Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 27
Benedikt Davíðsson í hópi fyrrverandi forseta sambandsins sem voru gestir
þingsins. Taliðfrá vinstri: Asmundur Stefánsson, Helgi Hannesson, Benedikt
og Snorri Jónsson.
stjómvalda á verkalýðshreyfinguna og minnti á gildi samstöðunnar. í framhaldi af
því lýsti hann yfir vilja til þess að taka þátt í sameiningu heildarsamtaka launa-
manna á íslandi ef slíkt væri vilji ASÍ.
Næst talaði Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður BHM. Elna talaði sama máli
og Ögmundur, ræddi um skipulega aðför ríkisstjómar að verkalýðshreyfingunni
og taldi að verkalýðshreyfingin yrði að sameina krafta sína í að hrinda þeirri að-
för.
Þá var komið að ávarpi erlendra gesta. Fyrstur þeirra talaði Björgulv Froyn,
framkvæmdastjóri Norrænu Verkalýðssamtakanna, NFS. Björgulv talaði á ís-
lensku og fjallaði um aukna alþjóðavæðingu sem verkalýðshreyfing heimsins yrði
að taka tillit til. ítrekaði hann gildi norræns samstarfs í þessu samhengi.
Ingeborg Winther formaður Föroja Arbeidarafélag var næst. Ingeborg fjallaði
um frændskap og nána samvinnu íslendinga og Færeyinga, þá vék hún að efna-
hagserfiðleikunum í Færeyjum og óskaði þess að íslendingar lærðu af mistökun-
um. Ingeborg færði ASÍ afmælisgjöf vegna 80 ára afmælisins áletraðan færeysk-
an stein sem Benedikt Davíðsson tók við og þakkaði fyrir.
Loks talaði Ole Jakobsen, formaður Föroja Fiskimannafélag, og fjallaði um
samband Færeyja og íslands og störf færeyskra sjómanna á íslandsmiðum. Ole
færði ASÍ Færeyskan minjagrip að gjöf í tilefni 80 ára afmælisins, líkan af verk-
færum til grindardráps, sem Benedikt Davíðsson tók við og þakkaði fyrir.
Fyrir hönd fyrrverandi forseta Alþýðusambandsins talaði Snorri Jónsson.
Snorri þakkaði boðið um að sitja þingið og talaði sérstaklega um kjör eldri borg-
ara og aðför ríkisstjórnar að þeim.
Loks las Benedikt Davíðsson upp skeyti frá Jóni Baldvini Hannibalssyni, for-
manni Alþýðuflokksins, sent systursamtökum í tilefni sameiginlegs afmælis.
25