Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 77
Aðrar tillögur sem bárust voru:
Frá Guðríði Elíasdóttur o.fl. og frá Agnari Egilssyni o.fl. um Kolbein Gunnars-
son; frá Baldri Jónssyni o.fl. um Sigrúnu D. Elíasdóttur og frá Stellu Steinþórs-
dóttur o.fl. um Eirík Stefánsson.
Við talningu atkvæða varð ljóst að kosningaúrslitin yrðu umdeild, þar sem
aðeins Í7.050 atkvæði reyndust gild á móti 38.425 auðum. Allnokkur töf varð á
því að úrslit lægju fyrir og var þess krafist að þingfundi yrði frestað uns þing-
forseti tilkynnti niðurstöður kosninganna. Hlé var því gert á meðan farið var yfir
talninguna í ljósi laga og reglna sambandsins.
Að lokum vitnaði þingforseti í lög ASÍ 33. grein, c-lið, þar sem kveðið er á
um að enginn sé löglega kjörinn í sambandsstjórn nema hann hljóti a.m.k. helm-
ing greiddra atkvæða. A móti vísaði hann í grein 6.6. í fundarsköpum þar sem
stendur að auðir seðlar teljist ekki til greiddra atkvæða. Úrskurðaði hann því
kosninguna gilda. Niðurstaðan kosningarinnar varð sú að allir sem kjörnefnd
gerði tillögu um hlutu kosningu og lýsti forseti þá rétt kjörna fulltrúa í sam-
bandsstjórn ASÍ.
Varamenn til sambandsstjórnar
Kjörnefnd gerði tillögu um eftirtalda:
Önnu Pálu Víglundsdóttur, Berghildi Reynisdóttur, Einar Gunnarsson, Guðrúnu
E. Ólafsdóttur, Hafstein Eggertsson, Hannes Ólafsson, Helga Ólafsson, Hjalta
E. Hafsteinsson, Hólmfríði Helgadóttur, Huldu Sveinsdóttur, Ingibjörgu Sveins-
dóttur, Ingibjörgu Sigtryggsdóttur, Kolbein Gunnarsson, Njörð Helgason, Ólaf
Ólafsson, Pál Valdimarsson, Stellu Guðnadóttur og Svövu Arnadóttur.
Tveir kjörnefndarmenn, Magnús L. Sveinsson og Sólveig Haraldsdóttir,
stóðu ekki að tillögu nefndarinnar um varamenn. Magnús gerði grein fyrir af-
stöðu þeirra og sagði ástæðuna vera þá að ekki væri gerð tillaga um neinn full-
trúa verslunarmanna. Taldi hann að við atkvæðagreiðslu hefði komið í ljós að
meirihluti þingsins virtist leggja sig sérstaklega eftir því að fella fulltrúa versl-
unarmanna. Hann taldi skilaboðin til verslunarmanna alveg skýr og tilgangs-
laust að gera frekari tillögur um verslunarmenn. Þetta væri einróma niðurstaða
VR manna allra og myndi örugglega draga alvarlegan dilk á eftir sér.
Engar tillögur bárust frá öðrum en kjörnefndinni og voru fyrrnefndir ein-
staklingar því sjálfkjörnir varamenn í sambandsstjórn.
75