Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 20.05.1996, Page 93
Hansína sagði að á vettvangi ASÍ yrði unnið að samræmdum áherslum í fjöl-
skyldu og jafnréttismálum í samvinnu við landssamböndin og einstök félög.
Brýnt væri að á næstu tveimur árum yrði gerð jafnréttisáætlun, sem m.a. yrði
notuð við undirbúning kröfugerðar fyrir kjarasamninga. Einnig að gerður verði
jafnréttissamningur við atvinnurekendur, sem hefði það m.a. að markmiði að
jafna stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði, einkum með tilliti til þarfa fjöl-
skyldnanna.
Hansína sagði að nefndin legði til að gerð verði 5 ára áætlun um að koma á
raunverulegu jafnrétti á vinnumarkaði. Starfsmat gæti verið ein leiðin til launa-
jafnréttis og því teldi ASÍ nauðsynlegt að kanna möguleikana á að nota kynhlut-
laust starfsmat til að jafna launalega stöðu kynjanna.
I annarri umræðu hafði Hansína A. Stefánsdóttir framsögu um jafnréttis- og
fjölskyldumál. Hún sagði algera samstöðu hafa verið í nefndinni um þessa
stefnu og starfsáætlun.
Hjalti Hafsteinsson mælti fyrir tillögu um karlaráðstefnu sem MFA skyldi
standa fyrir og sagði karla þurfa að skoða stöðu sína í nútímasamfélagi.
Tvær tillögur bárust um orðalagsbreytingar en endanlegar samþykktir um
jafnréttismál eru aftar í Þingtíðindum.
Nokkrar umræður urðu um jafnréttismálin og aðkomu karla að jafnréttisum-
ræðunni. Til máls tóku: Guðmundur Ómar Guðmundsson, Signý Jóhannesdótt-
ir, Þorbjörn Guðmundsson, Már Guðnason, Snorri Konráðsson, Páll Valdimars-
son og Guðmundur Þ Jónsson.
Menningarmál
Framsögumaður var Guðmundur Gunnarsson. Hann fjallaði um mikilvægi full-
orðinsfræðslu og sérstaklega nefndi hann mikilvægi þess að sinna menntunar-
málum atvinnulausra í þeim tilgangi að gera þeim kleift að þjálfa sig til nýrra
starfa. Guðmundur ræddi sérstaklega um þörf símenntunar og endurmenntunar.
í annarri umræðu hafði Hansína Á. Stefánsdóttir framsögu um menningar-
mál en
nefndin gerði engar breytingar við fyrirliggjandi tillögur. Samþykktin er
aftar í heftinu.
Verkalýðshreyfíngin og samfélagið
Framsögumaður í fyrstu umræðu var Þorbjöm Guðmundsson. Þorbjörn byrjaði
á að ræða þátt verkalýðshreyfingarinnar í uppbyggingu velferðarkerfisins og
sagði margt benda til þess að vaxandi átök væm framundan um þróun samfé-
lagsins, átök um framtíðarsýn réttlátrar skiptingar gæðanna, jafnréttis og vel-
ferðar eða sérhyggju og vaxandi ójafnaðar. Krafan um aukin lífsgæði væri krafa
um efnalega velferð og félagslegt öryggi við aðstæður sem tækju mið af fjöl-
91