til
nútímans hefur ekki átt sér stað, kerfin hafa ekki verið gerð
notendavænni og möguleikar á samkeyrslu við jaðartæki
svo fátt eitt sé nefnt. Flestöll sú þróunarvinna sem hefur átt
sér stað hefur verið styrkt sérstaklega eða tekin af framlögum RML.
Meginniðurstaða þessarar umræðu stjórnar var að það væri algerlega
orðið tímabært að snúa þessari þróun við. Eina raunhæfa leiðin til þess er
að forritin séu rekin þannig fjárhagslega að ekki þurfi að leggja þeim rekstri
lið með fjárframlögum. Því var ákveðið að hækka notendagjöldin þannig að
reksturinn sem slíkur yrði sjálfbær. Hækkunarþörfin er nokkuð misjöfn eftir
því hvaða forrit er um að ræða.
Við þessa breytingu verður hægt að nota fjármagn sem áður fór í að
niðurgreiða rekstur forritanna til að uppfæra þau og þróa þannig að þau
þjóni hagsmunum landbúnaðarins og einstakra bænda betur. Að hægt verði
að nýta upplýsingar úr skýrsluhaldinu m.a. við vinnu við loftslagsbókhald
einstakra bænda með einföldum hætti og minnka vinnu við tvískráningar og
þannig spara vinnu.
Stjórn RML er algerlega einhuga um að þessi stefnubreyting sé
nauðsynleg þar sem augljóst er að í framtíðinni verða allar skráningar í
búrekstrinum og þar með gagnasöfnun algerlega nauðsynlegar og ein af
mikilvægustu grunnforendum þess að hægt verið t.d. að staðfesta sjálf-
bærni einstakra búa og atvinnugreinarinnar sem heildar og að fyrir liggi
staðfestar upplýsingar um loftslags- og umhverfisáhrif viðkomandi búa og
landbúnaðarins í heild. Í framtíðinni verður landbúnaður ekki rekinn án þess
að framangreind grundvallaratriði séu í lagi.
Bændur munu því sjá allnokkrar breytingar til hækkunar á gjaldskrám
RML vegna notkunar á þessum forritum. Þess er jafnfram vænst að í nánustu
framtíðinni komi vart til annarra hækkana en sem nemur því að fylgja
verðlagi. Starfsmenn RML munu gera nokkra grein fyrir hvaða breytinga sé
að vænta og e.t.v. einhverja forgangsröð sem unnið verður eftir.
F.h. stjórnar,
Björn Halldórsson
Björn Halldórsson.
Uppskera í rótargrænmeti fer minnkandi. Myndir / Myndasafn Bændablaðsins
Uppfyllir ströngustu kröfur
um hreinsun á frárennsli,
frá böðum, salernum,
vöskum og þvotta- og
uppþvottavélum á
heimilum og
sumarbústöðum.
Hreinsar frá fosfor og köfnunarefni
Engin lykt
H
re
in
si
st
öð
H
re
in
si
st
öð
www.hagvis.is hagvis@hagvis.is 4601706