Kirkjublaðið - 09.12.1946, Blaðsíða 46
KVÖLDÚTGÁFAN
Innan skamms mun nýtt útgáfufyrirtæki, er nefnist KVÖLD-
ÚTGÁFAN, hefja starfsemi sína. Hefur hún tekið sjer fyrir
hendur að sjá íslenzkum lesendum fyrir skemmtilegu lestrarefni
við sem flestra hæfi og koma að jafnaði út þrjár bækur saman
einu sinni á mánuði hverjum nema júlí og ágúst, og' verður stærð
þeirra samanlagt eigi minni en 23—26 arkir mánaðarlega. Tvær
af hverjum þrem bókunum verða ýmist léttar og spennandi
skáldsögur eða annað skemmtiefni, en ein verður valin úr flokki
sígildra skáldrita. Þannig fá lesendur þegar á fyrsta ári vand-
aða og myndskreytta útgáfu, örlítið stytta, af SÖGUM HER-
LÆKNISINS í nýrri þýðingu sem Tómas Guðmundsson hefur
tekið að sér að gera, og hefst útgáfa þeirra þegar með fyrsta
flokki. Verð hvers flokks, þriggja bóka, er, að óbreyttum prent-
kostnaði, kr. 30.00 til áskrifenda, en annars kr. 36,00, og má
fullyrða, að ódýrari bækur séu ekki gefnar út hér á landi.
Ritstjórn útgáfunnar annast Haraldur Á. Sigurðsson, leikari.
Þess má geta, að snemma á árinu birtist íslenzk leynilögreglu-
saga frá Reykjavík, eftir íslenzkan skáldsagnahöfund, og eru
fleiri slíkar væntanlegar síðar meir. Þá stendur einnig til, að
í þessu safni verði smám saman prentaðir þeir skopleikir
(revíur), sem náð hafa mestum vinsældum á undanförnum árum.
Loks má geta þess, að skemmtirit Kvöldútgáfunnar, er nefnist
MINKURINN, verður sent föstum áskrifendum, þeim að kostn-
aðarlausu, og verður rit þetta ekki til sölu sérstaklega.
Væntanlegir kaupendur eru vinsamlegast beðnir að senda
áskriftir sínar í pósthólf 65 eða beint til afgreiðslumannsins,
Indriða Halldórssonar, Framnesveg 23, sími 6819. Einnig verður
áskriftum veitt móttaka í síma 7508 og 5934.
í þeirri von, að oss takist að gera útgáfuna svo úr garði, að hún megi falla lesendum sínum vel í geð kveðjum vér
yður með vinsemd og virðingu.
Eg undirrit....... gerist hér með áskrifandi að bókum
Kvöldútgáfunnar árið 1947.
KVÖLDÍTGAFAN
Nafn
Pósthólf 65. Reykjavík.
Heimilisfang
ítoehpccl