Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 17
Forseti ASÍflytur ræðu við setningu 38. þings ASÍ.
stjórnvalda sem mannréttindabrot og krafðist þess að samningsrétturinn yrði taf-
arlaust gefinn frjáls.
Daginn sem við komum saman til 37. þingsins á Akureyri 1992 notaði þ.v.
ríkistjórn til þess að tilkynna samstarfsslit á vinnu, sem verið hafði í gangi milli
samtakanna, stórnvalda og fulltrúa sveitarfélaganna, um úrbætur í atvinnu- og
efnahagsmálum. Og til þess að tilkynna nýjar einhliða efnahagsaðgerðir, kjara-
skerðingar og samdráttaraðgerðir. Þessu brást þing okkar þá við með því að
hvetja öll aðildarfélög sambandsins til samningsuppsagna, við fyrsta tækifæri.
Nú þegar við komum saman til 38. þingsins, þá bregður enn við með svip-
uðum hætti af hálfu stjórnvalda.
Aðför að sjálfstæðri verkalýðshreyfingu
Forsætisráðherrann hefur að vísu með formlegum hætti aflýst kreppunni. Og nú
er viðurkennt af öllum að verulegur bati hefur þegar skapast í efnahagslífinu.
Það er líka viðurkennt að nauðsynlegt sé að nýta þann bata á sem skynsamleg-
astan hátt til að efla atvinnulífið og að bæta kjör þess fólks, sem fyrst og fremst
hefur lagt á sig fórnir á undanfömum árum mikils samdráttar.
En þá bregður svo við nú að ríkistjórnin finnur sig knúna til að veitast með
óskammfeilnari hætti en oftast hefur þekkst áður að félagslegum réttindum allra
launamanna, hvar í samtökum sem þeir eru. Ekki bara hinum efnahagsfélags-
legu, svo sem velferðar- og tryggingamálum. Heldur og innri félagsréttindamál-
um launafólks. Þannig að settir eru í uppnám allir möguleikar til þess að verka-
fólk fái í skjóli samtaka sinna með eðlilegum og friðsamlegum hætti notið ár-
angurs erfiðis síns og fórna á undanförnum kreppuárum, nú þegar komið ætti að
vera að uppskerunni.
Eitt stærsta málið sem við höfum fengist við á síðustu árum er aðför stjórn-
valda nú að sjálfstæði verkalýðshreyfingarinnar. Það er ekki nóg með það í
15