Bændablaðið - 23.02.2023, Síða 64

Bændablaðið - 23.02.2023, Síða 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 Saltkjöt og baunir þekkja allir, einföld klassík úr okkar matarhefð sem allir þekkja og flestum þykir góður matur. Rétturinn krefst ekki flókins undirbúnings, en þarf að fá sinn tíma í suðu. En hvaðan kemur hefðin sem felst í saltkjötsneyslu á sprengidag sem núna er nýliðinn? Sprengidagur er síðasti dagur fyrir lönguföstu sem hefst á öskudegi, sjö vikum fyrir páska. Þessi tími átti að vera syndugum til íhugunar og góðrar breytni, auk föstunnar að sjálfsögðu, sem á Íslandi takmarkaðist yfirleitt við kjötmeti en gat einnig náð til fiskvöru og mjólkurafurða. Ef langt var gengið hljóðaði mataræðið upp á vatn og brauð. Í Evrópu tíðkuðust, og tíðkast enn þar og víða í heiminum, sérstakar kjötkveðjuhátíðir síðustu dagana fyrir lönguföstu, miklar útihátíðir og skemmtanir. Föstuinngangur fer saman við vorkomu á suðlægari slóðum og þar hafa heiðin hátíðahöld örugglega haft áhrif sem síðan hafa borist til norðlægari landa. Dagarnir fyrir upphaf föstu voru líka hefðbundnir uppgjörsdagar skatta víða í Evrópu, sem gjarnan voru greiddir í búfénaði og matvælum. Hjá aðalsmönnum hefur því verið til ógrynni matar á þessum tíma sem helst þurfti að nýta sem fyrst vegna bágra aðstæðna til matvælageymslu. Heldra fólk gerði því vel við sig í mat á þessum tíma, og kirkjunnar menn og aðrar stéttir létu sitt ekki eftir liggja. Strjálbýli og veðurfar hafa að öllum líkindum komið í veg fyrir að útihátíðahöld næðu fótfestu á Íslandi á þessum árstíma en skemmtunin haldist innan veggja heimilanna, búanna. Eins og venjan á sprengidag gefur til kynna, saltkjöt og baunir í mál, hefur eitthvað verið gert til að breyta til í mataræði við upphaf föstu hér á landi. Þó ekki hafi tekist að rekja sögu þessara hefða langt aftur í tímann, má gera ráð fyrir að siðbreyting frá katólskum sið hafi haft mikil áhrif á hvernig menn höguðu sér á lönguföstu og við upphaf hennar. Lagstúfurinn „Saltkjöt og baunir, túkall“ er oft sunginn þegar sprengidagurinn fer að nálgast en er einnig oft sönglaður til merkis um að einhverju sé lokið, til dæmis skemmtiatriði. (Heimildir: Vísindavefurinn.) Býli: Starrastaðir. Staðsett í sveit: Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði. Ábúendur: María Reykdal, Þórunn Eyjólfs- dóttir og Sigurður Baldursson, Margrét Eyjólfsdóttir og Guðmundur Ingólfsson, Erna María Guðmundsdóttir (11 ára) og Eyjólfur Örn Guðmundsson (8 ára). Fjölskyldustærð (og gæludýra): Sjö manna fjölskylda, hundarnir Barón, Tígull og Spaði auk gróðurhúsakattarins Tinnu. Stærð jarðar og gerð bús? 460 ha, þar af 35 ha tún. Sauðfjárbú og rósarækt. Fjöldi búfjár og tegundir? Í dag eru á bænum 413 kindur, ca 40 hross og rósir í 650 fm gróðurhúsum. Hvernig gengur hefðbundinn vinnu- dagur fyrir sig á bænum? Hefðbundinn vinnudagur byrjar á því að skepnunum er gefið og allir fara í sína vinnu fjarri bænum. Þegar heim er komið er farið að sinna sauðfénu, klippa rósir og pakka og koma þeim í sölu. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegustu bústörfin eru sauðburður og smalamennskur á haustin og að vinna við rósirnar í gróðurhúsunum þegar frost og kuldi er úti. Leiðinlegustu störfin eru girðingarvinna og skítmokstur. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Eftir fimm ár verður allt með svipuðu sniði en hugsanlega búið að stækka gróðurhúsin þar sem mikil eftirspurn er eftir rósum frá okkur. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Í ísskápnum hjá okkur er alltaf til ostur, Sveitabiti frá Kaupfélagi Skagfirðinga. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Uppáhaldsmaturinn á heimilinu eru innbökuð lambahjörtu og hangikjöt. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar yngsta dóttirin var að raka heyi á gamla Deutz með dragtengda rakstrarvél aftan í og skellti traktornum með rakstrarvélinni í heilu lagi ofan í breiðan skurð, lenti á hjólunum. Var of forvitin að fylgjast með hinum og gleymdi að beygja. BÆRINN OKKAR MATARKRÓKURINN Saltkjöt og baunir, túkall Hafliði Halldórsson haflidi@icelandiclamb.is Starrastaðir Á Starrastöðum í gamla Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði hefur sama fjölskyldan búið frá árinu 1901 er Ólafur Sveinsson frá Bjarnastaðahlíð fluttist þangað með fjölskyldu sína og hóf búskap. Hann kaupir síðan Starrastaði af kirkjunni 1916 og jörðin hefur því verið í eigu fjölskyldunnar í 107 ár. Á Starrastöðum hefur alla tíð verið blandaður búskapur með sauðfé, kýr og hross. Árið 1984 voru svo heitavatnslindir virkjaðar og fyrsta gróðurhúsið reist 1985. Árið 2000 lagðist kúabúskapur af þegar heimilisfaðirinn Eyjólfur Pálsson lést. Saltkjöt & baunir 6 skammtar 3 kg saltkjöt 3 l vatn 2 msk. olía 2 laukar, saxaðir 3 beikonsneiðar, saxaðar 300 g gular baunir, lagðar í kalt vatn yfir nótt, síðan er vatnið sigtað frá 2 l vatn Skolið kjötið og setjið í pott með 3 l af vatni og sjóðið við vægan hita í minnst 70 mín. Hitið olíu í öðrum potti og svitið lauk og beikon á meðalhita í 3 mín. Bætið baunum og 2 l af vatni í og sjóðið á rólegum hita í 30- 40 mín. Hrærið í pottinum reglulega. Bætið þá 1-2 kjötbitum í súpupottinn og sjóðið í 30 mín í viðbót. Þegar kjötið er orðið meyrt og baunirnar mjúkar er hún borin fram, sumir vilja mauka hana fínt í matvinnsluvél eða töfrasprota. Smakkið til með pipar. Berið súpuna fram með kjötinu ásamt soðnum kartöflum, rófum og gulrótum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.